Víkurfréttir - 31.08.2006, Qupperneq 32
32 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU • www.vf.is • LESTU NÝJASTA SPORTIÐ DAGLEGA!VÍKURFRÉTTIR I ÍÞRÓTTASÍÐUR
VF-sport
molar
Hætta við þátttöku
í 1. deild
Reyn ismenn hafa dreg ið
lið sitt úr keppni í 1. deild-
inni í körfuknattleik og eru
ástæður m.a. þær að leik-
menn hafa farið frá félaginu í
önnur lið og þá hefur þjálfari
liðsins, Jón Guðbrandsson,
sagt starfi sínu lausu sökum
anna í vinnu. Fannst for-
ráðamönnum deildarinnar
því ráðlegast að skrá liðið í
2. deild því ekki væri grund-
völlur til þess að halda úti liði
í 1. deildinni. Nýjir þjálfarar
hafa tekið við Reyni en þeir
hafa lengi leikið með liðinu
og eru þeir Hlynur Jónsson
og Rúnar Pálsson.
Keflavík Valur í gær
Keflavíkurkonur tóku á móti
toppliði Vals í Landsbanka-
deild kvenna í gær. Víkur-
fréttir fóru í prentun áður en
úrslit urðu ljós. Nánar um
leikinn á vf.is.
Grindvíkingar styrkja
hópinn
Körfuknattleikslið Grinda-
víkur hefur styrkt sig fyrir
komandi átök í Iceland Ex-
press deild karla á næstu
leiktíð. Bandaríkjamaðurinn
Steven Thomas hefur gert
samning við liðið sem og
danski landsliðsmaðurinn
Adam Darboe. Þá hafa Sig-
urður Sigurbjörnsson og Sig-
urður Gunnarsson gengið í
raðir Grindvíkinga frá Reyni
Sandgerði. Njarðvíkingurinn
Friðrik Ragnarsson hefur
tekið við þjálfun liðsins af
Friðriki Inga Rúnarssyni og
leist honum vel á komandi
leiktíð.
Víðismenn úr leik
Víðir Garði mun leika í þriðju
deild að ári en þeir lágu gegn
Hetti frá Egilsstöðum í átta
liða úrslitum þriðju deildar.
Lið in skildu jöfn í fyrsta
leiknum á Garðsvelli 2-2 en
Víðismenn urðu að lúta í gras
2-1 á Vilhjálmsvelli.
Ingvi tekur við Þrótti
Ingvi Steinn Jó hanns son
hefur tekið við körfuknatt-
leiksliði Þróttar í Vogum en
liðið keppir í 2. deild. Liðið
átti ekki góðu gengi að fagna
í 2. deild á síðustu leiktíð
en Þróttarar vonast til þess
að með tilkomu Ingva verði
hægt að snúa við blaðinu.
Ingvi Steinn á ekki langt að
sækja þjálfarahæfileikana
en Einar Árni Jóhannsson,
bróðir Ingva, er þjálfari Ís-
landsmeistara Njarðvíkur í
Iceland Express deild karla.
Kvennasveit GS Íslandsmeistari öldunga
Kvenna sveit Golf klúbbs Suð ur nesja tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í sveitakeppninni öldunga á Strandarvelli
á Hellu sl. laugardag. GS vann GK í úrslitaleik,
2-1.
Keppnin í kvennaflokki í sveitakeppni öldunga
var söguleg. Þar hafa konurnar úr GK og GR ein-
okað efsta sætið þar til í ár. Ballið byrjaði þegar
sveit Golfklúbbs Reykjavíkur og Golfklúbbs Suður-
nesja áttust við í undanúrslitum. Fyrirliði GS Guð-
finna Sigurþórsdóttir hafði farið línuvillt þegar
hún skráði liðið til leiks þar. Hún hafði skráð þær
sem áttu að leika einliðaleikinn saman í tvíliðaleik
og hinar sem áttu að leika tvíliðaleikinn óvart
í einliðaleik. Þessi mistök komu flott út því GS
konurnar sigruðu öllum að óvörum. Voru þær þá
komnar í úrslit á móti Golfklúbbnum Keili, meist-
urum síðustu ára, sem sigrað hafði Nesklúbbinn
í hinum undanúrslitaleiknum. Suðurnesjadöm-
urnar gerður sér lítið fyrir og lögðu meistarana
örugglega og var að sjálfsögðu mikill fögnuður í
herbúðum þeirra á eftir.
Áslaug og Hólmgeir sigruðu
á Georg V. Hannah mótinu
Georg V. Hannah mótið í pútti fór fram á Mána-túni í Reykja nes bæ
fimmtudaginn 24. ágúst sl. á
vegum Púttklúbbs Suðurnesja.
Áslaug Ólafsdóttir sigraði í
kvennaflokki og í karlaflokki
var Hólmgeir Guðmundsson
hlutskarpastur.
Úrslit í mótinu:
Konur:
Áslaug Ólafsdóttir 70
Ása Lúðvíksdóttir 71
Regína Guðmundsdóttir 71, en
tapað í umspili við Ásu.
Karlar:
Hólmgeir Guðmundsson 65
Marinó Haraldsson 67
Hafsteinn Guðmundsson 68
Áslaug var í stuði á fimmtudag
en auk þess að vinna kvenna-
flokkinn fékk hún einnig flest
bingó, eða holu í höggi, en
þau voru sex talsins. Valgeir
Sigurðsson fékk flest bingó í
karlaflokki en þau töldu átta.
Ljósanæturmótið í pútti hefst
í dag kl. 13:00 og er öllum
velkomið að taka þátt.
SpKef styrkir UMFN
Sparisjóðurinn í Keflavík og Knattspyrnudeild Ung-mennafélags Njarðvíkur
skrifuðu á dögunum undir
samstarfssamning til tveggja
ára. Spari sjóð ur inn hef ur
verið aðalstyrktaraðili meist-
araflokks karla undanfarin 6
ár og nú var ákveðið að styrkja
alla aldursflokka hjá UMFN.
Samningurinn nær því til keppn-
isliða UMFN í meistaraflokki
og öllum yngri flokkunum.
Þannig nýtist styrkurinn vel til
alls starfs knattspyrnudeildar-
innar. Allir flokkar deildarinnar
bera nú merki SpKef á keppnis-
búningum sínum. Á myndinni
sjást Baldur Guðmundsson og
Ásdís Ýr Jakobsdóttir frá Spari-
sjóðnum og Leifur Gunnlaugs-
son og Andr és Ottó son frá
UMFN við undirritun samnings-
ins með strákana úr 4 flokki sér
til stuðnings.
Landsliðið heim úr æfingaferð
Íslenska karlalandsliðið í körfuknattleik kom á mánudag til Íslands eftir fimm daga æfingaleikjaferð til Hollands og Írlands.
Sjö Suðurnesjamenn tóku þátt í æfingaferðinni. Ísland tapaði
gegn Hollendingum og Svíum í Hollandi en hafði sigur gegn
Belgum. Á Írlandi léku Íslendingar gegn Írum og töpuðu þar
72-54 þar sem Brenton Birmingham var stigahæstur með 13
stig. Íslenska liðið hafði svo yfirburðasigur gegn Norðmönnum
79-53 á sunnudag. Næst á dagskrá hjá landsliðinu er Evrópu-
keppni B-þjóða sem hefst miðvikudaginn 6. september með
leik gegn Finnum í Laugardalshöll. Liðið leikur einnig gegn
Georgíu, Lúxembourg og Austurríki í keppninni.
Sigurvegarar í kvennaflokki.
Sigurvegarar í karlaflokki.
Sveitina skipuðu þær Magdalena, Ingibjörg, Bjargey,
Guðný, Ólafía og Guðfinna sem var liðsstjóri.