Víkurfréttir - 02.12.2004, Blaðsíða 22
22 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
8 Stálpípuverksmiðja í Helguvík
A
TV
IN
N
U
LÍ
F
Bandaríska fyrirtækið International Pipe and Tube hefur fengið frest
til 24. febrúar til lokaundir-
búnings vegna stálpípuverk-
smiðju í Helguvík. Fimm mán-
aða frestur fyrirtækisins sem
gefinn var 24. júní rann út 24.
nóvember sl. Barry Bernstein
forstjóri fyrirtækisins segir í
viðtali við Víkurfréttir í dag að
reiknað sé með að undirbún-
ingi vegna verkefnisins verði
lokið á fyrsta fjórðungi næsta
árs. Segist hann vonast til að
framkvæmdir við verksmiðj-
una hefjist í apríl.
Í september sótti fyrirtækið um
aðra lóð í Helguvík; lóð sem er
ofar og átti hún að vera undir
smærri verksmiðju. Fyrirtækið
hefur þegar fest kaup á tækjum
og búnaði frá Kanada sem átti
að reisa á minni lóðinni í Helgu-
vík. Gerði atvinnu- og hafnar-
ráð samning við IPT um að ef
framkvæmdir á lóðinni væru
ekki hafnar fyrir 20. nóvember
þá myndi samningurinn ganga
úr gildi. Í verksmiðjunni átti að
framleiða mun stærri stálrör en
framleiða á í verksmiðjunni við
höfnina. Að sögn Barry Bern-
stein mun það ráðast á næstu
tveimur vikum hvort farið verði
út í framkvæmdir á smærri lóð-
inni. Segir Barry að kostnaðará-
ætlun vegna uppsetningu verk-
smiðjunnar hafi reynst meiri en
upphaflega var gert ráð fyrir.
Skrifað undir fyrir
tveimur og hálfu ári
Tvö og hálft ár er síðan skrifað
Hvernig standa málin varð-
andi verksmiðjuna í Helguvík?
Það er skriður á málinu. Við
erum komnir með banka í
Hollandi sem mun fjármagna
verkefnið. Við getum ekki gefið
upp hvaða banka er um að
ræða því á hans vegum mun
verða gefin út fréttatilkynning.
Hvenær verður það?
Ég veit ekki alveg hvenær
það verður. Bankinn er að
lána okkur 45 milljónir doll-
ara og við stjórnum því ekki
hvenær þeir gefa út frétta-
tilkynningu um málið.
Þetta verkefni hefur
tekið lengri tíma en þið
áætluðuð er það ekki?
Svona verkefni taka langan
tíma. Þegar við byggðum upp
verksmiðjuna í Eistlandi þá
átti það verkefni að taka tvö ár
en tók fjögur. Það er sama hve
mikinn tíma þú ætlar í verkefni
sem þetta - því miður verður
undirbúningstíminn alltaf
lengri en áætlanir gera ráð fyrir.
Hvað hefur undirbúning-
urinn fyrir þetta verkefni
tekið langan tíma?
Við höfum unnið að þessu
verkefni í næstum tvö ár. En við
erum tveimur árum á undan
ef við berum þetta saman
við verkefnið í Eistlandi.
Hvenær heldurðu að hlut-
irnir liggi ljósir fyrir?
Við reiknum með að ljúka
undirbúningi á fyrsta ársfjórð-
ungi næsta árs, líklega í febr-
úar eða mars. Lögfræðingar
eru nú að fara yfir málin.
Telurðu þá að framkvæmdir
við verksmiðjuna hefj-
ist í mars eða apríl?
Já, við reiknum með að
geta hafið byggingafram-
kvæmdir í apríl. Við vinnum
eftir þeirri áætlun núna.
Nú hafið þið sótt um aðra
lóð í Helguvík og fengið
henni úthlutað þar sem
áætlanir voru uppi um að
reisa minni verksmiðju.
Hvernig gengur sú vinna?
Við eigum þá verksmiðju
sem við keyptum í Kanada.
Hinsvegar varð kostnaðará-
ætlunin fyrir uppsetningu
verksmiðjunnar mun hærri
en við gerðum ráð fyrir og
þessa dagana erum við að end-
urmeta kostnaðaráætlunina.
Þannig að þið eruð ekki
hættir við uppsetningu
þeirrar verksmiðju?
Nei, en við þurfum meira fjár-
magn til og við erum að yfirfara
málið varðandi fjármögnun.
