Víkurfréttir - 17.03.2005, Qupperneq 18
18 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
8 Aðalfundur Sparisjóðsins í Keflavík haldinn sl. þriðjudag:
Ánægja með sparisjóðina meðal viðskiptavina þeirra er meiri en ánægja viðskiptavina annarra fjár-
málafyrirtækja, samkvæmt niðurstöðum
Íslensku ánægjuvogarinnar 2004. Niður-
staðan á við um viðskiptavini samtals 23
sparisjóða um land allt sem starfa undir
vörumerkinu SPARISJÓÐURINN.
Íslenska ánægjuvogin er viðamikil könnun
á viðhorfum landsmanna til 25 fyrirtækja
í mismunandi atvinnugreinum sem IMG
Gallup hefur framkvæmt árlega frá 1999.
Sparisjóðirnir hafa frá upphafi, sex ár í röð,
komið áberandi best út í sínum flokki.
Könnunin var framkvæmd á tímabilinu júlí
til október 2004 og náði til 11.000 manna
slembiúrtaks úr þjóðskrá á aldrinum 15-75
ára. Svarhlutfall var ríflega 56%. Munurinn
á útkomu sparisjóðanna og annarra fjár-
málafyrirtækja liggur utan skekkjumarka og
telst því marktækur.
Aðstandendur Íslensku ánægjuvogarinnar
eru Stjórnvísi, Samtök iðnaðarins og IMG
Gallup. Könnunin er hluti evrópsks sam-
starfsverkefnis sem nefnist EPSI Rating,
þar sem EPSI stendur fyrir European Perfor-
mance Satisfaction Index.
Hitaveita Suðurnesja hlaut við ur kenn-ingu í flokki veitufyr-
irtækja hjá Íslensku Ánægju-
voginni þriðja árið í röð. Við-
urkenningar voru afhentar
og niðurstöður Íslensku
Ánægju vog ar inn ar voru
kynntar 10. mars. HS hf tók
fyrst þátt í könnuninni árið
2002 og hefur síðan skipað
fyrsta sæti í sínum flokki.
Ölgerðin Egill Skallagrímsson
varð efst í heildina og flokki
framleiðslufyrirtækja, í flokki
fjármálafyr ir tækja urðu
Sparisjóðirnir hlutskarpastir,
Hitaveita Suðurnesja hf í
flokki veitufyrirtækja og Olís
í flokki smásölufyrirtækja.
Eru þessi fyrirtæki því vinsæl-
ustu fyrirtæki landsins sam-
kvæmt mælingum Íslensku
Ánægjuvogarinnar.
Íslenska ánægjuvogin er fé-
lag, sem Samtök iðnaðarins,
Stjórnvísi og Gallup, standa
sameiginlega að um þátttöku
í evrópsku ánægjuvoginni.
Markmið verkefnisins er að
láta fyrirtækjum í té sam-
ræmdar mælingar á ánægju
við skipta vina en einnig
nokkrum öðrum þáttum sem
hafa áhrif á hana s.s. ímynd,
mat á gæðum og tryggð við-
skiptavina.
Mæling sem þessi er talin
mjög mikilvæg þar sem rann-
sóknir hafa sýnt fram á að
því ánægðari sem viðskipta-
vinir fyrirtækis eru því betri
af komu getur fyrirtækið
gert sér vonir um. Um er að
ræða könnun á viðhorfum
íslenskra viðskiptavina, þ.e.
neytenda vöru eða þjón-
ustu, til fyrirtækja í ýmsum
greinum atvinnulífsins. Þetta
er í fimmta sinn sem ánægja
viðskiptavina er mæld með
þessum hætti.
Heildarúrtakið í könnuninni
var um 11.000 manns úr
þjóðskrá á aldrinum 15-75
ára.
Viðskiptavinir
Hitaveitu Suð-
urnesja eru
ánægðastir
Viðskiptavinir sparisjóðanna ánægðastir sjötta árið í röð
8 Ánægjuvogin - fjármálafyrirtæki:
8 Veitufyrirtæki:
Aðalfundur Sparisjóðsins í Keflavík var haldinn í Stapanum á þriðjudag.
Geir mund ur Krist ins son,
sparisjóðsstjóri kom víða við í
ræðu sinni og fjallaði um sam-
starf sparisjóðanna, efnahagsá-
standið, fjármagnsmarkaðinn
og hið ytra umhverfi sem Spari-
sjóðurinn starfar í.
Um efnahagsumhverfið hafði
Geirmundur m.a. þetta að segja:
„Í efnahagslegu tilliti einkendist
árið 2004 af bjartsýni og þrótti.
Hagvöxtur jókst annað árið í
röð sem orsakast af aukinni
einkaneyslu, auknum fjárfest-
ingum og almennri bjartsýni
neytenda. Ýmsar blikur eru
þó á lofti um hækkandi verð-
lag.” Geirmundur fjallaði einnig
um sterkt gengi íslensku krón-
unnar og þau áhrif sem það
hefur á þjóðarbúið. Lántaka
erlendis hefur aukist til muna
sem leitt hefur til lægri vaxta-
byrði en gengisáhætta hefur í
staðinn aukist. Með tilkomu
íbúðalána banka og sparisjóða
hefur hlutur bankanna aukist
í einstaklingslánum. Á árinu
2004 jukust útlán bankakerfis-
ins alls um 47%, þar af jukust
útlán til einstaklinga um 73%
og útlán til lögaðila um 40%.
Það sem einkenndi þó íslenskan
verðbréfamarkað árið 2004 var
þó líklegast útrás, eða sókn fyrir-
tækja á erlenda markaði.
