Víkurfréttir - 26.10.2006, Blaðsíða 32
32 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU • www.vf.is • LESTU NÝJASTA SPORTIÐ DAGLEGA!VÍKURFRÉTTIR I ÍÞRÓTTASÍÐUR
VF
-M
yn
d/
Þ
GK
Gömlu liðsfélagarnir
Marel og Páll mættust
fyrir skemmstu þar sem
Páll hafði betur
Loka hóf knatt spyrnu-deildar Keflavíkur fór fram í Stapa sl. laugar-
dagskvöld þar sem Guðjón
Árni Antoníusson og Guðný
Petrína Þórðardótt ir voru
valin bestu leikmenn meistara-
flokka karla og kvenna leiktíð-
ina 2006.
,,Ég átti reyndar ekki von á
þessu,“ sagði Guðný í samtali
við Víkurfréttir. ,,Þetta er því-
líkur heiður. Ég var að spila í
annarri stöðu en ég hef vana-
lega verið í og það var bara
skemmtilegt að prufa eitthvað
nýtt,“ sagði Guðný. Guðjón
Árni var sáttur við útnefning-
una og bíður spenntur eftir
næsta tímabili. ,,Mér finnst
ég hafa átt gott tímabil og það
hefur strákunum fundist líka
þar sem leikmenn standa að
kjöri besta leikmannsins. Ég er
mjög sáttur við mitt hlutverk
hjá liðinu í sumar og liðið í
heild sinni. Við vitum að við
getum gert betur og það ætlum
við að gera á næstu leiktíð,“
sagði Guðjón. Nánari útlistun
á lokahófi Knattspyrnudeildar
Keflavíkur er að finna á vf.is
GUÐNÝ OG GUÐJÓN
BEST Í KEFLAVÍK
Taekwondodeild Kefla-víkur átti góðri lukku að stýra á fyrsta bikar-
mót TSH um síðustu helgi
sem haldið var í Rimaskóla í
Grafarvogi. Gullbeltingurinn
Aron Ingi var eini keppandinn
sem hlaut verðlaun í öllum
greinum mótsins og keppti
um titilinn maður mótsins þar
sem hann féll út í bráðabana.
Rúmlega 20 krakkar frá Kefla-
vík tóku þátt í mótinu en þjálf-
ari yngri flokka deildarinnar,
Helgi Rafn, var eini þáttakand-
inn frá Keflavík í fullorðins-
flokki og hafnaði hann í 2. sæti.
Keppt var í fullorðins- og barna-
flokkum í kyorung (bardaga),
poomsae (formum) og þrauta-
braut, sem var eins og ávallt vin-
sælasta greinin hjá krökkunum.
Í þrautabraut áttu Keflvíkingar
einstaklinga í úrslitum, og af
þeim hlutu Óðinn Már silfur
og Aron Yngvi brons í flokki
eldri barna. Í keppni í poomase
(formum) var keppt eftir belta-
gráðum og átti Keflavík kepp-
endur í flokki 10-9. geup sem er
gulrönd og gult belti, og í flokki
8-7. geup sem eru appelsínugul
og græn belti. Í báðum þessum
flokkum komust strákar frá
Keflavík í úrslit. Í flokki 10-9.
geup hlaut Aron Yngvi gull.
Og í flokki 8-7. geup hlaut Jón
Steinar silfur og Kristmundur
brons. Í keppni í kyorung (bar-
daga), var raðað í þrjá flokka
eftir þyngd barna, og áttu Kefl-
víkingar marga skemmtilega
og spennandi bardaga, en á
verðlaunapall komust þó ekki
allir. Keflvíkingar geta engu að
síður borið höfuð hátt þar sem
til þeirra kom eitt gull (Aron
Ingi), tvö brons (Óðinn Már
og Guðmundur) og einnig tvö
brons (Kristmundur og Ævar).