Telurðu líklegt að þið hefjið
byggingaframkvæmdir við
þá verksmiðju fljótlega?
Við erum með þetta verkefni
á hliðarlínunni og það gæti
farið á báða vegu. Undirbún-
ingur stærri verksmiðjunnar
gengur vel en við munum
taka ákvörðun á næstu vikum
hvað við gerum varðandi
minni verksmiðjuna.
Ertu bjartsýnn á að þetta
gangi allt saman?
Já, ég er mjög bjartsýnn varð-
andi stærri verksmiðjuna.
Hvað varðar þá minni þá varð
kostnaðurinn meiri en við
áætluðum og ekki er enn ljóst
hvort af því verkefni verði.
Hafið þið gert sölusamninga
varðandi ykkar framleiðslu?
Okkar viðskiptavinir bíða eftir
framleiðslu okkar, en það eru
ennþá tvö ár þangað til við
getum farið að framleiða.
Margir íbúa Suðurnesja
virðast hafa misst trúna á að
stálpípuverksmiðja í Helguvík
muni nokkurn tíma rísa. Hvað
hefurðu að segja um það?
Það var sama vandamálið uppi
í Eistlandi þegar við vorum að
undirbúna verksmiðjuna þar
í landi. Allir sögðu að þetta
ætti ekki eftir að verða en
svo sannarlega varð þetta að
veruleika - tók bara fjögur ár
í stað tveggja. Það tekur tíma
að undirbúa og koma stórum
verkefnum á koppinn. Við
erum að tala um heildarfjárfest-
ingu upp á 80 milljónir dollara.
Þetta eru miklir peningar og
það tekur sinn tíma að koma
verkefni sem þessu saman.
16. maí 2002
Aukafundur í bæjarstjórn Reykjanesbæjar
vegna stálpípuverksmiðjunnar
18. maí 2002
Samningur um stálpípuverksmiðju sam-
þykktur í bæjarstjórn Reykjanesbæjar
24. maí 2002
Samningar um byggingu stálpípuverksmiðju
í Helguvík undirritaðir á Ránni
14. mars 2003
Framkvæmdir hefjast á
lóð IPT í Helguvík
31. mars 2003
IPT semur við Daewoo
International Corporation um
byggingu 18 þúsund fermetra verk-
smiðju í Helguvík. Gert ráð fyrir
að verksmiðjan verði tilbúin á árinu 2005.
2. apríl 2003
Fréttir þess efnis að IPT hafi tekið frá tvær lóðir
til viðbótar þeirri við höfnina í Helguvík.
11. september 2003
Greint frá samningi IPT við Connel Finance
Corporation um yfirumsjón fjármögnunar verkefnisins.
10. desember 2003
Fulltrúar IPT í Helgu-
vík - segja ákvörðun um
byggingu verksmiðjunnar
tekna á næstu vikum.
30. janúar 2004
Tilkynnt að fjármögnunarferli hafi dregist.
29. apríl 2004
Forstjóri IPT segir fjármögnun verksmiðjunnar á góðri leið.
24. júní 2004
IPT gefinn fimm mánaða frestur til að ljúka fjármögnun
og undirbúningi verkefnisins. Lóð fyrirtækisins tilbúin.
16. september 2004
Fréttir um að IPT ætli að reisa 9 þúsund
fermetra verksmiðju á nýrri lóð. Vonast
til að framkvæmdir hæfust í október.
Frestur gefinn til 20. nóvember um að
framkvæmdir hefjist fyrir þann tíma.
20. nóvember 2004
Frestur vegna minni verksmiðjunnar rennur út.
24. nóvember 2004
Frestur vegna stærri verk-
smiðjunnar rennur út.
30. nóvember 2004
IPT gefinn frestur til 24. febrúar 2005 varð-
andi stærri verksmiðjuna.
Á næstu tveimur vikum kemur í ljós hvort
minni verksmiðjan verði reist.
30 mánuðir
í pípunum
Barry Bernstein forstjóri International Pipe and Tube í VF-viðtali:
BEÐIÐ EFTIR FRAMLEIÐSLU
ÓBYGGÐRAR VERKSMIÐJU
Enn óvissa með stálpípuverksmiðjuna
- forstjóri IPT vonast til að geta byrjað að byggja í apríl á næsta ári!
Miðað við nýjustu áætlanir fyrirtæk-
isins er í fyrsta lagi gert ráð fyrir að
verksmiðjan taki til starfa eftir tvö ár. N
ýj
as
t!
Ný
ja
st
!