Víkurfréttir


Víkurfréttir - 31.08.2006, Qupperneq 33

Víkurfréttir - 31.08.2006, Qupperneq 33
33ÍÞRÓTTASÍÐUR VÍKURFRÉTTA ERU Í BOÐI LANDSBANKANS VÍKURFRÉTTIR I ÍÞRÓTTASÍÐUR Gunnar reynir við Heimsbikarinn Gunnar Gunnarsson er stadd ur í Finn landi þar sem hann berst um Heimsbikartitilinn í torfæru- akstri á Trúðnum landsfræga. Fimm bestu mótin af sex telja til úrslita og deila Gunnar og Gísli Gunnar Jónsson efstu sæt- unum í torfærunni um þessar mundir. Keppt verður á morgun, föstu- dag, og laugardag en þetta eru keppnir 3 og 4. Síðustu tvær keppn irn ar fara svo fram í Noregi um miðjan september- mánuð. „Brautirnar úti eru vígalegar, langar og brattar sandbrekkur og veðrið úti hefur verið gott upp á síðkastið þannig að það verður mikið ryk í keppn- inni,“ sagði Gunnar í samtali við Víkurfréttir en hann vildi koma á framfæri þakklæti til þeirra sem studdu hann til fararinnar. KEFLVÍKINGAR Í BIKARÚRSLIT Keflvíkingar munu leika til bikarúr-slita gegn KR á Laugardalsvelli þann 30. september n.k. Keflavík valtaði yfir Víkinga á mánudag 4-0 í undanúrslitum keppninnar þar sem Guðmundur Steinarsson gerði tvö mörk en þeir Jónas Guðni og Þórar- inn Brynjar gerðu sitt markið hvor. KR lagði Þrótt í hinum undanúrslitaleiknum. Jónas gerði fyrsta mark Keflvíkinga í leiknum en þetta var jafnframt hans fyrsta mark í bik- arkeppni og það gerði hann með vinstri fæti en hann er réttfættur. Jónas hefur mátt þola nokkra stríðni frá liðsfélögum sínum því hann hefur aðeins gert eitt mark í Landsbankadeild og eitt í bikar. „Ég sýndi strákunum að ég get skorað og tróð því stríðninni aftur ofan í þá,“ sagði Jónas léttur í bragði. Kristján Guðmunds- son, þjálfari Keflavíkur, var hæstánægður með leik sinna manna á Laugardalsvelli og sagði að þegar Keflavíkurliðið léki eins og þeir gerðu gegn Víkingum væru þeir besta liðið á land- inu. Keflavík og KR hafa mæst tvívegis í Lands- bankadeildinni í sumar og í fyrri leik liðanna höfðu Keflvíkingar betur 3-0 en liðin skildu jöfn í vesturbænum 2-2. Næsti leikur Keflvík- inga í Landsbankadeildinni verður þann 10. september þegar þeir fá Fylki í heimsókn kl. 14:00 en Keflvíkingar berjast nú um Evrópusæti í deildinni þar sem þeir eru í 4. sæti. Söguleg stund á Njarðvíkurvelli Fimmtíu ára saga Njarð-vík ur vall ar er senn á enda. Knattspyrnuvöll- urinn í Njarðvík var tekinn í notkun árið 1957 og hefur séð tímana tvenna. Á vellinum hafa Keflvíkingar orðið Íslands- meistarar og nú um helgina fer síðasti meistaraflokksleik- urinn á vegum KSÍ fram á vellinum þegar Njarðvíkingar taka á móti Reyni Sandgerði í sannkölluðum grannaslag. Njarðvíkingar hafa þegar tryggt sér sæti í 1. deild á næstu leiktíð en Sandgerðingum vantar eitt stig til þess að gulltryggja sæti sitt í 1. deild. Frítt verður á leik liðanna á sunnudag í boði Nes- valla en þegar leiktíðinni lýkur hefjast byggingaframkvæmdir þar sem Njarðvíkurvöllur er nú. „Staðsetning vallarins er skemmtileg og það hefur verið gott að vera hérna í gegnum tíð- ina,“ sagði Leifur Gunnlaugsson, framkvæmdastjóri Knattspyrnu- deildar Njarðvíkur. Guðmundur Rúnar Jónsson er framkvæmda- stjóri Knattspyrnudeildar Reynis en hann er Njarðvíkingur að upplagi og hefur þegar lagt inn sérkennilega bón til Leifs. „Ég er búinn að biðja um smá torfu af vellinum til þess að hafa inni á skrifstofu hjá mér í Sandgerði,“ sagði Guðmundur kátur í bragði en hann lék með yngri flokkum Njarðvíkur og vell inum því kunnugur. Bæði félögin hvetja iðkendur og aðdáendur liðanna til þess að fjölmenna á völlinn á sunnudag og hvetja sín lið til dáða í þessum síðasta risaleik á Njarðvíkurvelli. Leikurinn hefst kl. 14:00 sunnudaginn 3. sept- ember. FYRSTA MARK MICHAELS Michael Jónsson bjargaði mikilvægu stigi fyrir Grind-víkinga í botnbaráttu Landsbankadeildarinnar sl. fimmtudag. Michael gerði sitt fyrsta mark í Lands- bankadeildinni þegar hann jafnaði leik Grindavíkur og Vík- inga 1-1 á lokamínútum leiksins. Grindvíkingar hafa nú 18 stig í 7. sæti deildarinnar og leika næst gegn Valsmönnum mánudaginn 11. september. Á botni deildarinnar eru ÍBV með 14 stig, ÍA hefur 17 og Grindavík og Breiðablik hafa 18 stig þegar þrjár umferðir eru eftir. Leifur og Guðmundur á Njarðvíkurvelli. Fagnaðarlætin létu ekki á sér standa. Galdra Baldur í baráttunni.Þórarinn fagnar marki sínu. Gunnar Gunnarsson

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.