Víkurfréttir


Víkurfréttir - 09.06.2005, Blaðsíða 4

Víkurfréttir - 09.06.2005, Blaðsíða 4
4 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! C M Y CM MY CY CMY K Pizza 67 VF.ai 6/8/05 9:43:06 AM ��������� ����������� Auk allrar almennrar garðvinnu, eyðingar á túnfíflum í grasflötum, bíð ég uppá ��������� svo og úðun gegn hinum hvimleiða roðamaur. Nánari upplýsingar í síma 893 0705 ���������������������������� Ök u m a ð u r To y o t a Avensis bifreiðar, kona á þrítugsaldri, náði að komast út úr bifreiðinni og synda til lands eftir að bíllinn hafnaði í höfninni í Keflavík undir kvöld sl. föstudag. Bif- reiðin fór yfir háan steyptan kant á bryggjunni og flaut út í höfnina um 30 metra áður en hún sökk til botns. Kona sem var ein í bílnum náði að komast út úr bílnum skömmu áður en hann sökk og synda til lands. Sjónarvottar voru að slysinu og létu þeir neyðarlín- una vita. Sagði hún í samtali við Víkurfréttir að liðið hefði yfir sig undir stýri og hafi hún því meðvitundarlaus ekið fram af bryggjunni. Konan var flutt á Heilbrigðis- stofnun Suðurnesja en henni var nokkuð brugðið eftir atvikið. Svo virðist sem að liðið hafi yfir konuna og hún ekið út í sjó, þegar flæða tók inn í bifreið hennar náði konan að opna bíl- stjóradyrnar og komst þannig út. Að sögn man hún ekkert eftir því að hafa ekið í sjóinn en segist hafa fyllst mikilli skelf- ingu þegar hún rankaði við sér í bílnum þar sem hann var að sökkva. Bifreiðin er mjög illa farin en mikið mildi var að konan skildi hafa komist heil frá slysinu. Tómas Knútsson kafari var kall- aður til og fór hann niður að bílnum til að tryggja að enginn annar hafi verið í bílnum. Svo reyndist ekki vera. Tómas not- aði síðan trukk Bláa hersins til að hífa bifreiðina úr höfninni og gekk það verk vel með að- stoð vegfarenda. Tals verð ur eld ur kom upp í einni af aðalbygg-ingum gömlu ratsjár- stöðvarinnar á Miðnesheiði aðfarar nótt sl . föstudags. Stöðin er í daglegu tali kölluð Rockville. Slökkvilið Keflavíkurflugvallar var kallað út og sendi það fjöl- mennt lið á staðinn á þriðja tímanum um nóttina. Þá var eldurinn í byggingu sem tengist kúluturnunum, sem eru helstu kennileiti gömlu stöðvarinnar. Blaðamenn Víkurfrétta voru stöðv að ir af her lög reglu- mönnum og ekki hleypt að bruna vett vangi. Þeir vildu einnig banna ljósmyndurum að ganga um mó ann utan girðingar gömlu ratsjárstöðvar- innar, þannig að hægt væri að ná myndum af slökkvistarfi. Það var ekki fyrr en blaðamenn settu sig í samband við lögregl- una í Keflavík að herlögreglunni var ljóst að ljósmyndurum væri heimilt að ganga um móann. Ljósmyndurum var þó mein- aður aðgangur að sjálfum bruna- vettvangi. Engin starfsemi hefur verið í Rockville um hríð en þar var Byrgið síðast með sína starf- semi. Ekkert rafmagn er á svæð- inu en það hefur verið vinsælt hjá ungmennum að heimsækja gömlu ratsjárstöðina, sem hefur gjörsamlega verið lögð í rúst eftir að Byrginu var gert að hafa sig þaðan á brott. Ætla má að eldur hafi verið bor- inn að byggingunni. Leið yfir ökumann við Keflavíkurhöfn: Komst út úr sökkvandi bíl á elleftu stundu Yfirgefin Rockville brennur Slökkvilið Keflavíkurflugvallar barðist við eld á Miðnesheiði: Vegfarendur voru fengnir til að þyngja trukkinn þegar bíllinn kom upp á yfirborðið. Bíllinn var hífður af hafsbotni um klukkustund eftir slysið. Bifreiðin er ónýt eftir að hafa farið á kaf í höfnina.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.