Víkurfréttir


Víkurfréttir - 15.09.2005, Page 16

Víkurfréttir - 15.09.2005, Page 16
16 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! Kvartett Sigurðar Flosasonar leikur á tónleikum víðsvegar um landið þessa dagana. Tónleikar í Reykjanesbæ, verða á morgun, föstudaginn 16. sept. kl. 20:30 í Listasal í DUUS-húsum. Tónleikarnir eru síðbúnir útgáfutónleikar vegna geisladisksins „Leiðin heim” en hann kom út í hér á landi í maí síðast- liðnum og í Japan í júlí. Ekki hefur unnist tími til útgáfutónleika fyrr en nú, en þess má geta að kvartettinn lék á heimssýningunni í Japan og þrennum vel heppnuðum tónleikum í Tokyo í sumar. „Leiðin heim” hefur fengið afbragðs- góðar viðtökur. Vernharður Linnet, jazzgagn- rýnandi Morgunblaðsins, kallaði diskinn m.a. „meistaraverk!” í afar lofsamlegum dómi. Sigurður Flosason hefur gert víðreist með tónlist sína. Hann hefur tvisvar hlotið íslensku tónlistar- verðlauning og tvívegis verið tilnefndur til Tónlist- arverðlauna Norðurlandaráðs. Sigurður er bæjar- listamaður Garðabæjar í ár. Kvartettinn skipa, auk Sigurðar sem leikur á sax- ófón, þeir Eyþór Gunnarsson á píanó, Valdimar K. Sigurjónsson á kontrabassa og Pétur Östlund á trommur. Kvartett Sigurðar Flosasonar með útgáfutónleika í Reykjanesbæ Listasalur DUUS-húsa Týnd kisa - 10.000 kr. fundarlaun Þetta er Garfield hann hvarf frá heimili sínu 6 sept. Hann var með bláa ól. Þeir sem hafa orðið varir við hann eða séð til ferðar hans eru vinsamlegast beðnir um að láta okkur vita í s.4213665 eða 8973665.Fundarlaun upp á 10.000 krónur í boði. SRFS Skúli Lorentsson starfar hjá Sálarrannsóknarfélagi Suðurnesja miðvikudaginn 21. sept. Guðrún Hjörleifsdóttir starfar hjá félaginu 22. sept og Lára Halla Snæfells verður hjá félaginu 20. til 21. sept. Tímapantanir í síma 421 3348

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.