Víkurfréttir


Víkurfréttir - 27.03.2014, Blaðsíða 12

Víkurfréttir - 27.03.2014, Blaðsíða 12
fimmtudagurinn 27. mars 2014 • VÍKURFRÉTTIR12 Hófst með samstarfi sjö sveitarfélaga Þetta eru veruleg tímamót þegar allur rekstur af Garðvangi er að flytja á Nesvelli. Ef þú rifjar upp þessa sögu, hvernig þetta byrjaði allt saman. „Þetta hófst með því að sveitar- félögin á Suðurnesjum, sem þá voru sjö, tóku sig saman um rekstur dvalarheimilis hér á Garðvangi. Þau keyptu þá þetta fyrsta húsnæði sem var risið þá og hét þá Gríms- hóll. Þá var þetta dvalarheimili og hér bjuggu 22 aðilar. Þróunin hér hefur verið sú að við bættum við árið 1984. Síðar var bætt við allri aðstöðu eins og sal fyrir félagsstarf, hand- og fótsnyrtingu og fleira árið 1996. Þetta þróaðist þannig að þegar mest var hér þá bjuggu hér liðlega 40 aðilar en Garðvangur breytist hægt og rólega úr dvalar- heimili yfir í hjúkrunarheimili og hefur verið hjúkrunarheimili allar götur síðan 1986“. Keflavíkurbær hafði rekið Hlévang frá árinu 1958 en Dvalarheimili aldraðra á Suðurnesjum yfirtaka reksturinn árið 1981. Þá voru þret- tán einstaklingar á Hlévangi og það voru allt dvalarrými. Árið 1992 var lokið við að byggja við Hlévang og heimilismenn þar verða þrjátíu talsins og allt í dvalarrýmum. „Rýmin á Hlévangi breyttust svo hægt og rólega yfir í hjúkrunarrými þar sem fólkið var að eldast og var að koma veikara inn á heimilið en áður og nú eru þar 30 hjúkr- unarsjúklingar. Hrafnista tók yfir rekstur þess heimilis þann 1. mars sl. og heimilisfólkið af Garðvangi flutti á Nesvelli um þarsíðustu helgi“. Hvað hafa margir dvalið á Garðvangi? „Við erum mjög nálægt því að hér hafi farið í gegn 450 aðilar á Garðv- angi og 230 manns verið heimilis- menn á Hlévangi í gegnum tíðina, þannig að það eru að nálgast 700 manns sem hafa búið á þessum heimilum á minni vakt“. Já, þú ert búinn að vera hérna frá upphafi. „Já, ég byrjaði hérna 1. nóvember 1976 en þá hafði enginn fengist til að sjá um launamál og annað, þannig að ég lét til leiðast að fara í þetta. Þetta þróaðist áfram, það fékkst ekki í þetta starfsmaður og ég var með þetta í hlutastarfi og gerði þetta með aðstoð konunnar minnar sem sá um launaútreikn- inga og eitt og annað. Það gerðist svo ýmislegt fleira, þannig að ég var ekki einvörðungu í þessu í 37 ár, það var sem betur fer meiri fjöl- breytni í þessu líka“. Kynnst alveg ótrúlega mörgu fólki Hvað er eftirminnilegast frá þessum tíma hjá dvalarheimilum aldraðra? „Þú kynnist alveg ótrúlega mörgu fólki. Af því heimilisfólki sem var hér að flytja á Nesvelli þá voru tveir sem hafa verið hér á Garðvangi í nær 10 ár. Fyrr á tíð var heimilis- fólk hér enn lengur þegar þetta var dvalarheimili. Ég þekkti mikið af eignaraðilum DS, sveitarstjórnar- mönnunum, í krafti þess að ég var það sjálfur hér í Garðinum. Þannig var þetta léttara, því ég hafði kynni af þessu fólki á öðrum vettvangi“. Hvernig finnst þér skilningur rík- is og bæjar vera á því sem fer fram á þessum heimilum? „Ef við tölum um eignaraðilana að DS, þ.e. Reykjanesbæ, Sandgerði, Garð og Voga, þá er skilningur þeirra prýðilegur. Hér á Garðvangi stóðu menn frammi fyrir því að það þurfti að leggja töluvert fjár- magn til endurbóta ef við ætluðum að reyna að nálgast þær kröfur sem gerðar eru af hálfu hins opinbera til hjúkrunarrýma í dag. Rekstur hjúkrunarheimila á Íslandi er þungur. Hið opinbera hefur viður- kennt að daggjöldin eru of lág. Vonandi stendur það til bóta að það verði léttara fyrir reksturinn. Hjá sveitarfélögunum