Víkurfréttir - 10.07.2014, Qupperneq 9
VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 10. júlí 2014 9
inn. Ætlaði að hafa hann á gamlárs-
dag en kannski linast ég eitthvað
við það og verð lengur.“ Hirti finnst
þó alveg kominn tími til að sleppa
takinu. „Ég hef engar áhyggjur af
því að hafa ekki neitt að gera. Á
fullt af barnabörnum og svona,“
segir hann og brosir breitt. Einn-
ig hafi hann ákveðnar skoðanir á
því hvernig næsti bæjarritari á að
hafa hlutina. „En það verður að
koma í ljós í haust þegar búið er
að búa til nýjar starfsreglur sem
verið er að vinna að. Eflaust koma
tillögur að breytingum á hinu og
þessu og einhverjar breytingar á
starfi bæjarritara. Kannski verður
úttektin í mínum anda eða ekki.
Í raun er hlutverk bæjarritara dá-
lítið að vera ráðgjafi og aðstoða hin
sviðin við ráðgjöf og ákvarðana-
tökur. Ef menn eru ekki vissir er
stundum gott að leita til bæjar-
ritara. Stundum,“ segir Hjörtur og
glottir stríðnislega.
Bað um orðið en mátti ekki
Hjörtur er ánægður á margan hátt
með hvernig starf hans hefur þróast
í tímans rás. Tími hans fari meira í
að tala við fólk en að grúska í papp-
írum. „Það er líka miklu skemmti-
legra því ég á þægilegt með sam-
skipti við fólk í dag. Kannski var
ég órabelgur hér áður. Ég er sífellt
að hlusta á skoðanir og viðhorf en
verð stundum að steinþegja. Það
var mjög erfitt þegar ég var ný-
tekinn við. Ég stóð mig stundum
að því að biðja um orðið - sem ég
mátti ekki. Þá hafði ég miklar skoð-
anir og mikið að segja. Ég hef lært
að mínar skoðanir skipta ekki eins
miklu máli og að betra sé að eiga
þær út af fyrir mig,“ segir Hjörtur
kíminn.
Keppi aðeins við sjálfan mig
„Við erum með lykilfólk sem er
einnig komið á aldur. Þar með
fer mikil reynsla en einnig verður
endurnýjun. Spurður um hvaða
eiginlegar hans hafi blómstrað í
starfi bæjarritara segir Hjörtur að
upphaflega hafi hann verið mikill
keppnismaður. „Ég er alinn upp við
það og kepptist því við að gera góða
hluti. Var miklu villtari og brýndi
raustina kannski einum of oft. En
það eldist af manni.“ Hjörtur er enn
kappsfullur og segist fá útrás með
því að þjálfa í hádeginu. „Ég hef
alltaf verið íþróttatengdur; hef alltaf
synt, hjólað eða eitthvað. Líkamlegt
ástand skiptir öllu máli. Aldrei ves-
en með vöðvabólgu vegna mikillar
setu. Ég held ég hafi aðeins misst
tvo daga úr vinnu vegna brjósk-
losaðgerðar en þá var ég fljótur að
jafna mig vegna þess að ég var í góðu
formi.“ Hann sé samt ekki neinn
öfgamaður. „Ég er hættur að keppa
við aðra en sjálfan mig og geri þetta
til að halda góðri heilsu. Ég hef kom-
ist vel frá starfi mínu sem bæjarritari
og mun hætta mjög sáttur,“ segir
Hjörtur að endingu.
PALLA
TILBOÐ
SÓLPALLURINN
Á LÆGRA VERÐI!
100% verðöryggi
og 5 ára ábyrgð á
öllu pallaefni
í Húsasmiðjunni.Nú er rétti tíminn til
þess að smíða pallinn!
Komdu á Palladaga Húsasmiðjunnar og fáðu
tilboð í pallaefnið fyrir draumasólpallinn og
gasgrillið færðu í kaupbæti!
Það gerist varla betra!
Gæð
i
og g
ott ve
rð
– við
bjóð
um b
æði
Húsa
smið
jan b
ýður
aðein
s
fyrsta
flokk
s AB
gag
nvar
ið
timb
ur, fr
á fram
leiðe
ndum
sem
nota
viður
kenn
d efn
i
gagn
vart u
mhve
rfi
og he
ilsu.
ALLT FRÁ GRUNNI AÐ GÓÐU HEIMILI
SÍÐAN 1956
HLUTI AF BYGMA
GASGRILLIÐ
FYLGIR!
Ef þú kaupir pallaefni
fyrir 100.000 kr. eða meira
færðu Outback gasgrill
í kaupbæti.
GARÐPLÖN
TU
ÚTSALAN
ER HAFIN!
20-50%
AFSLÁTTUR
Almenningur horfir öðruvísi á bæjarstjórann
Sem bæjarritari segist Hjörtur þurfa að vera hlutlaus aðili en bæjar-
stjóri geti aftur á móti verið pólitískur. „Ef við erum með ópólitískan
bæjarstjóra þá er hann dálítið háður þessu pólitíska valdi og sigla
á milli þriggja flokka. Aftur á móti getur stundum verið erfitt fyrir
pólitískan bæjarstjóra að ná eins vel til bæjarbúa þegar þeir standa
annars staðar í pólitík. Það er kannski síður erfitt fyrir þann ópólitíska.
Almenningur mun kannski horfa á þetta aðeins öðruvísi.“ Hjörtur
bætir við að töluverðar breytingar verði á skrifstofuhaldinu þegar nýr
bæjarstjóri tekur við, líklega upp úr miðjum ágúst.
Maður þurfti að snapa peningum fyrir launum en núna
kemur útsvarið bara sjálfkrafa inn. Ég þurfti áður fyrr að
hringja í stóra vinnuveitendur og spyrja hvort þeir ætluðu
ekki að borga svo við ættum fyrir laununum. Elíft vesen
Á síðasta ári brotnaði fundarhamarinn
í fjöri á bæjarstjórnarfundi. Hjörtur
heldur hér á hamrinum góða.
Hjörtur sat fyrsta bæjarstjórnarfund nýrrar
bæjarstjórnar Reykjanesbæjar nýlega sem
bæjarstjóri. Hann hefur setið um 600 fundi
sem bæjarritari í þá tæpu þrjá áratugi sem
hann hefur starfað á bæjarskrifstofunum.