Víkurfréttir - 09.06.2005, Side 21
VÍKURFRÉTTIR I 23. TÖLUBLAÐ I FIMMTUDAGURINN 9. JÚNÍ 2005 I 21
Af reks braut íþrótta-manna er ný af nálinni á Íslandi en þar er ungu
fólki gefið einstakt tækifæri
til þess að stunda íþróttir af
kappi undir handleiðslu fær-
ustu þjálfara meðfram góðu og
traustu námi í Fjölbrautaskóla
Suðurnesja.
Sigurður Ingimundarsson er um-
sjónarmaður afreksbrautarinnar
en hann er fær á báða vígvelli
þ.e.a.s. námið og íþróttirnar.
Námið er samstarfsverkefni
hjá Íþróttaakademíunni og
Fjölbrautaskóla Suðurnesja
en boðið verður upp á fjórar
íþróttagreinar. Þær eru golf,
körfu bolti, knatt spyrna og
sund.
„Við erum með mjög færa þjálf-
ara í öllum greinum. Guðni
Kjartansson verður með knatt-
spyrnuna, Brynjar Eldon Geirs-
son með golfið, ég með körfu-
boltann og Ingi Þór Einarsson
með sundið,” sagði Sigurður í
samtali við Víkurfréttir. Nem-
endum verður leyft að velja um
þrjár stúdentsbrautir en þær eru
náttúrufræði, málabraut og fé-
lagsfræðibraut.
„Þetta tækifæri hefur ekki bðið
áður en hún á eftir að reynast
dýrmæt reynsla fyrir alla sem
nýta sér það. Kennsl an og
þjálfunin verður einstaklings-
bundin þannig að hver og einn
bætir mjög mikið við sig í sinni
íþrótt,” bætti Sigurður við.
Hluti af starfi Sigurðar felst í
því að hafa samband við félags-
lið þeirra nemenda sem munu
stunda nám á afreksbrautinni.
„Ég mun verða í sambandi við
liðin og fylgjast náið með æf-
ingaálagi og öðru svo þau séu
að fá sem mest út úr þjálfuninni
frá okkur.”
Sigurður hlakkar til að takast
á við þetta nýja verkefni enda
reynsla hans töluverð á bæði
sviðum. „Ég er mjög spenntur
fyrir þessu og líka frábært að
svona nám sé komið til lands-
ins hvað þá til Reykjanesbæjar,”
sagði Sigurður.
Gert er ráð fyrir því að um 30
nemendur stundi nám á afreks-
mannabrautinni til að byrja
með en þó er ekki búið að
ákveða það endanlega. „Ég held
að það stefni í góða aðsókn og
gæti jafnvel séð það fyrir mér að
krakkar af landsbyggðinni sæki
í þetta nám.”
Sigurður telur að fyrsti árgangur-
inn sem útskrifast af brautinni
verði fullur af afreksmönnum
sem við eigum eftir að sjá tölu-
vert af í framtíðinni. „Stefnan
er að útskrifa af þessari braut
mikið afreksfólk í íþróttum.”
Sigurður mun láta af störfum
sem aðstoðarskólastjóri í Myllu-
bakkaskóla eftir að hafa starfað
hjá skólanum frá 1990.
Sigurður hefur í ýmis horn að
líta en hann er þjálfari Íslands-
meistara Keflavíkur í körfubolta
og einnig þjálfari íslenska lands-
liðsins en aðalverkefni liðsins
eru í september. „Eftir þau verk-
efni þá sé ég til hver framtíðin
verður en samningur minn mun
þá renna út,” sagði Sigurður að
lokum.
Sigurður Ingimundarson
stýrir afreksbraut FS
Ef hug mynd ir Stef áns Jóns Haf stein. borgarfulltrúa í Reykjavík, um framtíðarskipulag Reykjavíkurborgar verða að veruleika geta Suður-
nesjamenn stytt leið sína frá miðborg
Reykjavíkur til Reykjanesbæjar um
allt að 20 mínútur. Hugmyndir Stef-
áns fela það í sér að lengja Suðurgöt-
una í Reykjavík yfir á Álftanes og
grafa þaðan jarðgöng sem kæmu upp
sunnan við álverið í Straumsvík.
Þessar hugmyndir Stefáns eru þó ekki
nýjar af nálinni því Eysteinn Jónsson,
aðstoðarmaður landbúnaðarráðherra
og framsóknarmaður úr Reykjanesbæ,
viðraði slíkar hugmyndir í grein sem
hann skrifaði í Víkurfréttir 18. nóvem-
ber í fyrra.
Hugmyndin er áhugaverð og miðar í
raun að því að flytja innanlandsflug til Keflavíkur.
Jarðgöng Eysteins til
umræðu í borgarstjórn
Sigurður og sonur hans, Nói. Sigurður er nýorðinn pabbi
að nýju en hann og Halldís kona hans eignuðust annan
son fyrir nokkrum dögum.