Víkurfréttir - 17.03.2005, Blaðsíða 6
6 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
8 Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra á ferð um Reykjanesbæ:stuttar
F R É T T I R
„Suðurnesjamenn hafa enga ástæðu til
að vera svartsýnir hvað atvinnumálin hér
á Reykjanesi varðar,” sagði Halldór Ás-
grímsson, forsætisráðherra í heimsókn
sinni á Víkurfréttum sl. fimmtudag.
Halldór var í heimsókn í Reykjanesbæ
í tengslum við opinn fund sem hann
hélt í DUUS-húsum. Halldór heimsótti
mörg fyrirtæki og stofnanir, fór m.a. í
skóla, Heilbrigðisstofnun, Kaffitár og
Samkaup. Hann mætti í fríðu föruneyti
þeirra Hjálmars Árnasonar þingmanns,
Eysteins Jónssonar aðstoðarmanns land-
búnaðarráðherra, Steingríms Ólafssonar
fjölmiðlafulltrúa, Kjartans Más Kjart-
anssonar bæjarfulltrúa Reykjanesbæjar
og Ingva Þórs Hákonarsonar formanns
ungra Framsóknarmanna á skrifstofu
Víkurfrétta og skoðaði starfsemi fyrirtæk-
isins en blaðið verður 25 ára síðar á árinu.
Forsætisráðherra ræddi við Pál Ketilsson,
ritstjóra Víkurfrétta, um starfsemi fyr-
irtækisins og var hann hrifinn af vinnu-
staðnum, og ánægður með heimsóknina.
Ráðherra ræddi við starfsmenn Víkur-
frétta og spurði um ýmislegt varðandi
svæðið. Atvinnumálin, herinn og fleira
komu upp í umræðunni og eins og fyrr
greinir telur hann enga ástæðu til svart-
sýni hér, síður en svo.
Íþróttaminjasafn Reykja-nesbæjar hefur fengið til varðveislu upptökur af
29 íþróttaviðburðum á árinu
2004.
Íþróttaminjasafnið var stofnað
5. júní 1998 en eitt af mark-
miðum þess er að safna mynd-
böndum og filmum af íþrótta-
við burð um til þess að þær
glatist ekki. Varðveisla íþrótta-
viðburða er samkvæmt samn-
ingi sem gerður var við Viðar
Oddgeirsson sjónvarpsmann og
hefur verið endurnýjaður árlega
frá árinu 1998.
Frumeintök eru geymd í Byggða-
safni Reykjanesbæjar en hægt er
að taka afrit af þeim til útláns.
Margir einstaklingar nýttu sér
þann möguleika á árinu auk fé-
laga, m.a. notaði knattspyrnu-
deild Keflavíkur efni úr safninu
við gerð kynningarmyndbands
vegna Reykjaneshallarinnar.
Íþróttaminjasafn Reykjanes-
bæjar samanstendur af ljós-
myndum, blaðaúrklippum,
8mm kvik mynd um, mynd-
böndum, verðlaunapeningum
og ýmiss konar íþróttaáhöldum.
Þessu til viðbótar var hrundið
af stað verkefninu „Þeir gerðu
garðinn frægan” þar sem tekin
eru viðtöl við gamla íþrótta-
kappa.
Einnig er verið er að kanna
kostnað við yfirfærslu á 8mm
filmum sem Páll Jónsson fyrr-
verandi Sparisjóðsstjóri hefur
afhent Byggðasafninu til varð-
veislu en hann tók m.a. nokkuð
af myndum á filmu sem tengd-
ust íþróttum á Suðurnesjum.
Forsætisráðherra heimsótti Víkurfréttir
VF
-L
JÓ
SM
YN
D
IR
: Þ
O
RG
IL
S
JÓ
N
SS
O
N
8 Reykjanesbær:
Íþróttaviðburðir varðveittir
á Íþróttaminjasafni
Settir hafa verið upp nýir vegvísar við Reykjanes-brautina á síðustu dögum
við mislæg gatnamót þar sem
brautin hefur verið tvöfölduð.
Athugull vegfarandi hafði sam-
band við Víkurfréttir og benti
á að á vegvísunum er umferð
beint til Keflavíkur en ekki
Reykjanesbæjar, þó svo Reykja-
nesbær hafi verið til í áratug og
á það lögð sérstök áhersla hjá
bænum að fyrirtæki skrifi sig í
Reykjanesbæ en ekki í Keflavík,
Njarðvík eða Höfnum.
Vegagerðin heldur sig hins vegar
við Keflavík og smellir reyndar
fyrir aftan nafnið tákni fyrir
flugvöllinn, þar sem það er jú
löngum vitað að erlendis fljúga
menn til Reykjavíkur þegar þeir
fara til Íslands, en ekki Kefla-
víkur.
Hvar er
Reykjanesbær?
Einn af vegvísunum góðu.
VF
-L
JÓ
SM
YN
D
IR
: H
IL
M
AR
B
RA
G
I
VF
-L
JÓ
SM
YN
D
IR
: H
IL
M
AR
B
RA
G
I