Víkurfréttir


Víkurfréttir - 09.06.2005, Blaðsíða 18

Víkurfréttir - 09.06.2005, Blaðsíða 18
18 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! Hall dóra Brjáns dótt ir hef ur starf að við ým is ólík störf í gegn um árin. Hún er mennt uð sem klæð skeri en hef ur und an far in ár starf að sem varð stjóri hjá toll gæsl unni á Kefla vík ur flug- velli. Nú hef ur hún ákveð ið að láta gaml an draum ræt ast og skellti sér því í frið ar gæsl una. Ferð inni var fyrst heit ið til London - He at hrow og það an til Colombo höf uð borg ar Sri Lanka eða í allt 10 klukku tíma og 45 mín út ur í flug. Það er mik ið á sig lagt til að kom ast í vinn una. Á Sri Lanka starfa fjór ir ís- lensk ir frið ar gæslu lið ar í Sri Lanka Mon itor ing Mission, SLMM. Norð menn leiða þetta sam nor ræna verk efni en hlut- verk þess er að hafa eft ir lit með vopna hléi stjórn ar hers ins og upp reisn ar manna Ta míla í norð ur hluta lands ins. Ís lensk ur fjöl miðla full trúi starfar í höf uð- stöðv um SLMM í höf uð borg- inni Colombo og eft ir lits menn starfar víðs veg ar um Sri Lanka. Hall dóra vinn ur við að fylgj- ast með því að vopna hléi sé fram fylgt. Þetta ger ir hún með penn ann að vopni því henn ar starf krefst þess ekki að hún sé vopn uð. Starf ið henn ar er fjöl breytt í því get ur falist skrif- stofu vinna, eft ir lit og rann sókn- ar störf. Í hverj um mán uði er hald inn fund ur með stríð andi fylk ing um, í sitt hvoru lagi og far ið yfir stöðu mála. Hall dóra dreg ur upp úr vesk- inu sínu „dog-tags“ með upp- lýs ing um um nafn henn ar, kenni tölu, þjóð erni og frek ari upp lýs ing um. Al vara máls ins er aug ljós, hún þarf að bera skil- rík in um háls inn og hafa ann að í skón um sín um. „Það hef ur ver ið draum ur minn frá því að ég man eft ir mér að starfa sem frið ar gæslu liði. “ Hall- dóra lét drauminn loks rætast og hringdi hún í lok jan ú ar í Ut an rík is ráðu neyt ið og fékk að tala við þá sem sjá um starfs- manna mál ís lensku frið ar gæsl- unn ar. Henni voru send ar upp- lýs ing ar og um sókn ar eyðu blað. „Mér var al veg sama hvert ég færi enda hafði ég ekk ert val um það, ég verð bara send á þá staði sem talið er að ég komi að gagni á,” sagði Hall dóra. „Áður en ég byrj aði á þessu öllu sam an hafði ég feng ið leyfi frá yf ir manni mín um, Kára Gunn- laugs syni að al deild ar stjóri toll- gæsl unn ar á Kefla vík ur flug velli en nauð syn legt er að fá leyfi frá vinnu áður en byrj að er að sækja um. Ís lensk ir frið ar gæslu- lið ar fá launa laust leyfi frá vinnu sinni áður en hald ið er utan með mögu leika á fram leng- ingu. Gerð er sú krafa að hægt sé að halda frið ar gæslu lið un um áfram úti ef þörf kref ur,” sagði Hall dóra um ferl ið í kring um um sókn ina og bætti við að hún hefði ein ung is haft þrjár vik ur til að ganga frá laus um end um hér heima áður en far ið var utan. „Ég geng svo að starfi mínu vísu þeg ar ég hef lok ið mín um störf um hjá frið ar gæsl unni og vil ég þakka öll um sam starfs- mönn um mín um sem og yf- ir mönn um fyr ir að hafa stutt við bak ið á mér og hvatt mig áfram.” „Þessi ferð var ir í sex mán uði, ég má koma heim ef ég vil á þessu tíma bili en dvöl in úti leng ist að sama skapi. Ég býst því ekki við að koma heim nema eitt hvað komi upp á,” sagði Hall dóra um dvöl sína úti í Sri Lanka. „Ég get svo feng ið að fram lengja dvöl ina í sex mán uði í við bót en svo er ég send ann að.” Að spurð hvað tæki við eft ir þessa ferð sagði hún: „Ég vona að ég fái að fara strax út aft ur en það er ekk ert ör uggt hvert ég fer hverju sinni þar sem þörf in fyr ir frið ar gæslu- liða breyt ist dag frá degi.” „Ég er ekki enn far in að huga að því hvern ig það verð ur að skilja ætt ingja og vini eft ir, það kem ur þeg ar ég er kom in út. Ætt in gj arn ir mín ir styðja mig í þessu því þeir vita að þetta er búið að vera draum ur minn frá því ég var krakki. Ég hvet alla sem lang ar til að starfa í frið ar- gæsl unni að sækja um og láta drauma sýna ræt ast.” Skil greina má eft ir far andi grunn flokka frið ar gæslu: 1. Hefð bund in frið ar gæsla og hættu á stands stjórn un Að gerð ir til að halda hættu á standi í skefj um með við veru og starfi lög reglu og her liðs. 2. Eft ir lits- og þjálf un ar störf Að gerð ir al þjóða starfs liðs til að tryggja stöð ug leika og starfa með heima mönn um á átaka svæð um í því skyni að koma í veg fyr ir að átök brjót ist út. 3. Upp bygg ing ar starf Verk efni borg ara legra sér fræð inga sem stuðla að upp bygg- ingu stjórn mála- og efna hags lífs til að koma á var an leg um friði. 4. Mann úð ar- og neyð ar að stoð Al þjóða stofn an ir veita flótta fólki og fórn ar lömb um átaka marg vís lega mann úð ar- og neyð ar að stoð. Hæfn is kröf ur fyr ir frið ar gæslu liða * Há skóla próf, aðra sér mennt un eða með öðr um hætti afl að sér sér hæfðr ar þekk ing ar og reynslu. * Mjög góða ensku kunn átta. * Hæfni í mann leg um sam skipt um, sér stak lega við fólk úr ólík um menn ing ar heim um og með marg vís leg trú ar- brögð. * Þol gæði und ir álagi. * Öguð og sjálf stæð vinnu brögð. * Hæfi leika til að lag ast nýj um að stæð um og frum stæðu vinnu um hverfi. * Þekk ing og/eða reynsla af störf um að neyð ar- og mann- úð ar mál um er æski leg sem og kunn átta í öðr um tungu- mál um, svo sem Norð ur landa mál um, frönsku og þýsku. Í anda jafn rétt is stefnu rík is stjórn ar Ís lands eru kon ur sér- stak lega hvatt ar til að gefa kost á sér. viðtalið Hall dóra Brjáns dótt ir, varðstjóri hjá Tollgæslunni á Keflavíkurflugvelli: Með penna að vopni í friðargæslu á Sri Lanka V I Ð T A L : M A R G R É T E N G I L B E R T S „Mér var al veg sama hvert ég færi enda hafði ég ekk ert val um það, ég verð bara send á þá staði sem talið er að ég komi að gagni á“.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.