Víkurfréttir - 15.09.2005, Síða 4
4 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Hjálmar Árnason, alþingismaður hefur boðað til opins fundar á Ránni í kvöld, kl. 20. Tilefnið er umræða um innan-
landsflugið og Landhelgisgæzluna. En hvers
vegna núna?
„Eins og mál hafa skipast í umræðunni hafa Suð-
urnesin aldrei átt jafn mikla möguleika á að ná
innanlandsfluginu hingað sem og Gæslunni. Um
getur verið að ræða nærri 500 störfum þegar allt
er talið þannig að ég tel þetta eitt mesta hagsmuna-
mál svæðisins í langa tíð og hvet alla Suðurnesja-
búa til að sýna áhuga á þessu mikilvæga máli.
Margir munu leggjast gegn þessum flutningi”.
- Hvað hefur breyst?
„Ég tel þrjú atriði skipta sköpum. Nú er öll borg-
arstjórn Reykjavíkur orðinn sammála um að völl-
urinn fari úr Vatnsmýri í stað þess að áður voru
menn ekki á einu máli. Í öðru lagi eru nágranna-
sveitarfélögin ekki hrifin af hugmyndinni um
Löngusker, auk þess sem þar er talin flóðahætta.
Í þriðja lagi gera Bandaríkjamenn nú þá kröfu
að við tökum meiri þátt í rekstri Keflavíkurflug-
vallar þannig að hagkvæmnisjónarmið mæla með
einum flugvelli á sv-horninu. Þá má nefna að
Bessastaðahjáleið styttir tímann af Suðurnesjum
inn í miðbæ niður í um 25 mínútur”.
- Hverjir kynna málið á fundinum í kvöld?
„Ég hef boðið samgönguráðherra, framkvæmda-
stjóra Flugfélags Íslands, bæjarstjóranum í Reykja-
nesbæ, forstjóra Landhelgisgæzlunnar, forstjóra
FLE, flugvallarstjóra og talsmönnum áhugahóps
um flutning innanlandsflugs til Suðurnesja.
Mér finnst skipta máli að reifa sjónarmið um
þetta stóra mál og trúi ekki öðru en íbúar svæðis-
ins sýni í verki áhuga sinn með því að mæta. Við
náðum árangri með tvöföldun Reykjanesbrautar,
m.a. vegna órofa samstöðu íbúanna. Fylgjum því
eftir í þessu mikla hagsmunamáli Suðurnesja”,
segir Hjálmar Árnason alþingismaður.
Björn Vífill, veitingamaður á Ránni, býður Ránna
endurgjaldslaust undir fundinn og vill Hjálmar
koma á framfæri þökkum til hans fyrir stuðning
við mikilvægan málstað.
Lögreglan á Keflavíkur-flugvelli hefur starfs-aðstöðu sína við Leifs-
stöð í gámaeiningum, þar til
stjórnsýsluhús verður byggt á
svæðinu. Nú er svo komið að
byggja þarf við norðurbygg-
ingu Leifsstöðvar og því varð
lögreglan að fara annað með
aðsetur sitt.
Þar sem það þótti of mikið
rask að taka gámaeiningarnar
eða byggingaeiningarnar 12 í
sundur og flytja þær þannig,
var brugðið á það ráð að fá
öfluga krana og 28 hjóla flutn-
ingavagn til að færa lögreglu-
stöðina á nýjan stað. Það var
gert nú í vikunni og tókst
flutningurinn vel. Reyndar
stóð tæpt í undirbúningi og
munaði litlu að krani myndi
leggjast á lögreglustöðina. Það
fór allt vel og nú er unnið að
því að leggja þær lagnir sem
þarf svo starfsemi geti hafist
aftur í löggustöðinni.
Til gamans má geta þess að
einingarnar 12 vigtuðu um
50 tonn með öllu því sem þar
er innandyra. Ekki liggur enn
fyrir hvenær stjórnsýsluhús
verður byggt á Keflavíkurflug-
velli og fram að því notast lög-
reglan við byggingaeiningar
eins og sjá má á meðfylgjandi
mynd.
VF-mynd: Hilmar Bragi
Fengu 10.000 manns á sýningu
Systurnar Gunnhildur og Brynhildur Þórðardætur voru með sýn-
ingu á myndlist og hönnun í Gömlu Búð á Ljósanótt og má með
sanni segja að sýningin hafi dregið að gesti. Eftir helgina tóku
þær saman tölur um gesti sem höfðu skrifað sig í gestabókina
sem lá fyrir við inngang og komust að því að alls höfðu 10.000
manns skrifað nafn sitt í bókina. Það er að sjálfsögðu óhemju
fjöldi á eina sýningu en það sýnir ef til vill best hve margir voru á
hátíðinni og hversu góð þátttaka var á uppákomunum.
Opinn fundur um innanlandsflug
og Landhelgisgæzlu á Ránni
50 tonna löggustöð
á rúntinum
Á fundi Framsóknarfélag-anna í Reykja nes bæ, sem haldinn var á sunnu-
dagskvöld, lýsti Kjartan Már
Kjartansson, leiðtogi og bæjar-
fulltrúi Framsóknarflokksins í
Reykjanesbæ, því yfir að hann
væri tilbúinn til þess að halda
áfram í hlutverki leiðtoga Fram-
sóknarmanna í sveitarstjórnar-
kosningunum 2006, fengi hann
til þess stuðning.
Á fundinum var einnig rætt um
hvernig staðið skuli að vali á list-
ann en ekkert ákveðið. Kjartan
Már hefur verið bæjarfulltrúi
Framsóknarmanna frá 1998 og
varabæjarfulltrúi 1994-1998.
Kjartan stefnir
á fyrsta sætið
Hjálmar Árnason býður til fundar í kvöld: