Víkurfréttir - 02.12.2004, Blaðsíða 35
VÍKURFRÉTTIR I 49. TÖLUBLAÐ 2004 I FIMMTUDAGURINN 2. DESEMBER 2004 I 35
Allir velkomnir
Bókakonfekt
Listasafni Reykjanesbæjar Duushúsum,
laugardaginn 6. desember kl. 10
Höfundar lesa úr verkum sínum
Barn að eilífu
eftir Sigmund Erni Rúnarsson
Arabíukonur
eftir Jóhönnu Kristjónsdóttur
Dauðans óvissi tími
eftir Þráin Bertelsson
Jóladýrin
og Bátur með segli og allt
eftir Gerði Kristnýju Guðjónsdóttur
8 Nýr útibússtjóri Landsbankans í Keflavík:
Friðgeir Magni Baldursson tók við starfi útibússtjóra Landsbankans í Keflavík í síðustu viku. Hann ekki alls ókunn-
ugur svæðinu því að hann var svæðisstjóri
yfir Suðurnesjum, Suðurlandi og Hafnarfirði í
þrjú ár fram í nóvember í fyrra. „Svo var ég úti-
bússtjóri í Grindavík í tvö ár frá 1996 til 1998
þannig að það má segja að ég þekki bæði menn
og málefni á svæðinu. Þetta er því svolítið eins
og að koma til baka.”
Friðgeir, sem var útibússtjóri á Selfossi síðasta
árið, hefur unnið hjá Landsbankanum frá því
að hann lauk námi sem rekstrarhagfræðingur
frá Háskólanum í Stokkhólmi árið 1990. Hann
er giftur Björgu Pétursdóttur og eiga þau fimm
börn frá aldrinum 29 ára til 8 ára. Hann segir að
ákvörðunin um að færa sig frá Selfossi til Kefla-
víkur hafði ekki haft langan aðdraganda.
„Það var ekki síst fyrir mín orð að ég færði mig
yfir nánast samdægurs því mér finnst sjálfum
óþægilegt að sitja á einum stað og hugsa um
annan. Ég átti líka góðan staðgengil sem tók við
af mér á Selfossi.”
Friðgeir segist lítast vel á starfið sem og allt um-
hverfi í Reykjanesbæ og á svæðinu. „Mér sýnist
að hér sé mikið um að vera og ég er búinn að
ræða við marga síðan ég kom. Menn tala um
þessa uppbyggingu sem er að eiga sér stað þar
sem er skortur á lóðaframboði og jafnvel iðnað-
armönnum þannig að hér er heilmikið um að
vera og er gaman að taka þátt í því.”
Fjölskylda Friðgeirs býr enn á Selfossi þannig að
hann keyrir á milli á hverjum degi. „Ég nýt góðs
af því að skoða landið á leiðinni í vinnu þannig
að þetta er ekki stórt vandamál. Sérstaklega þar
sem við höfum varla séð snjó hér í mörg ár.
Ég tek við góðu búi með góðum mannskap þar
sem við erum með öfluga starfsemi hér í Reykja-
nesbæ og Sandgerði auk flugvallasvæðisins. Við
hugsum fram á veginn og þetta er spennandi
verkefni sem á vel við mig.”
Þekkir menn og
málefni á svæðinu
og tekur við góðu búi
Keypt hafa verið hjarta-stuð tæki í öl l skip Þorbjarnar Fiskaness
í Grindavík. Jafnframt verða
haldin námskeið fyrir áhafnir
skip anna þar sem með ferð
tækisins verður kennd ásamt
grundvallaratriðum í endur-
lífgun af völdum hjartaáfalls.
Hjartastuðtækin eru af gerð-
inni AccessAED og eru afar
handhæg og fyrirferðarlítil.
Þegar hjartastopp á sér stað er
ástæðan oftast af völdum takt-
truflana í hjartanu. Algengasta
orsökin er slegaflökt í hjartanu
sem dælir þá engu blóði. Þegar
hjartastopp verður missir sjúk-
lingurinn meðvitund, hættir að
anda og púls mælist ekki. Þegar
þannig er komið er sjúkling-
urinn við dauðans dyr og því
má engan tíma missa ef takast
á að bjarga lífi hans. Í slíkum
tilvikum eru hjartastuðtækin
oft það eina sem orðið getur til
bjargar.
Hjartastuðtæki um
borð í öll skip Þor-
bjarnar Fiskaness
Fréttirnar
og mannlífið
í jólaösinni!