Víkurfréttir - 19.02.2004, Qupperneq 24
24 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Umsjón: Þorgils Jónsson • sími 868 7712
sport@vf.issportið
Nokkur síðustu ár höf-um við staðið frammifyrir þeirri staðreynd
að nemendur hér hafa ekki
náð sama árangri í sam-
ræmdum prófum grunnskól-
ans og í flestum öðrum
byggðarlögum. Bæjaryfirvöld
hafa lagt áherslu á að þessu
þurfi að breyta og að mikill
áhugi og góður vilji til þess
arna sé innan fræðsluráðs,
hjá skólunum og meðal for-
eldra. Við eigum á að skipa
góðu og glæsilegu skólahús-
næði, vel búnu tækjum og tól-
um til kennslu. Æ fleira ungt
fólk sækir í kennaranám og
vonandi fáum við að njóta
starfskrafta þeirra hér að
námi loknu.
En það eitt og sér dugar ekki til
árangurs í skólastarfi. Ýmislegt
getur staðið skólastarfi fyrir
þrifum s.s. viðhorf til náms,
menntunar og skóla, fjöldi rétt-
indalausra og reynslulítilla
kennara, stórir blandaðir bekkir
þar sem námsgeta og áhugi er á
skalanum frá núlli upp í tíu.
Ef við viljum virkilega og af
einurð vinna að jákvæðum
breytingum í skólastarfinu tel
ég að við verðum að horfast í
augu við staðreyndir sem lengi
hafa blasað við en fáir þorað að
taka á. Það liggur í augum uppi
að einn kennari - hversu fær og
menntaður sem hann er - getur
aldrei „kennt/sinnt“ 30 mis-
munandi nemendum í bekk svo
vel sé. Nemendum með ólíkar
þarfir, ólíka námsgetu, ólíkar
væntingar til skólans og náms-
ins, ólík áhugasvið, ólíkt bak-
land. Niðurstaðan verður oftast
sú að enginn nemandi fær í
raun þá þjónustu sem honum
ber og hann þarfnast.
Góðu nemendurnir eru afskiptir
og fá ekki verkefni við hæfi.
Þeir komast upp með það að
ganga vel í náminu og fá góðar
einkunnir án þess að þurfa mik-
ið fyrir því að hafa. Skólinn
veitir þeim ekki tækifæri til að
reyna virkilega á sig í náminu
og tileinka sér vinnulag sem
gagnast í öllu námi bæði nú og
til framtíðar. Nám er jú ekkert
nema vinna, þrotlaus vinna og
gott skipulag. Vinnufælnu,
áhugalausu nemendurnir kom-
ast upp með að vera latir og
áhugalausir og þeir sem eiga af
einhverjum ástæðum við
námsörðugleika að stríða, eru
seinfærir fá ekki þá aðstoð sem
þeir í reynd þyrftu til að þeim
geti liðið vel í skólanum. Góðu
nemendurnir eru gjarna litnir
hornauga og kallaðir „nördar“,
„proffar“ og „lúðar“ og nem-
endur með námsörðugleika
finna oft sárt fyrir vanmætti
sínum við hlið þeirra sem meira
mega sín. Starfið í kennslustof-
unni verður einhvers konar
miðjumoð sem kemur engum
að fullu gagni.
Ég efast ekki um vilja allra sem
að skólamálum standa til að
efla skólastarfið og skapa góð-
an, kröftugan og metnaðarfull-
an skóla. Þess vegna á ég bágt
með að skilja þessa tregðu í
skólakerfinu. Ég sem foreldri
og kennari vil sýna áhuga minn
á skólamálum í verki og koma
með tillögu. Tillagan felst í að
getuskipta 9. og 10. bekk í þeim
greinum sem teknar eru til sam-
ræmds prófs en blanda hópun-
um í öðrum greinum. Getu-
skipting - sem nánast hefur ver-
ið bannfært orð í munni skóla-
fólks í 30 ár - gæti komið öllum
til góða. Ég segi og skrifa öll-
um. Ég blæs fullkomlega á þau
rök að getuskipting sé slæm
fyrir sjálfsmynd nemenda.
Seinfær nemandi veit að hann
er seinfær hvar í hópi sem hann
stendur og finnur ekki hvað síst
til vanmáttar síns í hópi getu-
meiri nemenda Í hópi jafningja
hefur hann tækifæri til að vera
góður, jafnvel bestur. - Getu-
mestu, áhugasömustu og vinnu-
sömustu nemendurnir fengju
loks að glíma við verðug,
ögrandi verkefni. Þeir þyrftu
að leggja sig fram og tileinka
sér skipulögð vinnubrögð til að
ná árangri. Þeir þyrftu ekki
lengur að fara með það sem
mannsmorð að þeir hefðu
metnað til að standa sig vel í
skólanum. Þeir þyrftu ekki
lengur að liggja undir ámæli
fyrir áhuga og metnað í nám-
inu. - Vinnufælnu, áhugalausu
nemendurnir fengju aðhald, at-
hygli og uppörvun til að sýna
hvað í þeim býr í reynd og
myndu eflast mjög í náminu.
Sjálfsmyndin myndi styrkjast
og þeim yrði það leikur að læra.
Viðhorf þeirra til skólans og
námsins myndi örugglega verða
jákvæðara. - Þeir nemendur
sem eiga við námsörðugleika
að stríða fengju alla þá aðstoð
sem þeir þyrftu á að halda og
myndu örugglega njóta sín bet-
ur í skólaumhverfinu.
Ef við erum í raun ákveðin í að
snúa þróuninni við með sam-
eiginlegu átaki þá er allt hægt.
