Víkurfréttir - 19.02.2004, Qupperneq 25
FRÉTTASÍMINN
898 2222
Vaktaður allan sólarhringinn!
VÍKURFRÉTTIR I 8. TÖLUBLAÐ 2004 I FIMMTUDAGURINN 19. FEBRÚAR 2004 I 25
➤ E l í a s K r i s t j á n s s o n , fo r e l d r i o g á h u ga m a ð u r u m f í k n i e f n a fo r va r n i r, s k r i f a r :
Nýjustu rannsóknir breskra vísindamanna sýna að:
Börn hætta andlegri heilsu sinni með notkun kannabisefna
og tóbaks, auk neyslu áfengis. Samkvæmt nýbirtri rann-
sókn á Bretlandseyjum kemur fram að ungmenni, allt nið-
ur að þrettán ára aldri, sem játað hafa
reglulega notkun kannabisefna og tóbaks
eru sjö sinnum líklegri til að verða fyrir
andlegum röskunum að áliti sérfræðinga.
Drykkja enn yngri barna leiðir svo aftur
til tvöfallt meiri líkinda til að eiga við
andlegar raskanir, síðar á lífsleiðinni. Við
sérstakar þunglyndisaðstæður, eiga börn
sem neyta kannabis og eða áfengis, tuttugu og sex falda
áhættu, miðað við aðra, við að bíða andlegt skipsbrot.
Niðurstöður þessar sem voru birtar í „British Journal
Psychiatry“, eru nýjustu viðvaranir sérfræðinga við áhrif-
um kannabis á heila ungmenna. Aðrar rannsóknir útgefn-
ar á s.l. ári sýndu fram á tengsl milli kannabis og aukinnar
áhættu á andlegum/geðveikislegum, heilsufars og félags-
legum vandamálum ungmenna. Þetta er fyrsta rannsóknin
sem framkvæmd hefur verið, með afgerandi hætti. Lækn-
ar hafa nú þegar áhyggjur af aukinni áhættu á höfuð, háls
og lungu með tilliti til krabbameins.
Efnin hafa hærra tjöruinnihald í dag, en nokkru sinni fyrr,
þ.e. þau eru talinn u.þ.b. 10 sinnum sterkari en á sjötta og
sjöunda áratugnum. Þar eð þau geti innihaldið allt að 10
sinnum meira af tetrahydrocannabinol (THC). Efnið sem
gerir vímuna virka, hefur áhrifin á heilann, með því að
senda boð frá einni frumu til annarrar. Rof á þessu fína
efnasambandi í heilanum getur valdið minnisleysi,
óþreyju og öðrum ofangreindum kvillum. THC efnið í
kannabisresin getur verið allt frá 1% (mjög milt) upp að
26% (mjög sterkt).
Kannabisreykingar ungmenna eru stöðugt að aukast á
Bretlandeyjum, samanber obinberar tölur, sem sýna að
þriðji hver fimmtán ára unglingur hefur þá þegar reynt
efnið. Síðustu rannsóknir Dr. Michaels Farrells og starfs-
bræðra við Maudsley sjúkrahúsið í Suður London, sýndu
sterk tengsl á milli notkunar tóbaks, áfengis og kannabis
og andlegra/félagslegra vandamála. Óttast er að hin út-
breidda notkun efnisins á meðal ungmenna geti ýtt af stað
öldu geðsjúkra einstaklinga út í þjóðfélagið. Rannsökuð
voru 2.624 börn, á aldrinum 13-15 ára. Foreldrar og
kennarar voru einnig teknir í viðtöl. Tíunda hvert barn átti
við ýmis geðræn vandamál að stríða. Fram kom að tíð
notkun eins ofantalinna efna, jók áhættu á notkun hinna
tveggja. Þau ungmenni sem ekki nota tóbak eru talin ólík-
legri að byrja neyslu á kannabis. Upphaf kannabisneysl-
unnar reyndist svo jafnvel upphaf neyslu annarra sterkari
ólöglegra fikniefna (e-pillan, amfetamin,heróín.) Þau
ungmenni sem bjuggu hjá einstæðum foreldrum voru tvö-
fallt líklegri til að hafa reynt efnið, en þau sem komu frá
foreldrum í sambúð.
Dr. Farrell segir: hinir reglubundnu neytendur sem neyta
allra þriggja fíkniefnanna eru stöðugt í meiri hættu á geð-
heilbrigðis röskunum svo og á líkamlegum truflunum en
aðrir. Telur hann mikla þörf á frekari rannsóknum þar á.
Aðrar rannsóknir hafi margsannað að notkun kannabis
tengist aukinni hættu á þunglyndi.