eru menn vel opnir fyrir þörfum þessara heimila“. Reksturinn hefur orðið flóknari með árunum þar sem þeir sem koma hingað inn eru veikari? „Já, og það sem fólk hefur alla tíð átt erfitt með að sætta sig við er, að hafi fólk haft góðar tekjur og talsverðan lífeyrissjóð þá er þann- ig komið núna að fólk er farið að taka töluverðan þátt í dvalarkostn- aði sínum. Það finnst mörgum ekki sanngjarnt. Fólk getur þurft að borga með sér 350-60 þúsund krónur ef fjárhagur þess er þannig. Það leiðinlega sem okkur varðar sem rekstraraðila er að við fáum pappíra sem segja, þú átt að inn- heimta þetta mikið hjá þessum aðila. Síðan eigum við að skila þessu til Tryggingastofnunar. Ef að við náum ekki þessum fjármunum frá heimilisfólkinu, þá draga þeir það frá daggjöldunum næsta mánuð á eftir. Við höfum ekkert með þessa peninga að gera annað en að innheimta þá. Eins og vel er hægt að ímynda sér, þá er ekki alltaf skemmtilegt að rukka fólk um fleiri hundruð þúsund, vegna þess hversu góðan lífeyri það hefur unnið sér inn“. Þeir sem eiga meiri pening, þeir þurfa að borga meira. Hver eru viðbrögð ættingja sem hjálpa sínu fólki? „Það tekur oft tíma að koma því í skilning um þetta. Skrifstofustjór- inn hjá mér til 28 ára, Guðrún Ey- vindsdóttir, hefur þetta verkefni. Hún er ósköp þægileg viðureignar og það hefur því aldrei skapast leiðinlegt ástand þess vegna“. Glæsileg aðstaða á Nesvöllum Hvernig finnast þér svo aðstæður á Nesvöllum og þessar breyt- ingar? „Þetta er glæsileg aðstaða og þetta er það sem koma skal. Hvort að rýmið á að vera 32 fermetrar nettó, eða 27 fermetrar eða eitthvað annað - það kostar mikið að byggja svona heimili. Þetta eru glæsi- legar vistarverur og gefur ekki eftir öðrum nýjum heimilum sem ég hef skoðað á landinu“. Hvernig er tilfinningin að sjá þetta heimili hér í Garðinum tómt og alla vistmenn farna á nýjan stað. Hvernig er sú tilfinn- ing? „Við áttum mjög erfitt þegar fólkið -viðtal pósturu pket@vf.is Finnbogi Björnsson hefur verið framkvæmdastjóri Dvalarheimila aldraðra á Suðurnesjum [DS] í 37 ár. Á þessum árum hafa heimilis- menn á Garðvangi og Hlévangi verið næstum 700 talsins að ótöldu öllu starfsfólkinu. Finnbogi segir líka að það sé eftirminnilegast frá öllum starfsárunum hjá DS hvað hann hafi kynnst mörgu fólki. Það var því líka undarleg stund á sunnudegi fyrir næstum hálfum mánuði þegar allt fólkið á Garðvangi borðaði saman hádegisverð í matsal heimilisins. Eftir að hafa fengið nautagúllas og tertusneið komu ættingar heimilisfólks og sóttu það og fluttu á nýtt heimili á Nesvöllum í Reykjanesbæ. Eftir sat Finnbogi í yfirgefnu hjúkrunar- heimilinu í Garðinum sem var áður heimili allt að 40 einstaklinga og örugglega stærsti kvennavinnustaður byggðarlagsins. Víkurfréttir tóku hús á Finnboga daginn eftir að Garðvangur lokaði og ræddu við hann um starf hans hjá Dvalarheimilum aldraðra á Suðurnesjum og þau tímamót sem eru nú í öldrunarmálum á svæðinu. n Finnbogi Björnsson hefur verið framkvæmdastjóri DS í 37 ár: ÁTTUM MJÖG ERFITT ÞEGAR FÓLKIÐ VAR AÐ FARA Finnbogi ásamt Halldóru Ingi- björnsdóttur á gangi Garðvangs. Halldóra bjó alla sína tíð á Flanka- stöðum við Sandgerði og var kennari við Gerðaskóla í fimm ára- tugi. Hún hefur síðustu ár dvalið á Garðvangi en er nú flutt á Nesvelli eins og 37 aðrir heimilismenn af Garðvangi. Aðalheiður Valgeirsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá DS, kveður Bergþóru Ólafsdóttur sem var að flytja á Nesvelli.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.