Þetta er bara framkvæmdarat-
riði. Ég er sannfærð um að
þessi tilraun, yrði hún gerð,
myndi bæta árangurinn, efla
metnað, auka námsgleði og
vellíðan nemenda í skólanum.
Með kærri kveðju.
Jórunn Tómasdóttir
Vatnsholti 5c
230 Keflavík
Getuskipting
M inningarmót RagnarsMargeirssonar fórfram í Reykjaneshöll-
inni laugardaginn 14. febrúar.
Leikið var á litlum völlum þar
sem 6 leikmenn voru í liði og
var 30 ára aldurstakmark í
mótið. Þátttökulið voru 8 tals-
ins: Keflavík 1, Keflavík 2,
Keflavík´97 (Bikarmeistaralið
Keflavíkur frá 1997), Haukar,
Víðir, Grindavík, Njarðvík og
Kjallarinn. Heimasíða Kefla-
víkur gat þess að gaman hefði
verið fá fleiri lið í mótið þar
sem þeir eru margir sem léku
með Ragnari Margeirssyni í
gegnum tíðina, en þeir vona að
fleiri mæti að ári.
Ragnar lék sem kunnugt er með
Keflavík, Fram og KR hér á landi
auk þess að leika með erlendum
liðum. Hann lék einnig 46 A-
landsleiki. Þetta er í annað sinn
sem mótið fer fram og voru þátt-
takendur glaðir í mótslok enda
alltaf gaman þegar gamlir knatt-
spyrnukappar hittast og þá eru
gjarnan gömul og skemmtileg af-
rek rifjuð upp!
Leikar fóru þannig að Keflavík
´97 sigraði mjög sannfærandi, en
þeir sigruðu Kjallarann í úrslita-
leik mótsins.
S íðastliðinn föstudag sagðistjórn knattspyrnudeild-ar Keflavíkur fram-
kvæmdastjóra sínum, Jóni
Pétri Róbertssyni, upp störf-
um, en hann hafði einnig þjálf-
að 2. flokk karla hjá félaginu.
Jón Pétur hafði aðeins starfað hjá
deildinni í stuttan tíma, eða frá
15. október síðastliðnum, og
vildi ekkert láta hafa eftir sér í
samtali við Víkurfréttir nema að
hann væri niðurbrotinn maður
eftir uppsögnina. Rúnar Arnar-
son, formaður knattspyrnudeild-
arinnar vildi ekki láta hafa neitt
eftir sér í þessu máli, en heim-
ildamenn Víkurfrétta fullyrða að
ástæða uppsagnarinnar hafi verið
trúnaðarbrestur milli Jóns Pétur
og stjórnarinnar.
Knattspyrnuvertíðin
að hefjast:
Deildar-
bikarinn
um næstu
helgi
Um næstu helgi hefst fyrs-ta mót leiktíðarinnarþegar Deildarbikarinn
fer í gang.
Á laugardaginn eigast Þór og
Grindavík við í Boganum á Ak-
ureyri ásamt því sem Njarðvík-
ingar munu mæta Íslandsmeist-
urum KR í Egilshöll. Keflavík
leikur við Þrótt Reykjavík í
Reykjaneshöllinni á sunnudag-
inn.
LJÓSMYND: SÝN
Niðurstaðan verður oftast sú að enginn
nemandi fær í raun þá þjónustu sem
honum ber og hann þarfnast.
Um síðustu helgi kepptufjórir Suðurnesjamenn íhnefaleikum í Dan-
mörku og sigraði Árni Jónsson
í sínum fyrsta bardaga. Bar-
dagi Heiðars Arnar Sverrisson-
ar var stöðvaður í þriðju lotu
og tapaði hann sínum bardaga.
Sara Ómarsdóttir tapaði sín-
um bardaga með naumindum
en keppinautur Tómasar Guð-
mundssonar var veikur og því
keppti hann ekki. Vikar Karl
Sigurjónsson úr Keflavík tap-
aði bardaga sínum, en hann
keppti við hnefaleikamann sem
er tveimur þyngdarflokkum
fyrir ofan hann.
„Andstæðingurinn sem Vikar átti
að keppa við féll út og sá sem
hann barðist við var tveimur
þyngdarflokkum fyrir ofan hann.
Það var annaðhvort fyrir Vikar
að taka þennan bardaga eða fá
engan og því völdum við fyrri
kostinn. Hann lét það ekkert á sig
fá þó að 97 kílóa tattóverað
skrímsli hafi birst í hringnum.
Hann tók bara á móti honum,“
sagði Guðjón Vilhelm forsvars-
maður Hnefaleikafélags Reykja-
ness í samtali við Víkurfréttir.
Keppni Hnefaleikafélags Reykja-
ness í Danmörku er hluti af und-
irbúningi fyrir væntanlega kepp-
ni sem fram fer í mars þar sem
tekið verður á móti liði Reykvík-
inga og er stefnt að því að keppn-
in fari fram í Ljónagryfjunni.
M I N N I N G A R M Ó T R A G N A R S M A R G E I R S S O N A R
SANNFÆRANDI SIGUR KEFLAVÍKUR ‘97
Framkvæmdastjóranum sagt upp
K N AT T S P Y R N U D E I L D K E F L A V Í K U R
Boxkeppni í Ljóna-
gryfjunni í mars
www.vinalinan.is
VINA-
LÍNAN
Ert þú einmana?
Ertu í vanda?
Vinalínan,
ókeypis símaþjónusta
fyrir 18 ára og eldri, er opin
á hverju kvöldi frá 20–23.
100% trúnaði heitið.
8. tbl. 2004 umbrot hbb 18.2.2004 14:07 Page 24