Víkurfréttir - 02.12.2004, Síða 30
30 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Þrjú Norðurlandamet og átján Íslandsmet voru slegin á Reykjanesmót-
inu í kraftlyftingum sem var
haldið í Íþróttahúsinu í Njarð-
vík laugardaginn 13.nóvem-
ber. Mótshaldari var Massi,
Lyftinga- og líkamsræktardeild
UMFN, en mótið var haldið til
styrktar Allý litlu.
Keppnisgjald og aðgangseyrir
rann til hennar, alls 67.000 kr.,
en auk þess lét Massi af hendi
rakna 50.000 kr. svo að samtals
söfnuðust 117.000 kr. á þessu
móti. Alls mættu 16 kepp-
endur að þessu sinni til leiks
frá flestum stöðvum á landinu.
Þetta öfluga mót er eitt stærsta
mótið á mótaskrá Kraftlyftinga-
sambands Íslands.
Strax í fyrstu lyftum fóru metin
að falla. Fyrst ur sté fram á
gólfið Hörður Birkisson. Hann
þríbætti Íslandsmet öldunga
í 67.5kg flokki í hnébeygju í
130kg og tvíbætti metið í bekk-
pressu í 90kg og að lokum bætti
hann samanlagða árangurinn
í 395kg. Halldór Eyþórsson tví-
bætti hnébeygjumetið í 82.5kg
flokki, lyfti fyrst 285 og svo
292.5kg. Þá setti hann Íslands-
met öldunga í samanlögðum
árangri 722.5kg. Jón Gunnar
Hannesson bætti öldungametið
í hné beygju í 75kg flokki í
165kg og svo bætti hann metið í
bekkpressu í sama flokki 87.5kg.
Halldór Eyþórsson tvíbætti hné-
beygjumetið í 82.5kg flokki,
lyfti fyrst 285 og svo 292.5kg.
Þá setti hann Íslandsmet öld-
unga í samanlögðum árangri
722.5kg. Jón Gunnarsson tví-
bætti Norðurlandamet öldunga
í 90kg flokki í hnébeygju, lyfti
fyrst 312.5 og síðan 322.5kg.
Þá bætti hann sam an lagða
metið í 830kg. Gamla metið var
sett 1982 af Finnanum Kump-
uniemi. Dómarar með alþjóðleg
réttindi dæmdu svo metin fást
staðfest. Jón Gunnarsson þrí-
bætti Íslandsmetið í hnébeygju
í 90kg flokki, lyfti fyrst 300, svo
312.5 og svo að lokum 322.5kg.
Þá bætti Jón Íslandsmetið í
bekkpressu í sama flokki og lyfti
207.5kg og að lokum bætti hann
samanlagða árangurinn í 830kg.
Í 110kg flokki unglinga bætti
Ægir Jónsson Íslandsmetið í
bekkpressu í 222.5kg.
Í 110kg. flokki karla bætti Jakob
Baldursson Íslandsmetið í bekk-
pressu í 245kg.
Besta stigaárangri í hnébeygju
náði Auðunn Jónsson 214.5
stig.
Besta stigaárangri í bekkpressu
náði Jakob Baldursson 144.7
stig.
Besta stigaárangri í réttstöðu-
lyftu náðu Auðunn Jónsson
203.5 stig.
Besta stigaárangri í samanlögðu
náði Auðunn Jónsson 542.8
stig.
Besta stigaárangri heimamanns
í samanlögðu náði Sævar Borg-
arsson 479.0 stig.
Tilþrifabikarinn sem er veittur
þeim sem lætur verst og hæst á
palli féll Ólafi Sveinssyni í skaut.
Greiparbikarinn sem veittur var
fyrir aukagrein í mótinu sem
fólst í að keppendur og áhorf-
endur héldu á 100kg í hvorri
hönd í sem lengstan tíma féll
Halldóri Eyþórssyni í skaut og
hélt hann í 72,46.sek.
Ferðina með Icelandair til Evr-
ópu sem dreginn var úr kepp-
endum í keppninni um greipar-
bikarinn fékk Ægir Jónsson.
Þess má geta að Auðunn gaf
stigabikarinn sinn til Allýar til
minningar um mótið hennar.
Katrín móðir Allýar vildi koma
á framfæri innilegu þakklæti til
allra keppenda og áhorfenda.
Metin féllu í Ljónagryfjunni
Úrslit
vikunnar
Bikarkeppni KKÍ
Kef-Snæfell 102-86
Kef: Magnús Gunnarsson 27,
Anthony Glover 24.
Snæ: Desmond Peoples 25,
Sigurður Þorvaldsson 20.
