Víkurfréttir - 17.03.2005, Blaðsíða 26
26 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
8 Lúðrasveit Tónlistarskóla Reykjanesbæjar í víking:
8 Menningin:
Lúðrasveit Tónlistarskólans í Keflavík fer í tónleikaferð til Bandaríkjanna um páskana. Í tilefni ferðarinnar mun Lúðra-
sveitin halda tónleika í Kirkjulundi næstkom-
andi föstudag. Kjarninn úr Lúðrasveitinni hefur
lengi spilað saman og meðal annars unnið til
verðlauna fyrir leik sinn. Síðastliðið ár hafa nýir
krakkar verið að stíga sín fyrstu skref með Lúðra-
sveitinni og hafa þau æft saman í um ár. Karen
Sturlaugsson, stjórnandi Lúðrasveitarinnar,
segir það eftirtektarvert hversu vel nemendur
vinna saman þrátt fyrir aldursmun á sumum
þeirra. Spilað verður mjög blandað efni á tón-
leikunum, allt frá frumsömdu efni frá Lúðra-
sveitinni í söngleikjalög og jazz ásamt íslenskum
lögum.
38 meðlimir Lúðrasveitarinnar ásamt fararstjórum
og Karen Sturlaugsson, stjórnanda og Eyþórs Kol-
beinssonar, aðstoðar stjórnanda, halda út til Was-
hington í Bandaríkjunum um páskana og munu
þar spila meðal annars á stórhátíð, í skemmtigarði
og í skólum Bandaríkjanna. Þá munu þau nota
ferðina og fara á tónleika og í skoðunarferðir um
Bandaríkin.
Dag ný Þ. Jóns dótt ir sópran, Rósalind Gísla-dóttir mezzó-sópran
og Frank Kristinn Herlufsen
píanóleikari flytja helgitónlist
um páskana, nánar tiltekið á
fimmtudaginn, 24. mars, skír-
dag, í Kefla vík ur kirkju kl.
16:00 og í Grindavíkurkirkju,
2. í páskum, 28. mars kl. 14:00.
Tónlistin sem þau flytja er;
Stabat Mater eftir Pergolesi og
aríur úr óratoríum eftir Bach.
Tónleikarnir eru í boði menn-
ingarnefnda Reykjanesbæjar
og Grindavíkurbæjar og er því
frítt inn á þá báða.
Flytjendurnir búa á Suðurnesj-
unum og sinna þar fjölbreyttum
tónlistarstörfum.
Tónleikar í Kirkjulundi á föstudag - Ameríka um páskana
Helgitónlist
um páskana
Til sölu
Scott snjóbretti, lítið
notað og vel með farið.
Festingar og gleraugu
fylgja. Verð kr. 15.000,-
Einnig til sölu Icerace's
hokkí skautar. Stærð
41. Veð með farnir og
lítið notaðir, svartir
að lit. Verð kr. 5000,-
Upplýsingar í síma
846 4471
Þórunn Maggý mun starfa hjá
Sálarrannsóknarfélagi Suðurnesja þann
21. mars nk. Skúli Lórantzson mun starfa
hjá félaginu þann 30. mars. Tímapantanir í
símum 421 3348 og 866 0621