Víkurfréttir - 29.12.2005, Blaðsíða 13
VÍKURFRÉTTIR I 52. TÖLUBLAÐ • ÁRAMÓTABLAÐ I FIMMTUDAGURINN 29. DESEMBER 2005 I 13
Knattspyrnudeild Kefla-vík ur opn aði í gær flugeldasölustað sinn
að Iðavöllum. Þetta er sautj-
ánda árið sem deildin stendur
fyrir flugeldasölu og er salan
nú orðin langstærsta tekjulind
deildarinnar.
Ólafur Bjarnason, umsjónar-
maður flugeldasölunnar hjá
Keflavík, er ekki ókunnugur
þessum bransa því hann hefur
verið virkur í starfi björgunar-
sveitarinnar í áraraðir og seldi
flugelda hjá þeim hver einustu
áramót frá árinu 1982.
Heildarmagnið á lager Keflvík-
inga þetta árið er 1,5 til 2 tonn
af flugeldum og segir Ólafur að
þeir óttist ekki samkeppni við
einkaaðila sem hafa haslað sér
völl á þessum vettvangi.
„Við höfum lítið um það að segja
hverjir fá að selja flugelda hér,
en því er ekki að neita að það
gerir fjáröflun erfiða að þurfa
að keppa við einkaaðila sem eru
í þessu bara til að græða. Rekst-
urinn á íþróttaliðum í fremstu
röð er dýr og ég vona að við
höldum okkar gömlu viðskipta-
vinum. Okkar svar við aukinni
samkeppni er að bjóða betri
vöru á betra verði, en við höfum
ekki hækkað okkar verð frá því
í fyrra.“
Jónas Guðni Sævarsson, Hörður Sveinsson og Ingvi Rafn Guðmunds-
son, leikmenn meistaraflokks, létu ekki sitt eftir liggja í undirbún-
ingnum.
Flugeldasala knattspyrnudeildar Keflavíkur:
Langstærsta tekjulindin