Víkurfréttir - 21.12.2006, Side 44
44 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU • www.vf.is • LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!VÍKURFRÉTTIR I 51. TÖLUBLAÐ - JÓLABLAÐ II I 27. ÁRGANGUR
Sú hefð að höggva barrtré og færa inn í stofu og hafa þar upplýst og skreytt um jólin er rakin til Þýskalands á 16. öld. Hér
á landi breiddist þessi siður ekki út fyrr en á
19.öld og barrtré fóru ekki að vera almenn í
stofum landsmanna fyrr en á síðustu öld. Er
það skiljanlegt því barrviðir uxu einfaldlega
ekki í landinu í þúsundir ára. -Reyndar er ein-
irinn þar undanskilinn, því hann telst til barr-
trjáa þó lágvaxinn sé og yfirleitt skriðull um
sunnanvert landið.
Á seinni árum hefur sá siður víða breiðst út að fjölskyldur fara saman í skóga skóg-ræktarfélaganna og höggva sér tré og
gera sér glaðan dag að öðru leyti. Koma þar oft
jólasveinar, kakó og piparkökur við sögu. Með
þessu vinnst margt: Skógurinn er grisjaður og
verður þar með bjartari og auðveldari yfirferðar
og þau tré sem eftir standa vaxa betur eftir
en áður. Þá hefur sala á lágum jólatrjám með
hnaus aukist undanfarin ár, eru þá trén höfð
í stofu í potti en hljóta hæfilega kælingu inn á
milli og eru loks gróðursett úti í garði eða við
sumarbústað eftir hátíðar. Tekjur þær sem
skógræktarfélögin fá af þessu nýtast til eflingar
starfseminnar, meðal annars til ræktunar nýrra
skóga.
Um það bil 40.000 jólatré eru seld hér ár-lega, þar af aðeins um 7.000 sem ræktuð eru innanlands, hin eru að mestu flutt
inn frá Danmörku. Innlenda framleiðslu má
þó hæglega auka og er víða stefnt að því. Með
því verður virðisaukinn eftir í landinu, með
því eflum við skógræktina og hröðum skóg-
væðingu landsins. Íslensk tré eru, með réttri
meðhöndlun, betri en þau innfluttu, þau eru
nýhöggvin og vistvæn því við ræktun þeirra eru
ekki notuð eiturefni eins og algengt er erlendis.
Á seinni árum hefur aukist sala á ,,gervi-jólatrjám“, en þau eru skiljanlega illa séð af skógræktarmönnum! Þeir telja ekkert
jafnast á við nýtt ilmandi tré vaxið upp úr ís-
lenskri mold, það sé hið eina sanna jólatré.
Kristján Bjarnason
ALVÖRU JÓLATRÉ
Lokum skrifstofum Víkurfrétta
á hádegi föstudaginn 22. desember.
Opnum aftur kl. 09 miðvikudaginn 27. desember.
Auglýsingasíminn er 421 0000.
KRISTJÁN BJARNASON MEÐ PISTIL: