Víkurfréttir


Víkurfréttir - 17.07.2014, Blaðsíða 8

Víkurfréttir - 17.07.2014, Blaðsíða 8
fimmtudagurinn 17. júlí 2014 • VÍKURFRÉTTIR8 Reggíhljómsveitin Hjálmar fagnar 10 ára starfsaf- mæli sínu á þessu ári. Hljómsveitin varð til í Reykja- nesbæ á sínum tíma en þá kynntust félagarnir Guðmundur Kristinn Jónsson og Sigurður Guð- mundsson. Þeir Siggi og Kiddi voru fastagestir hjá Rúnari Júlíussyni á Skólaveginum en þar gæddu þeir sér á Villa-borgara og stofnuðu hljómsveitina Fálka frá Keflavík. Blaðamaður Víkurfrétta settist niður með Sigga og Kidda í Hjálmum í hljóðveri Geimsteins og fór yfir feril þessarar merku sveitar. Hvernig lágu leiðir ykkar saman í tónlistinni? Siggi: Við hittumst bara á Villabar held ég og í framhaldi af því byrj- uðum við í hljómsveitinni Fálkar frá Keflavík. Kiddi: Þá var ég að klára FS, seint en örugglega og þá ætluðu allir sem ég var með í hljóm- sveit á þeim tíma að fara í sitthvora áttina, einn ætlaði að verða flug- maður og annar organisti. Þá spáði ég í hvort ég ætti að hætta bara í tónlistinni og gerast líka flugmaður eða eitthvað slíkt eins og vinirnir voru að gera en þá hitti ég Sigga á Villabar og við stofnuðum hljóm- sveitina Fálka. Það var „instrumen- tal“ hljómsveit, sem sagt enginn söngur. Ég veit ekki af hverju Siggi vildi aldrei syngja þá. Siggi: Ég var bara ekki búinn að fá almennilega rödd. Kúlurnar voru ekki komnar á réttan stað (hlær). Siggi: Til að byrja með vorum við að æfa og taka upp í skúrnum hjá Kidda á Hringbrautinni. Kiddi: Þar var ég með mitt fyrsta stúdíó á Hringbraut 60. Ég var nýbúinn að kaupa mér nýjustu upptökug- ræjur sem hétu Produce og Rúnar var ennþá að taka upp á teip og Júlli sonur hans bað mig um að koma með það yfir í Geimstein. Þá fékk ég aðstöðu þar og við eiginlega sameinuðum þessi tvö stúdíó. Þá fórum við að dvelja mikið hér og gerðum plötuna með Rúnari „Það þarf fólk eins og þig.“ Hvernig verða Hjálmar til? Siggi: Þegar við gerðum þessa plötu með Rúnari þá heimtaði hann að hann vildi hafa ein- hver reggílög á þessari plötu. Við fórum því að skoða hvernig ætti að gera þetta, fórum á google þess tíma eða „ircið“ en fengum litlar upplýsingar þar. Við náðum samt að krafsa okkur í gegnum þetta. Í kjölfarið á þeirri plötu fæddist þessi hugmynd að þetta væri ekki svo galið að prófa þennan tón- listarstíl. Kiddi: Þetta hentaði ágætlega, það var ekki erfitt fyrir mig að spila þennan rythmagítar og ég hugsaði með mér að það væri fínasta ævi- starf. Við fórum því að prófa okkur áfram. Fundum „Best of “ reggí- plötu í hillunni frá 1975 og próf- uðum að spila eitt lag af plötunni. Það varð svo lagið „Kindin Einar“. Þarna voru það bara ég og Siggi og strákur sem heitir Kiddi Agnars á trommur. Siggi spilaði eiginlega bara á öll hin hljóðfærin. Kiddi Agnars átti síðan vin að austan sem kemur með Steina inn í bandið. Þá fer þetta að verða alvöru hljóm- sveit. Seinna fengum við bassa- leikarann. Voruð þið reggí-aðdáendur fyrir þetta? Siggi: Já ég hafði nú hlustað eitt- hvað á þetta en Kiddi hafði það ekki. Þið blandið síðan inn í þetta al- þýðu- eða þjóðlagatónlist? Siggi: Já það kom með Þorsteini af því að hann var með þann bak- grunn. Hann var aðallega blúskarl en hafði gert plötu í Svíþjóð með reggí-ívafi. Þetta kom svo bara af sjálfu sér, þetta þjóðlagasánd með Steina enda er hann bara eitt þjóð- lag út í gegn. Nú fagnið þið 10 ára afmæli, hefðuð þið getað ímyndað ykkur það fyrir 10 árum? Siggi: Ég er pínu svekktur að það sé búið að skipta um sófa hérna á Skólaveginum en að öðru leyti er allt voða svipað hérna í Geim- steini eins og það var fyrir 10 árum síðan. Við erum orðnir aðeins skeggjaðri, stífari í bakinu og með örlítið stærri bumbu. Kiddi: En að vera hér ennþá í Hjálmum 10 árum seinna, Rúnar sagði eitt sinn við okkur að þegar þú ert orðinn þrítugur, þá ertu bara búinn. Þá snýrðu þér að einhverju öðru. Þannig var viðhorfið til poppara í gamla daga. En núna er Neil Yo- ung að fylla Laugardalshöllina og fólk heldur áfram, sem ég kann vel að meta. Bönd eins og Gus- Gus hætta t.d. ekkert. Sama með okkur, við vissum þegar við byrj- uðum að þegar hljómsveit byrjar að verða vinsæl að þá mun hún detta úr tísku. Eins og allt annað. Aðal málið er að halda áfram að gera það sem maður fílar og hefur gaman af, það skiptir mestu máli. Rak hljómsveitina á heimilis Visa-kortinu Árið 2006-2007, hvers vegna kom pása þá? Kiddi: Þá voru þrír Íslendingar og þrír Svíar í hljómsveitinni og ég rak hljómsveitina á heimilis-Visa kort- inu og Svíunum var flogið heim aðra hverja helgi. Þeir vildu vera í Svíþjóð þar sem þeir áttu börn sumir. Þegar þetta var orðið að- eins of mikið, búið að ganga svona í um þrjú ár, þá ákváðum við að taka pásu. Svíarnir vildu láta reyna á heimamarkaðinn og það gekk mjög vel hjá þeim í því sem þeir tóku sér fyrir hendur. Ástæðan af hverju við byrjuðum aftur er að skatturinn fann eitthvað athuga- vert við heimilisbókhaldið, ég skuldaði einhverja peninga vegna Hjálma. Þá sagði ég við strákana að Skeggjaðir, stífir í baki og með stærri bumbu -viðtal pósturu eythor@vf.is

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.