Aron með verðlaun í öllum greinum
Íslandsmeistarar Njarð-víkur og bikarmeistarar Grindavíkur leika í Iceland
Express deild karla í kvöld. Í
Ljónagryfjunni taka heima-
menn á móti Hamri/Selfoss
og Grindvíkingar halda í Þor-
lákshöfn til að leika gegn Þórs-
urum. Á morgun mæta Kefl-
víkingar Fjölni í Grafarvogi og
hefjast allir leikirnir kl. 19:15.
Njarðvík, Grindavík og KR
eru á toppi deildarinnar eftir
fyrstu tvær umferðirnar en gert
er ráð fyrir því að Jón N. Haf-
steinsson og Daninn Thomas
Soltau verði með Keflavík í
Grafarvogi á morgun. Báðir
hafa þeir verið fjarverandi, Jón
sökum meiðsla í öxl og Soltau
sökum veikinda. Með þá inn-
anborðs styrkjast Keflvíkingar
til muna.
Toppliðin leika í kvöldÖnnur umferð Iceland E x pr e s s d e i l d a r kvenna í körfuknatt-
leik fór fram í gær en Víkur-
fréttir fóru í prentun áður en
úrslit urðu kunn. Nánar er
að finna um leikina á vefsíðu
Víkurfrétta vf.is. Næsti leikur
Keflavíkurkvenna er í Kenn-
araháskólanum í Reykjavík
á mánudag 19:15 þegar þær
mæta ÍS. Grindavík, Keflavík
og Haukar unnu öll sína leiki
í fyrstu umferð deildarinnar.
Þróttur sópaði að sér
verðlaunum
Sund deild Þrótt ar í Vogum átti góðu gengi að fagna um síðustu
helgi á B-móti KR í Laugar-
dalslaug. Alls fengu Þrótt-
arar 18 gullpeninga en þetta
var annað mótið sem nýráð-
inn þjálfari, Íris Edda Heim-
isdóttir, stýrir sunddeild
Þróttar.
Fimm silfurverðlaun og 11
bronsverðlaun komu einnig
inn á borð Þróttar og ljóst að
þarna er ungt og efnilegt fé-
lag á uppleið.
GLÆSTUR ÁRANGUR ÍRB
Mikið var að gerast hjá sundfólki ÍRB um síð-astliðna helgi en þá
fóru fram tvö sundmót.
Í Laugardalslauginni fór
fram B-mót KR sem sniðið
var að þörfum þeirra yngstu,
þangað fóru u.þ.b. 50 börn.
Þar voru ÍRB-liðar ávallt í
fremstu röð og stóðu sig vel.
Í Hafnarfirði fór fram stórmót
KB banka og SH í Sundhöll
Hafnarfjarðar. Það mót var
sniðið að eldra sundfólkinu,
með undanrásum og úrslitum.
ÍRB stóð sig sérlega vel og náðu
fimm einstaklingar inn í lands-
liðshópa SSÍ. Það voru þau Diljá
Heimisdóttir, Elfa Ingvadóttir,
Erla Dögg Haraldsdóttir, Guðni
Emilsson og Marín Hrund
Jónsdóttir. Alls á ÍRB nú átta
sundmenn í landsliðshópum
SSÍ. Til marks um árangur
helgarinnar þá féllu 12 innan-
félagsmet. Davíð Hildiberg
Aðalsteinsson með eitt met,
Elfa Ingvadóttir með tvö met,
Erla Dögg Haraldsdóttir með
tvö met, Guðni Emilsson með
eitt met, Gunnar Örn Arnarson
með tvö met, Marín Hrund Jóns-
dóttir með eitt met og Soffía
Klemenzdóttir með tvö met.
Bestu og efnilegustu leikmenn meistaraflokka Keflavíkur. Frá vinstri: Elísabet Ester
Sævarsdóttir, Guðný Petrína Þórðardóttir, Guðjón Árni Antoníusson og Baldur Sigurðsson.