Víkurfréttir


Víkurfréttir - 02.12.2004, Side 35

Víkurfréttir - 02.12.2004, Side 35
VÍKURFRÉTTIR I 49. TÖLUBLAÐ 2004 I FIMMTUDAGURINN 2. DESEMBER 2004 I 35 Allir velkomnir Bókakonfekt Listasafni Reykjanesbæjar Duushúsum, laugardaginn 6. desember kl. 10 Höfundar lesa úr verkum sínum Barn að eilífu eftir Sigmund Erni Rúnarsson Arabíukonur eftir Jóhönnu Kristjónsdóttur Dauðans óvissi tími eftir Þráin Bertelsson Jóladýrin og Bátur með segli og allt eftir Gerði Kristnýju Guðjónsdóttur 8 Nýr útibússtjóri Landsbankans í Keflavík: Friðgeir Magni Baldursson tók við starfi útibússtjóra Landsbankans í Keflavík í síðustu viku. Hann ekki alls ókunn- ugur svæðinu því að hann var svæðisstjóri yfir Suðurnesjum, Suðurlandi og Hafnarfirði í þrjú ár fram í nóvember í fyrra. „Svo var ég úti- bússtjóri í Grindavík í tvö ár frá 1996 til 1998 þannig að það má segja að ég þekki bæði menn og málefni á svæðinu. Þetta er því svolítið eins og að koma til baka.” Friðgeir, sem var útibússtjóri á Selfossi síðasta árið, hefur unnið hjá Landsbankanum frá því að hann lauk námi sem rekstrarhagfræðingur frá Háskólanum í Stokkhólmi árið 1990. Hann er giftur Björgu Pétursdóttur og eiga þau fimm börn frá aldrinum 29 ára til 8 ára. Hann segir að ákvörðunin um að færa sig frá Selfossi til Kefla- víkur hafði ekki haft langan aðdraganda. „Það var ekki síst fyrir mín orð að ég færði mig yfir nánast samdægurs því mér finnst sjálfum óþægilegt að sitja á einum stað og hugsa um annan. Ég átti líka góðan staðgengil sem tók við af mér á Selfossi.” Friðgeir segist lítast vel á starfið sem og allt um- hverfi í Reykjanesbæ og á svæðinu. „Mér sýnist að hér sé mikið um að vera og ég er búinn að ræða við marga síðan ég kom. Menn tala um þessa uppbyggingu sem er að eiga sér stað þar sem er skortur á lóðaframboði og jafnvel iðnað- armönnum þannig að hér er heilmikið um að vera og er gaman að taka þátt í því.” Fjölskylda Friðgeirs býr enn á Selfossi þannig að hann keyrir á milli á hverjum degi. „Ég nýt góðs af því að skoða landið á leiðinni í vinnu þannig að þetta er ekki stórt vandamál. Sérstaklega þar sem við höfum varla séð snjó hér í mörg ár. Ég tek við góðu búi með góðum mannskap þar sem við erum með öfluga starfsemi hér í Reykja- nesbæ og Sandgerði auk flugvallasvæðisins. Við hugsum fram á veginn og þetta er spennandi verkefni sem á vel við mig.” Þekkir menn og málefni á svæðinu og tekur við góðu búi Keypt hafa verið hjarta-stuð tæki í öl l skip Þorbjarnar Fiskaness í Grindavík. Jafnframt verða haldin námskeið fyrir áhafnir skip anna þar sem með ferð tækisins verður kennd ásamt grundvallaratriðum í endur- lífgun af völdum hjartaáfalls. Hjartastuðtækin eru af gerð- inni AccessAED og eru afar handhæg og fyrirferðarlítil. Þegar hjartastopp á sér stað er ástæðan oftast af völdum takt- truflana í hjartanu. Algengasta orsökin er slegaflökt í hjartanu sem dælir þá engu blóði. Þegar hjartastopp verður missir sjúk- lingurinn meðvitund, hættir að anda og púls mælist ekki. Þegar þannig er komið er sjúkling- urinn við dauðans dyr og því má engan tíma missa ef takast á að bjarga lífi hans. Í slíkum tilvikum eru hjartastuðtækin oft það eina sem orðið getur til bjargar. Hjartastuðtæki um borð í öll skip Þor- bjarnar Fiskaness Fréttirnar og mannlífið í jólaösinni!

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.