Víkurfréttir - 21.12.2006, Blaðsíða 43
VÍKURFRÉTTIR I FIMMTUDAGURINN 21. DESEMBER 2006 43STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM
Nýsamþykkt fjárhagsá-ætlun Reykjanesbæjar fyr ir árið 2007 ber
þess merki að
upp bygg ing
síðustu ára er
þegar farin að
renna styrkari
stoðum undir
reksturinn bæj-
arsjóðs. Heild-
artekjur bæjar-
sjóðs eru áætlaðar 4.836 m.kr.
Íbúafjölgun nemur rúmlega
8% á síðast liðnum 2 árum.
Íbúafjöldi í desember 2004 var
10.954 en nálgast nú 11.900
fyrir árslok 2006. Fjölgað hefur
um liðlega 4,5% á þessu ári.
Þessi fjölgun er athyglisverð í
ljósi þeirrar staðreyndar að á
Keflavíkurflugvelli urðu á árinu
mestu hópuppsagnir íslenskrar
atvinnusögu en flestir þeirra
sem misstu vinnuna voru úr
Reykjanesbæ. Góð þjónusta í
Reykjanesbæ, aukin atvinnu-
starfsemi á svæðinu og betri
tengingar við höfuðborgar-
svæðið virðast stuðla að því að
þessir íbúar velji áframhaldandi
búsetu í Reykjanesbæ auk þess
sem nýjar fjölskyldur flytja á
svæðið.
Fjárhagsáætlun bæjarins sýnir
skýr merki þess að reksturinn
sé að styrkjast. Tekjuaukning
síðustu ára hefur verið mikil en
áætlunin gerir ráð fyrir að rekstr-
arafgangur bæjarsjóðs nemi
tæpum 6 m.kr. og afgangur sam-
stæðu nemi tæpum 72 m.kr. Í
rekstrarniðurstöðu er reiknaður
allur kostnaður vegna fasteigna
og nýbygginga í sveitarfélaginu.
Fjármunamyndun rekstrar er að
batna og rekstur bæjarsjóðs og
samstæðu að styrkjast. Veltufé
frá rekstri er áætlað 256 m.kr.
fyrir bæjarsjóð og ríflega 277
m.kr. fyrir samstæðu.
Áætlun 2007 gerir ráð fyrir að
skatttekjur verði 3.484 milljónir
og hafa hækkað um ríflega 40%
frá árinu 2004. Helstu ástæður
hækkunarinnar má rekja til
fólksfjölgunar, hækkunar fast-
eignaverðs og ekki síst miklum
launahækkunum en þær eru sá
þáttur sem vegur einna þyngst í
hækkun útsvars.
Útsvarsprósenta verður áfram
12.7% sem er talsvert undir
landsmeðaltali. Afsláttur á fast-
eignagjöldum elli- og örorkulíf-
eyrisþega hefur verið hækkaður
um 30%.
Áfram verður veittur 25% af-
sláttur á lóðaleigu til þeirra sem
greiða 2% af lóðamati og þannig
er dregið úr mismun sem verið
hefur á milli þeirra sem greiða
lóðarleigu sem hlutfall af fast-
eignamati lóðar og þeirra sem
greiða samkvæmt hlutfalli af
verkamannakaupi.
Helstu áhersl ur og fram-
kvæmdir sem fyrirhugaðar eru
á árinu miða að því að renna
enn styrkari stoðum undir stöðu
Reykjanesbæjar sem fjölskyldu-
vænsta sveitarfélags á landinu
og áfram verður unnið að því að
bæta þjónustu við íbúa á öllum
aldursskeiðum.
Nánari upplýsingar um helstu
verkefni og tillögur í fjárhags-
áætlun 2007 má finna á vef
Reykjanesbæjar.
Árni Sigfússon
Bæjarstjóri Reykjanesbæjar
æÁrni Sigfússon skrifar:
Fjölgun bæjarbúa
styrkir stoðir bæjarsjóðs
Næsta tölublað Víkurfrétta
kemur út föstudaginn 29. desember.
Lokum skrifstofum Víkurfrétta
föstudaginn 22. desember kl. 12:00
Skriftofa VF opnar aftur miðvikudaginn 27. des kl. 09