Víkurfréttir


Víkurfréttir - 26.10.2006, Blaðsíða 33

Víkurfréttir - 26.10.2006, Blaðsíða 33
33ÍÞRÓTTASÍÐUR VÍKURFRÉTTA ERU Í BOÐI LANDSBANKANS VÍKURFRÉTTIR I ÍÞRÓTTASÍÐUR Á myndinni er hluti þátttakenda frá FK á Möggumótinu. Efnilegar fimleikastúlkur þar á ferð. Þann 14. október sl. fór Möggu mót ið í f im-leikum fram en mótið er nefnt eftir Margréti Einars- dóttur, stofnanda Fimleika- deildar Keflavíkur. Mótinu var skipt í tvo hluta og í þeim fyrri sýndu stúlkur fæddar ´98-´99 hvað þær hafa lært og fengu þær allar verðlaunapening í lokin og gjöf frá Samkaupum. Í seinni hlutanum var keppt í 6. þrepi íslenska fimleikastigans en eitt gestalið var á mótinu frá Ár- manni. Veitt voru verðlaun fyrir 3 efstu sætin samanlagt. Í fyrsta sæti var Guðrún Lind Ástmars- dóttir, Ármanni, með 36,65 stig, í öðru sæti var Arna Petra Sverr- isdóttir, Ármanni, með 36,55 stig og í þriðja sæti var Elfa Fals- dóttir, FK, með 36,35. Einnig fengu allir keppendur verðlauna- pening og gjöf frá Samkaup. Góðir gestir á Möggumótinu Haldin var í fyrsta skipti þrautakeppni unglinga hjá Golfklúbbi Suður- nesja sunnudaginn 15. októ- ber. Styrktaraðili mótsins var Langbest, sem gaf glæsilegan farand- og eignarbikar, sem keppt verður um næstu árin undir heitinu Langbest Þraut- arkeppnin ásamt öðrum glæsi- legum verðlaunum. Settar voru hinar ýmsu þrautir fyrir unglingana, sem þau reyndu að leysa á sem bestan hátt. Sigurvegari fyrstu þraut- arkeppninnar var Alfreð Elíasson, eftir bráðabana við Heiðu Guðnadóttur, en þau voru bæði jöfn með 48 stig eftir 10 þrautir og hafnaði Heiða þá í öðru sæti. Í þriðja til fjórða sæti voru einnig jafnir Vilhjálmur Ólafsson og Guðni Oddsson og þurfti því einnig bráðabana til að fá úrslit, en Vilhjálmur hafði betur og hafn- aði því í þriðja sæti og Guðni í fjórða sæti, í fimmta sæti varð svo Andri Þór Skúlason. Háspenna í þrauta- keppni Langbest Lokahóf og uppskeruhá-tíð unglinga í golfi var hald in í Leirunni sl. sunnudag. Styrktaraðili hófs- ins var Ótrúlega búðin. Á loka- hófinu voru leiknar 18 holur, með og án forgjafar í stúlkna og drengjaflokki ásamt nánd- arverðlaunum og lengsta teig- höggi á 6. braut. Einnig voru veitt verðlaun fyrir háttvísi, framfarir og besta ungling árs- ins. Úrslit: Stúlkur m/forgj: 1. Heiða Guðnadóttir, 73 högg nettó 2. Karen Guðnadóttir, 74 3. Guðbjörg Ylfa Jensdóttir, 81 Besta skor án forgj: Heiða Guðnadóttir, 77 högg Drengir m/forgj: 1. Vilhjálmur Ólafs- son, 63 högg nettó 2. Guðni Oddur Jónsson, 65 3. Alfreð Elíasson, 67 Besta skor án/forgj: Guðni Oddur Jónsson, 72 högg Næstur holu á 3 braut: Alfreð Elíasson Næstur holu á 16 braut: Vilhjálmur Ólafsson Lengsta teighögg: Heiða Guðnadóttir Prúðmennsku- og Háttvísiverð- lau hlaut Vilhjálmur Ólafsson. Mestu framfarir: Guðbjörg Ylfa Jensdóttir Besti ung ling ur inn 2006: Heiða Guðnadóttir. Heiða besti unglingur ársins Á laugardag skrifuðu þeir Ray Anthony Jónsson, Guð mund ur Andri Bjarnason og Andri Steinn Birgisson undir nýja samninga við knattspyrnulið Grinda- víkur. Þá mun Milan Stefán Jankovic taka við þjálfun 1. deildarliðs Grindavíkur en þar er hann öllum hnútum kunn- ugur. Milan þjálfaði liðið fyrir tveimur árum en í sumar var hann með annan flokk Grinda- víkur og tók svo við stjórn liðsins með Magna Fannberg þegar Sigurður Jónsson sagði upp störfum. Nokkur félög höfðu augastaða á Ray fyrir næstu leiktíð í Landsbanka- deildinni en Ray hefur ákveðið að taka þátt í baráttu Grindvík- inga um að vinna sér að nýju sæti í Landsbankadeildinni. Ray hefur leikið allan sinn feril með Grindavík ef frá eru taldar nokkrar vikur hjá GG og Völsungi. Ray kaus Grindavík

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.