Víkurfréttir - 21.12.2006, Blaðsíða 27
VÍKURFRÉTTIR I FIMMTUDAGURINN 21. DESEMBER 2006 27STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM
Sveitarfélagið Garður:
Bæ j a r s t j ó r n G a r ð s ákvað á fundi sínum í s í ð u s t u v i k u a ð
hækka útsvarsprósentu upp í
13.03% sem er hámarksútsvar.
Reiknað er með því að tekjur
sveitarfélagsins muni hækka
um 8 milljónir króna vegna
þessara breytinga.
Í greinargerð meirihlutans
segir:
Sveitarfélagið Garður hefur
undanfarin ár tekið stór lán ár
hvert. Áætlað er að afborganir
þessara lána verði á árinu 2007
um 88 milljónir króna eða um
16,4% af áætluðum tekjum bæj-
arins. Lántakan hefur verið
nauðsynleg þar sem tekjur sveit-
arfélagsins hafa ekki nægt fyrir
rekstri málaflokka, gatnagerð og
fjárfestingum. Sveitarfélag sem
vill veita íbúum góða þjónustu
og stendur frammi fyrir stórum
verkefnum, s.s. lagfæringu á
fráveitu- og holræsakerfi í sam-
ræmi við lagasetningar, er nauð-
syn að nýta tekjustofna sína. Af
66 sveitarfélögum með yfir 1000
íbúa eru aðeins 8, Garður þar
með talinn, sem eru nú með
aðra útsvarsprósentu en 13,03%.
Tekjur hinna 7 sveitarfélaganna
á hvern íbúa eru mun hærri en
tekjur á hvern íbúa Sveitarfélags-
ins Garðs. Reikna má með um
8 milljón króna tekjuaukningu
sveitarfélagsins vegna þessa
breytinga.
Tillagan að hækkuninni var sam-
þykkt með 4 atkvæðum meiri-
hluta N-lista. Fulltrúar F-lista
sátu hjá.
Garðurinn hækkar
útsvarsprósentu
Áramótablað Víkurfrétta í næstu viku!
AUGLÝSINGASÍMINN ER 421 0001