Víkurfréttir - 02.12.2004, Qupperneq 32
32 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Knattspyrnumennirnir Þórarinn Kristjánsson og Hörður Sveinsson
frá Keflavík héldu á þriðjudag
utan til Suður-Kóreu þar sem
þeir verða við æfingar hjá lið-
inu Busan Icons í vikutíma.
Leikmennirn ir voru meðal
burðarása Keflavíkurliðsins sem
vann Bikarmeistaratitilinn í
sumar og vöktu athygli forráða-
manna félagsins.
Busan er eitt af stærstu félög-
unum þar í landi og er fjór-
faldur meistari og sigraði í Meist-
aradeild Asíu 1987.
Þjálfari liðsins er Ian Porterfield,
sem var m.a. knattspyrnustjóri
Chelsea og Aberdeen.
KFÍ-Grindavík
Grindvíkingar sækja botnlið KFÍ
heim í kvöld í 9 umferð Inter-
sport-deildarinnar. Ísfirðingar
eru alltaf erfiðir heim að sækja,
en þeim hefur ekkert gegnið á yf-
irstandandi tímabili, eru neðstir
án sigurs.
Joshua Helm hefur borið liðið
uppi og farið mikinn í sókn og
í fráköstum, en ef Gindvíkingar
taka hann úr umferð ætti eftir-
leikurinn að verða auðveldur.
Kiddi ..........................................
.....................................................
.....................................................
....................................................
......................................................
..................................
Keflvíkingar mæta Borgnes-
ingum, öðru spútnikliði vetr-
arins, í kvöld. Nýliðum Skalla-
gríms hefur gengið flest í haginn
hingað til, en nú verður leikið í
Sláturhúsinu. Þar hafa Keflvík-
ingar ekki tapað deildarleik í háa
herrans tíð og þurfa lærisveinar
Vals Ingimundarsonar að hafa
sig alla við og treysta á lukkuna.
„Skallagrímur er með flott
lið sem hefur komið á óvart í
vetur, þannig að við mætum
á fullu í þennan leik,“ segir
S igurður Ing imundarson ,
þjálfari Keflvíkinga. „Við höfum
ekki verið að leika nógu vel í
deildinni og stefnum á að bæta
ír því.“
Grannaliðin Keflavík og Grinda-
vík eigast við í 1.deild kvenna á
heimavelli hinna fyrrnefndu á
miðvikudaginn. Keflavík hefur
bor ið höf uð og herðar yfir
önnur lið í vetur en Grindavík-
urstúlkur hafa sýnt góða takta
að undanförnu og verða ekki
auðveld bráð.
Sverrir Þór Sverrisson, þjálfari
Keflavíkur, segir góðan anda
ríkja í sínum herbúðum eftir
sigurinn í hópbílabikarnum um
síðustu helgi. „Stemmningin hjá
okkur er fín. Það er stutt í Jólafrí
og við ætlum okkur að vinna
alla leiki fram að jólum til að
hafa þægilegt forskot þegar að
því kemur.“
E r l a Þ o r s t e i n s d ó t t i r h j á
Gr indavík seg i r ó far i rnar
g e g n K e f l v í k i n g u m í
Hópbílabikarnum á dögunum
ekki hafa áhrif á þennan leik.
„Við erum búnar að gleyma
honum og stefnum á að vinna
þennan leik. Við höfum verið
á réttri leið að undanförnu og
stígandinn góður í hópnum og
stefnum á að gera enn betur.“
Njarðvíkingar mæta Stúdínum í
1. deild kvenna í körfuknattleik
á mánudag. ÍS hefur spilað vel í
vetur en Agnar Mar Gunnarsson,
þjálfari Njarðvíkinga, segir að
sigur sé möguleiki. „Þær eru að
spila á litlum hópi þannig aðef
við mætum tilbúin til leiks og
nýi leikmaðurinn kemur vel út
eigum við að geta unnið þær.“
Keflvíkingar til Suður-Kóreu
Davíð Páll Hermannsson og félagar hans í Grindavík
unnu sannfærandi sigur á Haukum í Intersport-deildinni í
síðustu viku. Þeir fylgdu sigrinum eftir með því að slá Val
út í 32-liða úrslitum Bikarkeppni KKÍ og virðast komnir á
beinu brautina á ný.
