Víkurfréttir - 09.06.2005, Síða 12
12 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Laugardaginn 4. júní sl. voru 16 nem end ur í staðbundnu leiðsögu-
námi útskrifaðir hjá Miðstöð
símenntunar á Suðurnesjum.
Námið hófst í febrúar 2004 og
lauk í maí 2005. Námið var 192
kennslustundir að lengd og
veitir 16 einingar. Í náminu var
m.a. farið í jarðfræði, gróður-
og dýralíf, ferðaþjónustu, vett-
vangsnám, leiðsögutækni og
svæðalýsingar. Farnar voru fjöl-
margar ferðir um svæðið þar
sem nemendur nutu fróðleiks
bæði heimamanna og leiðsögu-
manna.
Útskriftin fór fram í húsnæði
Miðstöðvarinnar að Skólavegi
1. Guðjónína Sæmundsdóttir
forstöðumaður MSS sagði frá
tildrögum námsins en einn aðal-
hvatinn fyrir því að koma nám-
inu á var lélegt atvinnuástand
sem ríkti á Suðurnesjum fyrir
2 árum. Þegar hafinn var undir-
búningur við námið kom í ljós
að það væri kostnaðarsamt og
hófst þá vinna við að leita eftir
styrkjum. Nokkrir aðilar styrktu
námið og var þeim þakkað
sérstaklega fyrir. Þessir aðilar
voru at vinnu ráð SSS, SBK,
Sparisjóðurinn, Íslandsbanki,
Hitaveitan og Starfsmenntaráð.
Einnig voru nokkrir aðilar sem
styrktu námið með kennslu
s.s. Fræðasetrið í Sandgerði,
starfsmenn Reykjanesbæjar,
Garðs og Grindavíkur. Í máli
Guðjónínu Sæmundsdóttur, for-
stöðumanns MSS, kom fram að
áætlað væri að fara af stað með
annað leiðsögunám í byrjun árs
2006. Því ættu allir sem hafa
áhuga, að skrá sig hjá MSS sem
fyrst. Staðbundið leiðsögunám
hefur einungis einu sinni verið
haldið á Suðurnesjum áður og
eru um 20 ár síðan. Helga Ingi-
mundardóttir, sem var ein af
þeim sem útskrifuðust þá, sagð-
ist í tilefni útskriftarinnar vera
mjög glöð þar sem hún þyrfti
ekki að vera eins einmana í
þessu starfi hér eftir. Nú kæmu
fleiri félagar í stéttina. Árni Sig-
fússon, bæjarstjóri Reykjanes-
bæjar, sagði m.a. að væntingar
til hópsins væru miklar og að
þau muni ýta enn frekar undir
aukna ferðamennsku á svæð-
inu. Stefán Helgi Valsson, einn
af kennurum námsins, sagði að
mikið hefði verið rætt um það
í náminu að Suðurnesin væri
fallegasti staður á landinu. Hans
hlutverk að kenna leiðsögu-
tækni og tungumálanotkun en
lærði hann ótrúlega margt um
svæðið af nemendum. Hann
heillaðist af sögu og náttúru
Reykjaness og í dag væri hann
sammála því að það væri eitt af
fallegustu svæðunum á landinu
og hlaut hann mikið lófaklapp
viðstaddra fyrir þessi orð.
Að sögn Guðjónínu Sæmunds-
dóttur, er um að ræða mjög öfl-
ugan hóp leiðsögumanna sem
var að útskrifast og er mikils að
vænta frá þeim í framtíðinni.
Eftir útskrift stofnuðu þau sjálfs-
eignastofnunina sem ber nafnið
Leiðsögumenn ses. Tilgangur
stofnunarinnar er að stuðla að
aukinni kynningu á svæðinu á
meðal fagfólks í ferðaþjónustu,
íbúa, almennings og ferða-
manna. Efla jákvæða ímynd
svæðisins sem ferðamanna-
staðar fyrir erlenda og innlenda
ferðamenn. Miðla sögu svæðis-
ins til íbúa, almennings og ferða-
manna. Selja ferðir um Reykja-
nes með faglegri leiðsögn út-
skrifaðra leiðsögumanna. Ljóst
er að þessi hópur mun fjölga
ferðamönnum á svæðinu, sem
leiðir til tekjuaukningar í ferða-
þjónustu á Suðurnesjum.
Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum:
Útskrift 16 staðbundinna
leiðsögunema frá MSS
Stjórn Leiðsögumanna ses.
Útskriftarhópurinn. Ljósmyndir: Oddgeir Karlsson.