ÍS-Njarðvík 81-130
Nja: Páll Kristinsson 27, Guð-
mundur Jónsson 24.
Keflavík B-Stjarnan 69-74
Kef: Guðjón Skúlason 27, Al-
bert Óskarsson 23.
Ljónin-Dalvík 91-60
Valur-Grindavík 89-108
Reynir-Tindastóll 71-118
Rey: Hlyn ur Jóns son 26,
Nathan Harvey 12.
Tin: Ron Robinson 27, Svavar
Birgisson 25.
Þróttur V-KFÍ 61-112
Intersport-deildin
Njarðvík-Fjölnir 98-88
Nja: Matt Sayman 26/12/11,
Friðrik Stefánsson 23/13.
Fjö: Nemanja Sovic 27/13,
Darrel Flake 26/16.
Hamar/Self.-Keflavík 92-86
Kef: Anthony Glover 39, Nick
Bradford 23.
Ham: Damon Bailey 32/10,
Marvin Valdimarsson 20/11.
Grindavík-Haukar 102-82
Gri: Darrel Lewis 26, Páll Axel
Vilbergsson 22, Guðlaugur
Eyjólfsson 19.
Hauk ar: Mir ko Viri jevic
16/10, John Waller 14.
1.deild kvenna
UMFG-UMFN 77-63
Gri: Erla Reynisdóttir 19,
María Anna Guðmundsdóttir
13.
Nja: Jaime Woudstra 20/11,
Ingibjörg Vilbergsdóttir 13.
Haukar-Keflavík 63-97
Kef: Birna Valgarðsdóttir 25,
Reshea Bristol 22.
Hau: Helena Sverrisdóttir
22/12
Hópbílabikar kvenna
Keflavík-ÍS 76-65
Kef: Anna María Sveinsdóttir
15/11, María Ben Erlings-
dóttir 15.
ÍS: Signý Hermannsdóttir
17/13, Alda Leif Jónsdóttir
14.
Héldu hreinu
í 1. leikhluta
Körfuknattleiksáhugamenn sem lögðu leið
sína á bikarleikina um helgina hafa ef til
vill haldið að þeir hefðu farið aftur í tíma
því nokkrir valinkunnir kappar sem ekki
afa látið ljós sitt skína lengi voru mættir á
völlinn.
Það voru meðal annarra stórskyttan Guðjón
Skúlason sem fór fyrir félögum sínum í
Keflavík B og sýndi að hann hefur engu
gleymt í skotunum fyrir utan þriggja stiga
línuna. Auk hans voru Albert Óskarsson
og Falur Harðarson á meðal keppenda og
stóðu fyrir sínu þó Stjarnan hafi sigrað.
Í L jónag r y f junni mát t i s j á Fr iðr ik
Ragnarsson og Jóhannes Kristbjörnsson
meðal liðsmanna Ljónanna sem fóru illa
með Dalvíkinga og hafa ekki enn tapað leik.
Kunnugleg andlit í bikarslag
SPORT
MOLAR
Logi kominn
á kreik
Körfuknattleiksmaðurinn Logi
Gunnarsson úr Njarðvík er far-
inn að spila með liði sínu Gies-
sen ‘46ers í þýsku úrvalsdeild-
inni eftir erfið meiðsl.
Logi þurfti að fara í uppskurð
á öxl á síðustu leiktíð og er rétt
að ná sér. Hann hefur þó ekki
fengið að leika mikið, en sagði
í viðtali á heimasíðu UMFN að
hann væri staðráðinn í að leggja
meira á sig og tryggja sér sess í
liðinu.
Ljónin frá Njarðvík áttu ekki
í vandræðum með Dalvíkinga
í bikarleik liðanna um síðustu
helgi. Þeir mættu grimmir til
leiks og voru yfir eftir fyrsta leik-
hluta, 25-0. Dalvíkingar komust
loks á blað í öðrum leikhluta, en
áttu aldrei möguleika á sigri og
Ljónin hafa ekki enn tapað leik
á sinni fyrstu leiktíð.
V
F-m
yn
d/Jón
B
jörn
VF-mynd/Jón Björn
Tveir sundmenn úr ÍRB munu
keppa fyrir Íslands hönd á Norð-
urlandameistaramóti unglinga í
Danmörku um næstu helgi.
Mót ið fer f ram í bæn um
Nærum sem er í nágrenni Kaup-
mannahafnar.
Landsliðsmenn ÍRB eru þau
Birkir Már Jónsson, sem skráður
er til keppni í 50, 100 og 200m
flugsundi ásamt 200 og 400m
skriðsundi, og Helena Ósk Ívars-
dóttir sem keppir í 50, 100 og
200m bringusundi.
Birkir og Helena
keppa á NM