Þvínæst fjallaði Geirmundur um
málefni sparisjóðanna þ.á.m.
stofnfjárbréfamarkað SPRON,
samruna SPRON og SPV sem
ekkert varð af og ný dótturfélög
sparisjóðanna, en það er Fjárfest-
ingafélag Sparisjóðanna og Verð-
bréfaþjónusta Sparisjóðsins.
Eitt stærsta mál síðasta árs var
framboð banka og sparisjóða
á íbúðalánum á lægri vöxtum
en áður þekktist. Í desember
gengu Sparisjóðirnir síðan til
samstarfs við Íbúðarlánasjóð
um nýja leið við fjármögnun
íbúðarhúsnæðis. Þetta aukna
framboð hefur skilað sér í lægri
greiðslubyrði, hærra veðhlutfalli
og hærra fasteignaverði.
Á árinu var gerður samningur
við Lífeyrissjóð Suðurnesja um
eignastýringu á hluta af eignum
lífeyrissjóðsins. Með framan-
greindum samningi er verið
að auka samstarf aðilanna og
um leið verið að auka umsvif
Viðskiptastofu Sparisjóðsins og
treysta enn frekar þá starfsemi
sem þar fer fram.
Enn og aftur kemur í ljós að við-
skiptavinir Sparisjóðanna eru
þeir ánægðustu í íslenska banka-
kerfinu, því nú fyrir nokkrum
dögum kom í ljós að í sjötta
skipti koma Sparisjóðirnir út
sem sig ur veg ar ar ís lensku
ánægjuvogarinnar, en þessi
viðamikla könnun á ánægju við-
skiptavina íslenskra fyrirtækja
var fyrst gerð árið 1999.
Geirmundur fór yfir ársreikning-
inn þar sem kom fram að hagn-
aður Sparisjóðsins árið 2004 er
408 millj. kr. og þar vegur geng-
ismunur einna þyngst.
Að lokum sagði Geirmundur
þetta:
„Nú á tímum harðnandi sam-
keppni hefur verið enn meiri
ástæða en áður fyrir sparisjóð-
ina í landinu til að snúa bökum
saman og efla samstarf á þeim
sviðum þar sem það er hag-
kvæmt. Samstarfið á vettvangi
Sambands íslenskra sparisjóða
og Sparisjóðabankans hefur
verið mjög mikilvægt í gegnum
tíðina - sérstaklega fyrir hina
minni sparisjóði - og gert spari-
sjóðina að því sterka afli sem
þeir eru í samkeppni við fjár-
hagslega öflugri banka.
Þróunin síðustu misseri hefur
orðið sú í þessu samstarfi að
stærsti sparisjóðurinn - SPRON
- hefur að mestu dregið sig út úr
samstarfi um markaðsmál o.fl.
Þetta er mjög bagalegt vegna
þess að kostnaður eykst þá mjög
mikið en SPRON nýtur auð-
vitað góðs af hinu sameiginlega
markaðsstarfi. Ég tek það fram
að ég hef að mörgu leyti skiln-
ing á ástæðum SPRON fyrir því
að draga sig út úr sambandinu,
reyndar má segja að þeim hafi
hálfpartinn verið vísað á dyr.
Þetta er óá sætt an leg staða
að mínu mati, sundr ung á
þessum tímum, er óskynsam-
leg og óskiljanleg í raun. Við
hjá Sparisjóðnum í Keflavík
höfum jafnan talað máli sátta
í þessu samstarfi og reynt að
leiða deilandi aðila saman. Ég
lít svo á að á næstunni muni
reyna frekar á þessi mál og þá
jafnframt sameiginlega stefnu-
mótun á vettvangi sparisjóð-
anna. Fyrir mitt leyti tel ég að
Sparisjóðurinn í Keflavík eigi
að halda öllum leiðum opnum
í þessu sambandi, þ.e.a.s. hvað
varðar samstarf við aðra spari-
sjóði og önnur fyrirtæki.
Þess má m.a. geta í því sam-
bandi að við höfum nú t.d. und-
irritað viljayfirlýsingu við VÍS
um sölu trygginga fyrir þá og
Sparisjóðurinn hefur nýverið
samið við Lífeyrissjóð Suður-
nesja um stórfellda þjónustu á
sviði eignastýringar eins og ég
nefndi áður. Önnur mál hafa
verið til skoðunar hjá stjórn
sparisjóðsins, sem öll miða að
því að styrkja stöðu sjóðsins
sem sjálfstæðrar einingar. Þetta
er ekki gert í þeim tilgangi að
brjótast út úr sparisjóðafjöl-
skyldunni heldur að efla spari-
sjóðinn, sem er á okkar svæði
í því hlutverki að vera leiðandi
aðili, og þarf því að geta boðið
alla þjónustu við bæði fólk og
fyrirtæki.
Á næsta starfsári getur þurft að
taka afstöðu til stórra mála s.s.
frekari útvíkkunar á starfsem-
inni, samstarfs sparisjóðanna og
tækifæra í samstarfi við aðra að-
ila. Mikilvægt er að mínu mati
að við séum á þessum tímum
opin fyrir öllum góðum málum
og þá er mikilvægt að stofnfjár-
eigendur veiti stjórn sjóðsins
umboð til slíkra verka.
Að lokum vil ég þakka stofnfjár-
eigendum, starfsfólki og stjórn
sjóðsins fyrir gott og ánægjulegt
samstarf á liðnu starfsári.”
Sparisjóðir snúi bökum saman