Víkurfréttir


Víkurfréttir - 31.08.2006, Qupperneq 12

Víkurfréttir - 31.08.2006, Qupperneq 12
12 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU • www.vf.is • LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!VÍKURFRÉTTIR I 35. TÖLUBLAÐ I 27. ÁRGANGUR Heilbrigðisstofnun Suðurnesja: Með reglubundnu eft-ir liti starfs manna sem vinna í starfs- umhverfi yfir 85 dB og viðeig- andi umbótum á vinnustað, má koma í veg fyrir heyrnar- skemmdir allt að 90%. Því viljum við hvetja forráðamenn fyrirtækja og stofnana til að láta fylgjast með heyrn starfs- manna sinna. Börn geta komið í nákvæm- ari heyrnarmælingu til okkar en gerð er skólanum. Nauð- synlegt er að fylgjast vel með heyrn barna, tiltölulega lítil heyrnarskerðing getur seinkað málþroska og bjagað tal þeirra. Einnig geta þau átt við náms- erfiðleika að stríða af þessum sökum. Fólk með heyrnartæki er hvatt til að nota sér þjónustu okkar, og koma með tækin til hreins- unar. Einnig skiptum við um leiðslur og seljum rafhlöður. Með hækkuðum meðalaldri manna á Íslandi hefur gætt vax- andi heyrnarskerðingar. Þriðji hver maður yfir sjötugt er fé- lagslega einangraður sökum heyrnarskerðingar og þarfnast ef til vill heyrnartækis. Það getur verið erfitt að viðurkenna fyrir sjálfum sér að eitthvað sé að. Kannast þú við eitthvað af þessu? • Að eiga erfitt með að heyra talað mál í fjölmenni. • Að vera ut an veltu í sam- ræðum. • Að standa þig að því að mis- skilja og svara út í hött. • Að eiga í erfiðleikum með sam- skipti innan fjölskyldunnar. • Að eiga í erfiðleikum með sam- skipti á vinnustað. • Að heyra illa talað mál í sjón- varpi og útvarpi. • Að njóta ekki leiksýninga eða samkvæma. • Að hafa átt erfitt með tungu- málanám. Eigi þessi lýsing við þig eða ein- hvern þér nákominn, er fyrsta skrefið að fara í heyrnarmæl- ingu og fá úr því skorið hvort um heyrnarskerðingu er að ræða. Sé svo þarf að fara í ná- kvæmari rannsóknir og lækn- isskoðun. Heyrnartæki geta oftast hjálpað og því fyrr sem farið er, því meiri líkur eru á að hægt verði að aðlagast og nýta sér heyrnartækið til fulln- ustu. Heyrnarskerðing á fullorð- insaldri getur valdið verulegri félagslegri fötlun, óöryggi og þunglyndi sem hlýst af aukinni einangrun. Vilj ir þú nota þér þjónustu okkar og panta tíma, þá vinsam- legast hafið samband við undir- ritaða eða afgreiðslu stofnunar- innar í síma 4220500. F.h. Heyrnarverndar Eygló Hjálmarsdóttir. Hvatning til fólks að nýta sér þjónustu Heyrnarverndar HSS • Til stjórnenda fyrirtækja um að láta fylgjast með heyrn þeirra starfsmanna sem starfa í hávaða sem er yfir 85dB. • Til foreldra barna sem verða varir við að barnið þeirra heyri illa eða fylgist illa með því sem gerist í kring um það. • Til fólks sem er með heyrnartæki. Vinsamlegast athugið! Kort sem sýnir lokanir í miðbæ Keflavíkur vegna Ljósanætur er hægt að nálgast á vef Víkurfrétta, vf.is.

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.