Víkurfréttir - 21.12.2006, Page 12
12 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU • www.vf.is • LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!VÍKURFRÉTTIR I 51. TÖLUBLAÐ - JÓLABLAÐ II I 27. ÁRGANGUR
Reykjanesbær:
Kammersveitin Ísafold og Íslenska óperan í samstarfi við Spari-
sjóðinn í Keflavík standa fyrir
Öðruvísi Vínartónleikum, í
DUUS- húsum í Keflavík 6. jan-
úar kl. 17 og í Íslensku Óper-
unni við Ingólfsstræti 7. janúar
kl. 20. Á tónleikunum verða
flutt verk eftir Mahler sem
voru útsett fyrir kammersveit
og flutt af „Félagi um einka-
flutning tónverka“ (Verein
für Musikalische Privatauffu-
hrungen), sem tón skáld ið
Arnold Schönberg stofnaði
ásamt fleirum í Vínarborg árið
1918. Hljómsveitarstjóri er
Daníel Bjarnason. Einsöngv-
arar á tónleikunum eru Ágúst
Ólafsson, barítón, og Hulda
Björk Garðarsdóttir, sópran.
Þetta er annað árið í röð sem
kammersveitin Ísafold flytur
verk af þessu tagi undir yfir-
skriftinni Öðruvísi Vínartón-
leikar. Miðaverð á tónleikana
er aðeins kr. 2.000 og fá náms-
menn 2 fyrir 1 gegn framvísun
skólaskírteinis. Miðasala á tón-
leikana í Keflavík fer fram í Ís-
lensku óperunni og einum og
hálfum tíma fyrir tónleikana í
DUUS-húsum.
Nánari upplýsingar um tónleik-
ana er að finna á Óperuvefnum
www.opera.is
Kammersveitin Ísafold flytur öðruvís vín-
artónlist í DUUS-húsum í byrjun janúarFRÉTTASÍMINN
SÓLARHRINGSVAKT
898 2222