Víkurfréttir


Víkurfréttir - 17.03.2005, Blaðsíða 16

Víkurfréttir - 17.03.2005, Blaðsíða 16
16 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! 8 Listasafn Reykjanesbæjar: VF -L JÓ SM YN D IR : H IL M AR B RA G I B ÁR Ð AR SO N Sýning á verkum Erlings Jónssonar og samtíma-manna hans var opnuð í Listasafni Reykjanesbæjar um helgina að viðstöddu fjöl- menni. Á sýningunni er lögð áhersla á að sýna lágmyndir Erlings Jónssonar og brjóst- myndir en þær hafa ekki áður verið sýndar saman og sumar aldrei sést opinberlega fyrr. Einnig er persónu Erlings gerð skil með ljósmyndum Arnar Fells sem heimsótti listamanninn til Noregs og á myndbandi enda listamaður- inn listaverk í sjálfu sér. Í sýningarskránni segir Aðal- steinn Ingólfsson listfræðingur m.a. um Erling: „Þetta tvennt, innlifunarhæfi- leikinn og bókmenntirnar, er sennilega það sem sett hefur ríkulegast mark á listsköpun Erlings sjálfs. Hið fyrrnefnda skýrir að hluta næmið sem kemur fram í myndum af sam- tímamönnum, meðvitundina um að sérhver andlitsdráttur skipti máli þegar móta skal eftir lifandi andliti. Bókmennt- irn ar eru svo kveikj an að mörgum og fjölbreytilegum skúlptúrum listamannsins, sem velunnarar hans í Keflavík hafa sett upp í bæjarlandinu á undanförnum árum.” Í sýningarskránni er einnig yf- irlitskort af bænum þar sem búið er að staðsetja útiverk Er- lings og gestum þannig gert auðveldara að skoða þau í um- hverfinu. Auk verka Erlings Jónssonar má sjá á sýningunni ljósmyndir eftir Arnar Fells, Tom Sand- berg og Vigdis Hindhammer og myndband eftir Viðar Odd- geirsson sem m.a. er byggt á viðtali Jónatans Garðarssonar við Erling. Sýningin er opin alla daga frá kl. 13:00 - 17:30 og stendur til 24. apríl 2005. Fjölmenni skoðar Erling og samtímamenn Veðrið var fallegt þennan dag og í barnskap okkar fannst okkur vorið vera á næsta leyti. Óskhyggja okkar varð skyndilega að sárum veru- leika. Hún Heiða var dáin. Hún hafði verið glöð og hress þennan dag, eins og aðra daga, ljúg og góð við okkur öll. Kallið kom skyndilega, en þessu kalli verðum við öll að hlýða. Við bjuggum í sama húsi og Heiða og Ólafur síðastliðin þrjú ár. Geðprýði og elskusemi var hennar aðalsmerki. Nú kveðjum við Heiðu með söknuði, en þökk fyrir allt. Við vottum Ólafi, börnum þeirra, barnabörnum og öðrum vandamönnum okkar dýpstu samúð. Guðbjörg Þórhallsdóttir Ásta Árnadóttir Aðalheiður Ósk Jónsdóttir Fædd 10.11.30 - dáin 01.03.05

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.