Víkurfréttir


Víkurfréttir - 31.08.2006, Qupperneq 22

Víkurfréttir - 31.08.2006, Qupperneq 22
22 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU • www.vf.is • LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!VÍKURFRÉTTIR I 35. TÖLUBLAÐ I 27. ÁRGANGUR FORVAL Flugstöð Leifs Eiríkssonar hf. Húsgögn á biðsvæði farþega Flugstöð Leifs Eiríkssonar hf. (FLE hf.) óskar eftir áhugasömum aðilum til að taka þátt í forvali vegna kaupa á húsgögnum á brottfararsvæði flugstöðvarinnar. Um er að ræða bekki, stóla og borð fyrir alls 700 manns. Forvalsgögn verða afhent frá og með þriðju- deginum 29.ágúst 2006 á skrifstofu Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar hf. á 3.hæð í flugstöðinni á Keflavíkurflugvelli svo og hjá VSÓ Ráðgjöf, Borgartúni 20, 105 Reykjavík. Hægt er að óska eftir gögnum á rafrænu formi. Umbeðnum upplýsingum skal skilað á skrifstofu FLE hf. eigi síðar en fimmtudaginn 21.september 2006 kl. 11:00. Allt að 5 hæfustu umsækjendun- um verður gefinn kostur á að taka þátt í tillögu- gerð um húsgögn og húsgagnaval. Alda Sveinsdótt ir, 27 ára, er útskrifaður fata-hönnuður frá „London Centre for Fashion Studies“ í Englandi. Hún tók þá ákvörðun að breyta bílskúrnum hjá sér að Suður- götu 18, Keflavík, í verkstæði og verslun sem mun bera heitið RokkSmiðjan. Fram kvæmd irn ar með bíl- skúrinn síðustu mánuði hafa gengið vel og með ómetanlegri hjálp fjölskyldu og vina verður RokkSmiðjan til. RokkSmiðjan opnar á Ljósanótt, föstudaginn 1.september kl 13 og verður opin alla helgina frá 13-18 í tilefni hátíðarinnar. Á laugardeginum kl. 17 tekur svo hljómsveitin Hellvar nokkur lög fyrir utan verslunina. Kvenfatalína Öldu iD-ALDA verður fáanleg í Rokk Smiðj- unni en innblásturinn að þessu sinni er „Rokk í rómantík“, þ.e. rokkað en jafnframt kvenlegt. Línuna er svo hægt að fá saum- aða í öllum stærðum. Einnig verður hægt að fá „Vin- tage/Second hand“ föt sem eru föt frá tímabilum 1960-1980 á bæði kynin.,skart og fylgihluti. Önnur hönnun verður einnig á boðstólum síðar og þeir sem eru að gera áhugaverða hluti er bent á að hafa samband við Öldu í s: 6989108. Opnunartími verslunarinnar eftir ljósanótt: Mið-fim-Fös: 13-18 Lau: 11-16 Sun-mán-þri: Lokað Viðskipti og atvinnulíf: Verslunin RokkSmiðjan opnar í Reykjanesbæ

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.