Víkurfréttir - 21.12.2006, Side 8
8 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU • www.vf.is • LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!VÍKURFRÉTTIR I 51. TÖLUBLAÐ - JÓLABLAÐ II I 27. ÁRGANGUR
Hjónin Heimir Hávarðs-son og Pikul Skulsong opnuðu sl. föstudag
nýjan tælenskan veitingastað,
Thai Keflavík, að Hafnargötu
í Reykjanesbæ. Um er að ræða
skemmtilega nýjung í veitinga-
staðaflóruna á svæðinu og
sagðist Heimir ánægður með
viðtökurnar á fyrsta deginum.
Þar má fá hefðbundinn tæ-
lenskan mat til að taka með og
einnig má setjast niður í sal sem
tekur allt að 50 manns í sæti.
Staðurinn er líka hugsaður sem
kaffihús og býður upp á margar
gerðir af ítölsku kaffi.
Heimir segir ekkert hafa verið
til sparað til að gera þennan
stað sem glæsilegastan og eru
innanstokksmunir allir keyptir
frá Tælandi. Þá eru kokkarnir
sprenglærðir í sínu fagi og hafa
mikla reynslu af eldamennsku
bæði í heima land inu og í
Kanada.
Hádegistilboð eru alla virka
daga og hvetja eigendurnir alla
til að koma og reyna eitthvað
nýtt.
Demantsúr og demantsskartgripir
Vinningar í Jólalukkuleik Víkurfrétta eru þessa dagana að skila sér í hendur hepp-inna viðskiptavina sem gera jólainn-
kaupin á Suðurnesjum. Alls voru 5100 vinn-
ingar í pottinum og þar af 16 Evrópuferðir með
Icelandair. Ingibjörg Jónsdóttir var svo heppin
að hljóta eina slíka á miða sem hún fékk í versl-
uninni Persónu og kom hún að vitja vinningsins
á skrifstofu Víkurfrétta, þar sem meðfylgjandi
mynd var tekin.
Fjölmargir vinningar, stórir sem smáir, eru enn í
pottinum, s.s. glæsilegur sófi frá Bústoð, veglegt
gasgrill frá Kasko og fullkomin fartölva frá Tölvu-
listanum.
Veglegir vinningar í pottinum
Ingibjörg Jóns-
dóttir tekur við
vinningnum af
Aldísi Jónsdóttur í
dag. VF-mynd: elg
Góðar viðtökur á fyrsta degi
Nýr veitingastaður í Reykjanesbæ:
Jólalukka
Víkurfrétta