Í kvöld mæta þeir KFÍ á Ísafirði og er Páll Axel
Vilbergsson, fyrirliði þeirra, viss um að leikurinn verði
ekki auðveldur þrátt fyrir slaka frammistöðu Ísfirðinga
framan af vetri „Við höfum alltaf þurft að hafa fyrir
sigrunum á Ísafirði og þessi leikur verður engin
undantekning. Við höfum verið að spila betur undanfarið,
en getum samt ekki leyft okkur að vera værukærir.“
Njarðvík mætir ÍS
Grannaslagur í
kvennakörfunni
Skallarnir mæta
í Sláturhúsið
Keflvíkingar hafa hafið við-
ræður við aðra aðila en Guð-
jón Þórðarson um þjálf un
knattspyrnuliðs félagsins eftir
að frestur sem Guðjón fékk
til að svara tilboði þeira rann
út í vikunni. Rúnar Arnarson,
formaður knattspyrnudeildar-
innar, segir þó ekkert ákveðið í
þeim málum enn. „Við byrjum
að ræða við aðra aðila í dag (á
miðvikudaginn). Við höfum
ekki slitið samningarviðræðum
við Guð jón form lega, en
reiknum hins vegar ekki sérstak-
lega með honum.”
Rúnar bætti því við að þessar
tafir væru bagalegar og væri
ekki laust við að nokkur upp-
lausn skap að ist, m.a. hvað
varðar leikmannamál, auk þess
sem ástandið væri ekki gott
fyrir móralinn í hópnum.
„Við höf um samt eng ar
áhyggjur af þessum málum og
stefnum að því að klára þessi
mál fyrir helgina.”
Í umfjöllun Víkurfrétta um
mál ið í síð ustu viku ýj aði
heimildarmaður blaðsins að
því að sú ákvörðun að önnur
lið en Keflavík og Njarðvík
fengju ekki lengur æf ingar-
tíma í Reykjaneshöll stafaði að
nokkru leyti af því að Grind-
víkingar hefðu fengið Milan
Jankovic, þáverandi þjálfara
Keflvíkinga til sín. Gunnar
Oddson, formaður Menningar-
íþrótta og tóm stunda ráðs
Reykjanesbæjar, vill hins vegar
taka fram að ekkert er hæft í
þeirri fullyrðingu.
Keflvíkingar ræða við aðra aðila
-Guðjón þó ekki úti úr myndinni
VF-mynd/Þorgils
Leikmenn Ljónanna eru miklir mömmudrengir og ætla því að
heiðra mömmur sínar og annarra með því að bjóða þeim frítt á
næsta heimaleik, sem er á sunnudag 5. des. kl. 15:30.
Allar mömmur eru velkomnar og eftir leikinn verður þeim boðið
upp á kaffi, kökur og annað góðgæti.
Við vonumst til að sjá sem flestar mömmur á leiknum og mamma,
ég vona að þú komist.
Kveðja, Ljónin
Mömmudagur Ljónanna
Fimleikastúlkur úr Keflavík náðu góðum árangri á Haustmóti í tromp-
fimleikum sem fór fram í Ágarði í Garðabæ á dögunum. Þar náðu þær
öðru sæti á eftir liði Selfoss, en Fylkir var í þriðja sæti.
Stúlkurnar frá Keflavík hafa verið að æfa Trompfimleika að jafnaði í 2
til 4 ár, en sumar þó nokkuð lengur.
Fengu silfur á fimleikamóti
Ferskar Íþróttafréttir daglega
vf.is
LEIKIR
VIKUNNAR