Víkurfréttir - 15.09.2005, Síða 10
10 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
„Reykjanesið rokkar“ að mati
þátttakenda á íbúaþingi sem
haldið var í Reykjanesbæ laug-
ardaginn 10. september, í þeim
skilningi að jákvæður árangur
hafi náðst á und an förn um
árum í sveitarfélaginu. Áhersla
á skólamál, íþróttir og tóm-
stundir og önnur samfélagsleg
málefni, umhverfisumbætur
og uppbyggingu, hafi skilað
betri ímynd og sterkari sjálfs-
mynd samfélagsins.
Ungt fólk setti mjög mikinn
svip á þingið, en samtals tóku
um 150 manns þátt í þinginu.
Þátttakendur lögðu áherslu á
að samfélagsleg málefni verði
áfram framarlega í forgangs-
röðun verkefna hjá Reykja-
nesbæ en töldu samvinnu allra
aðila vera forsendu þess að tak-
ist að hafa heilbrigð fjölskyldu-
gildi í öndvegi í samfélaginu.
Liður í því er að tryggja góða
þjónustu fyrir alla aldurshópa,
t.d. metnaðarfullt skólastarf og
tómstundir. Fram kom að fyr-
irhuguð uppbygging húsnæðis
og þjónustu fyrir aldraða á nú-
verandi íþróttavelli muni koma
til móts við þá þörf sem nú er
til staðar. Þátttakendur töldu
að með áherslu á aðlaðandi um-
hverfi og góðar aðstæður til úti-
vistar aukist enn frekar lífsgæði
í Reykjanesbæ og það muni laða
fleiri íbúa að til búsetu.
Í umræðu um skipulagsmál bar
hæst það einstaka tækifæri sem
er á núverandi athafna- og iðn-
aðarsvæði á Vatnsnesi, til upp-
byggingar nýs blandaðs hverfis.
Nálægð við miðbæ, stærð svæð-
isins og strandlengjan skapa að-
stæður fyrir aðlaðandi og lifandi
byggð í þungamiðju Reykjanes-
bæjar. Auk þess að styrkja núver-
andi miðbæjarkjarna getur slík
uppbygging aukið aðdráttarafl
Reykjanesbæjar í heild til búsetu
og ferðaþjónustu. Ræddar voru
ýmsar hugmyndir um skipulag
svæðisins og mikilvægi þess að
mótuð verði sýn fyrir svæðið í
heild áður en lengra er haldið.
Íbúum í Reykjanesbæ er um-
hugað um að tryggð verði fjöl-
breytni og gæði menntunar á
öllum skólastigum og að mennt-
unarstig hækki. Þátttakendur
tjáðu áhuga á því að við bæt-
ist annar framhaldsskóli og að
hægt verði að bjóða upp á nám
á háskólastigi, á fleiri sviðum en
sinnt verður í Íþróttaakademí-
unni. Einnig fái menningarstarf
að blómstra enn frekar, m.a.
með góðri aðstöðu og víðtæku
samstarfi.
Í umræðu um atvinnumál kom
fram að þó svo að minnkandi
starfsemi á varnarsvæði Banda-
ríkjahers sé nokkur ógnun, þá
felist jafnframt í því tækifæri.
Gert er ráð fyrir að starfsemi
flugvallarins í Keflavík muni
aukast mjög á næstu árum og
lögðu þátttakendur áherslu á
að þau tækifæri verði nýtt til
hins ítrasta. Í því skyni þurfi að
bæta tengingar milli Reykjanes-
bæjar og flugvallarins, sérstak-
lega með bættum almennings-
samgöngum og stígum. Helgu-
vík bar nokkuð á góma og var
kallað eftir því að eitthvað af
þeim hugmyndum um uppbygg-
ingu sem verið hafa til umræðu,
verði að veruleika sem fyrst. Ná-
lægð atvinnulífs við alþjóðlegan
flugvöll og stóra höfn í Helguvík
skapar aðstöðu sem hvergi er að
finna annarsstaðar á landinu.
Óskir komu fram um að innan-
landsflugið flytjist til Keflavíkur.
Sá hópur ungs fólks sem sótti
þingið vildi almennt búa áfram
í Reykjanesbæ, en þau bentu
jafnframt á ýmislegt sem betur
mætti fara, til að koma til móts
við þarfir þeirra og lífsstíl, m.a.
að þau gætu hitt jafnaldrana á
kaffihúsi eða einhverjum slíkum
vettvangi sem ekki væri stýrt af
foreldrum, kennurum eða tóm-
stundastarfsfólki.
Fram kom áhersla á mikilvægi
þess að Reykjanesið í heild vinni
saman að sameiginlegum hags-
munum og að sameining sveit-
arfélaga væri af hinu góða. Til
framtíðar gæti því Reykjanesið
orðið í hópi stærstu sveitarfélaga
landsins og eftirsóttasta úthverfi
stór - Reykjavíkursvæðisins.
Umfram allt vildu þátttakendur
sjá Reykjanesbæ halda áfram
að vaxa og styrkja stöðu sína
með því að halda áfram á sömu
braut.
Íbúaþingið í Reykjanesbæ tókst vel
��������������� �����������������������
��������
���������������������
�������������������� ������
�������� �����
��������������
�������������������� �������������
����������������������������������
��������������� ������������
������������� �������������
�����������������������������
�������������������������
Haldið verði áfram á sömu braut