Víkurfréttir


Víkurfréttir - 03.02.2005, Síða 27

Víkurfréttir - 03.02.2005, Síða 27
VÍKURFRÉTTIR I 5. TÖLUBLAÐ I FIMMTUDAGURINN 3. FEBRÚAR 2005 I 27 Einn góðan janúardag sem við íbúar Reykja-nesbæjar fengum fór ég ásamt dóttur minni, sem er á þriðja aldursári, út með skóflu og fötu og var ferðinni heitið á leikvöll húsanna í kring. Þegar þangað var komið lá auðvitað mikið á að hefjast handa við að moka í fötuna. En allt kom fyrir ekki. Mér til mikillar undrunar var sandkass- inn í svo óásættanlegu ástandi að ekki væri köttum bjóðandi! Svo útskitinn sandkassi held ég að hafi ekki sést áður og hef ég nú farið á marga leikvelli hér í bænum á síðustu árum. Með öllum brögðum og ýmsum út- skýringum fékk ég dóttur mína til að hætta við að fara í sand- kassann því við vildum skiljan- lega ekki fá „kisukúk” á skófl- una okkar. Þessi ferð endaði því þannig að barninu, sem hefur mest gaman af því að moka og búa til sandkökur, var vísað frá sandkassanum og fengið til að leika að öllu öðru á leikvellinum og móðirin fékk nóg. Næstu daga á eftir fengum við foreldr- arnir að heyra spurningar barns- ins um það hvort þessi köttur hefði kúkað í sandkassann þegar kettirnir gengu framhjá húsi okkar eða bíl. Mér sem móður og íbúa Reykja- nesbæjar er hreinlega nóg boðið. Þó svo ég hafi alltaf verið mikill dýraunnandi er þetta ekki að neinu leyti ásættanlegt. Það eru margir sem vildu eiga gæludýr en vegna mikillar ábyrgðar sem fylgir því að eiga blessuð dýrin eru margir sem hreinlega hætta við að eignast eitt slíkt. En þeir sem eiga gæludýr eru margir ekki að standa sig nógu vel í því að bera ábyrgð á þeim. Sem betur fer eru þessir eigendur í minnihluta en þó þykir mér það miður að þeir skuli yfir höfuð vera til. Ég veit að það er ekkert sem bannar lausagang katta hér í bænum ENNÞÁ en ég vona að því verði breytt því að þetta hefur verið vandamál til margra ára ekki bara hér heldur á land- inu öllu. Mér finnst þó bót í máli að nú beri kattaeigendum að skrá ketti sína eins og hundar hafa verið skráðir til fjölda ára. En þá verður líka að gera eitt- hvað í því ef eigendur gera það ekki og ganga á eftir því að það sé gert. En það eina, að mínu mati, sem getur útrýmt þessum vanda er ef að lausagangur katta verið bannaður með öllu með sömu reglugerð sem sett var um hundahald. En það er auðvitað á valdi bæjarstjórnar okkar og heilbrigðisyfirvalda. Í 8. grein samþykktar um katta- hald á Suðurnesjum segir meðal annars; „Leyfishafa er skylt að gæta þess að köttur hans valdi ekki tjóni, hættu, óþægindum, óþrifum eða raski ró manna.” Það sem blasir við okkur núna í hverfinu eru óþægindi, óþrif og ég vil einnig segja tjón því við vitum það öll að þegar svona gerist þarf einhver að þrífa þetta upp og er það að mínu mati nauðsynlegt að tæma kassann og fá nýjan sand í hann áður en mín börn fá að leika sér í honum aftur. En hversu lengi það endist er önnur saga. Með þessu sjáum við að þetta er svo sannarlega brot á þessum samþykktum sem liggja fyrir. En þetta er einmitt það sem er að gerast á hverjum degi allt í kringum okkur. Og hvað erum við að gera í þessu? Ekki neitt. Bara láta þetta fara í taugarnar á okkur og gleyma því svo þangað til að það fer aftur í taugarnar á okkur. Að saklaus börn geti ekki farið út að leika sér á eigin spýtur án þess að foreldrar þurfi nánast að yfirfara leikvöllinn er fyrir neðan allar hellur. Ég er viss um að ég tala fyrir hönd marga for eldra hér í bænum með þessum orðum. Ég er ekki að úthúða köttum bæjarins eða að setja alla undir sama hatt en eitt vil ég vita. Er ekki betra að eigendur katta beri meiri ábyrgð á þeim eins og eig- endur hunda þurfa að gera en að við (sem eigum ekki ketti og höfum þar með valið að þurfa ekki að hafa áhyggjur af þessu) þurf um að hafa áhyggjur af þessum hlutum? Þessari spurn- ingu varpa ég fram og vona að umræða hefjist um þessi mál sem hafa svo oft verið rædd við eldhúsborð íbúa hér til fjölda ára. Bæjarstjórn okkar hlýtur að geta gert eitthvað til að bæta úr þessu og það hlýtur að vera eitthvað sem við íbúar bæjarins getum gert með þeirra aðstoð til að losna við þetta vandamál fyrir fullt og allt. Með von um góð viðbrögð, Móðir barna í Reykjanesbæ. Köttur í bandi? - Vangaveltur móður 8 Móðir í Reykjanesbæ skrifar: öKASSINNPÓSTSendið okkur aðsendar greinar á:postur@vf.is Það má með sanni segja að 24. janúar hafi verið óheilla dag ur eins og spáð var. Það var hringt á heim- ili mitt þennan dag frá Heil- brigðiseftirliti Suðurnesja og tilkynnt að búið væri að hand- sama heimilisköttinn og lausn- argjalds krafist kr. 22.700 og að auki kr. 4.500 fyrir örmerkingu samtals 27.200 að öðrum kosti yrði kötturinn aflífaður. Mikið fát kom á heimilisfólkið og góð ráð dýr enda er hann orð- inn hluti af fjölskyldunni orð- inn tveggja og háls árs, ljúfur og góður. Úr varð að lausnargjaldið var greitt og hann færður heim. Ekki get ég séð að hann hafi þroskast mikið við þessa raun og fer sínar leiðir út og inn eftir sem áður örmerktur og skráður. Það er greinileg stefna hjá Reykjanesbæ að útrýma öllu kattarhaldi í bænum, þar sem um 70 kettir hafa þegar verið aflífaðir frá því að gjaldskylda var tekin upp að sögn starfs- manns hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja. Fólki bregður við að heyra þessa upphæðir, sem nefndar eru og lætur því aflífa kettina frekar en greiða uppsett lausnargjald. Stefna Reykjanes- bæjar er greinileg að fólk fái sér smáhund í stað katta enda er lúkkið fínna að þeirra mati. Argur kattareigandi. Lausnargjald krafist fyrir heimilisköttinn 8 Argur kattareigandi skrifar: Auglýsingasími VF 421 0000 Fjárhagsáætlun Vatns-leysustrandarhrepps fyrir árið 2005 var sam- þykkt á síðasta fundi hrepps- nefndar. Í áætluninni er gert ráð fyrir óbreyttum rekstri. Varðandi fjárfestingar er gert ráð fyrir að setja Íþrótta- miðstöðina inn í fasteignafé- lagið og jafnframt að byggja við hana. Í viðbyggingunni verður ný félagsmiðstöð auk þess sem búningsaðstaða verður stækkuð og geymslu- rými verður aukið. Á næsta fundi hreppsnefndar verður sett á laggirnar þarfa- greininganefnd sem hefur það hlutverk að skilgreina þörfina á viðbótarrými og mun skila af sér tillögum með aðstoð hönnuða hússins. Aðrar fjár- festingar eru helst í gatna-og umhverfismálum. Gert er ráð fyrir að klára göngustíganetið í Vogum og gangstéttar við byggðar götur. Viðbætur fyrirhug- aðar á íþróttamið- stöðinni í Vogum

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.