Ungmennin og foreldrarnir misskilja skilaboðin!
Einstakir þingmenn hafa verið gagnrýndir fyrir að tjá sig
um að kannabisefnin séu ekki eins hættuleg og önnur
ólögleg fíkniefni, með því að færa þau úr flokki B- í flokk
með svokölluðum C-lyfjum, (þ.e. lögleg en lyfseðilsskyld
lyf) s.s. steralyfja, róandi lyfja og sterkra verkjalyfja. Of-
antaldar breytingar í lögum hjá bretum taka gildi í byrjun
þessa árs. Nýju lögin koma til með að heimila neyslu á
efninu til þeirra sem náð hafa 18 ára aldri, svo sem ef
neyslan fer fram utan almenninga á heimilum. Ólöglegt
teljist hins vegar athæfið, ef höndlun efnissins fer fram ut-
anhúss, í nálægð barnaskólalóða, á kaffihúsum, eða á
þeim stöðum þar sem almenningur kemur saman. Ung-
menni undir 18 ára aldri fái hinsvegar án nokkurra undan-
bragða þá sömu meðferð og tíðkast hefur komist þau í
kast við yfirvöld vegna efnisins. Komið hefur fram í
könnunum að gríðarleg aukning á neyslu hefur átt sér stað
hjá breskum ungmennum, eftir að tilkynnt var um fyrir-
hugaðar breytingar á lögum. Þar eð ungmennin og jafnvel
foreldrarnir (sem eru að vísa til eigin reynslu þegar efnið
var allt að tíu sinnum veikara) hafi misskilið skilaboðin
með því að álykta að kannabisefnin séu sem næst hættu-
laus. Samkvæmt nýjustu könnunum þá er stígandi verð-
lækkun á efninu á bretlandseyjum 66 pund fyrir únsuna (1
únsa 28 gr) af kannabisresin. Stöðugt auknar sannanir eru
fyrir því að örsök bílslysa megi rekja til ökumanna í
kannabisvímu. Helstu skýringar stjórnvalda fyrir ofan-
greindum breytingum á lögunum eru: að yfirvöld eyði nú
síauknum tíma og kröftum við að eltast við kannabisefnin
og neytendur þeirra á kostnað sterkari efnanna. Við ofan-
greindar breytingar geti yfirvöld því einbeitt sér í ríkari
mæli að öðrum hættulegri og sterkari fíkniefnum.!
Elías Kristjánsson,
Reykjanesbæ,
foreldri og áhugamaður
um fíkniefnaforvarnir
Þýtt og staðfært að hluta úr bresku pressunni.
Kannabisefnin allt að tíu sinnum sterkari en í tíð foreldranna!
20 daga fangelsi fyrir að nefbrjóta konu
Maður um fertugt var í gær dæmdur í 20 daga fangelsi í Héraðsdómi
Reykjaness fyrir að slá konu í andlitið á veitingastaðnum Ránni í
Keflavík þannig að hún nefbrotnaðir.
Maðurinn var ákærður fyrir líkamsárás en brotið átti sér stað í október
á síðasta ári. Í dómnum kemur fram að maðurinn hafi slegið til kon-
unnar vegna móðgandi ummæla hans í hennar garð og að hann hafi
átt upptökin að átökum milli hans og konunnar. Maðurinn var einnig
dæmdur til að greiða konunni 180 þúsund krónur.
Rúmlega 400 án vinnu á Suðurnesjum
Alls eru 404 manns atvinnulausir á Suðurnesjum, 169 konur og 235
karlar. Á vefsíðu Svæðisvinnumiðlunar Suðurnesja eru birtar auglýs-
ingar um störf í boði og eru flest störfin á sviði sjávarútvegs. Einnig er
auglýst eftir aðstoðarmanni pípara og eftir verkamönnum í kjöt-
vinnslu. Alls eru 29 stöðugildi í boði.
Innilegar þakkir til allra þeirra er
auðsýndu okkur samúð og vinarhuga
við andlát og útför elskulegrar
eiginkonu minnar, móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
Sérstakar þakkir til starfsfólks D-álmu
Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja.
Guð blessi ykkur öll.
Stefán Egilsson,
Alma Valdís Sverrisdóttir, Egill Jónsson,
Ástdís Björg Stefánsdóttir, Sveinbjörn Sigurður Reynisson,
Sigurður Júlíus Kristinsson, Sólborg Bjarnadóttir,
Kristinn Kristinsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ágústu Kristínar Ágústsdóttur,
Kirkjuvegi 11,
Keflavík,
8. tbl. 2004 umbrot hbb 18.2.2004 14:04 Page 25