Víkurfréttir - 31.07.2014, Page 2
fimmtudagurinn 31. júlí 2014 • VÍKURFRÉTTIR2
-fréttir pósturX vf@vf.is
VATNAGARÐUR OG INNILAUG
OPNAR - ÚTILAUGIN LOKAR
Ágætu sundlaugargestir!
Viðhaldsframkvæmdum í innilaug og vatnagarði er að
ljúka og verður opnað þriðjudaginn 5. ágúst.
Á sama tíma verður útilauginni lokað vegna
framkvæmda til 1. september .
Við biðjumst velvirðingar á þeirri röskun sem þea
hefur í för með sér.
Íþróafulltrúi Reykjanesbæjar
EKUR ÞÚ VARLEGA?
30 km hámarkshraði er í
íbúðahverfum. Hvetjum íbúa til
að aka varlega
Sýnum tillitssemi
– ökum varlega.
30
Ert þú með viðburð á Ljósanó Sýningu, sölu, uppákomu, skemmtun...
Mundu eir að skrá viðburðinn á ljosano.is
Þannig birtist hann í dagskrá Ljósanætur.
Berist hann fyrir 26. ágúst fer hann einnig í prentaða
dagskrá.
Menningarsvið
LJÓSANÓTT
„Það þarf fólk eins og þig...“
X■ Ólafur Helgi Kjartansson tekur við embætti lögreglustjóra á Suðurnesjum
Sigríður færð frá Suðurnesjum
á höfuðborgarsvæðið
Sigríður Björk Guðjónsdóttir verður fyrsta konan sem
gegnir embætti lögreglustjóra á
höfuðborgarsvæðinu. Sigríður
hefur frá árinu 2009 gegnt sama
embætti á Suðurnesjum. Hún
var aðstoðarríkislögreglustjóri á
árunum 2007-2008, sýslumaður
á Ísafirði 2002-2006 og þar áður
skattstjóri Vestfjarðaumdæmis.
Ólafur Helgi Kjartansson hefur
verið skipaður í embættið á
Suðurnesjum í stað Sigríðar. Sam-
kvæmt nýjum lögum verður lög-
regluumdæmum fækkað úr 15 í
níu og mun breytingin taka gildi
um næstu áramót.
Töluverðar framkvæmdir eru fyrirhugaðar við Sporthúsið á Ásbrú. Ætlunin er að fjölga merktum bílastæðum úr 64 í 105,
en þeir sem til þekkja kannast líklega við það hve erfitt er að fá
bílastæði á annatímum við húsnæðið. Í samtali við Víkurfréttir
sagði Kristján Helgi Jóhannsonn, starfsmaður Sporthússins að á
háannatímum væri fjöldi iðkenda svo mikill að fullt væri oft á
bílastæðinu við Sporthúsið, einnig við Andrews menningarhús
og jafnvel við skólahúsnæði Keilis. Skortur á bílastæðum varð
mjög fljótlega vandamál eftir að Sporthúsið opnaði. Nú ætla
því eigendur Sporthússins, í samstarfi við Kadeco að bæta að-
stöðuna til muna en bæði á að stækka og breyta bílastæðinu. Að
auki er unnið að uppsetningu ljósastaura sem ætlað er að bæta
lýsingu á plani.
„Með því að breyta uppsetning-
unni og mála upp á nýtt er hægt
að nýta svæðið betur. Aðgengi að
bílastæðunum við Andrews verður
bætt með því að leggja göngustíg
og einnig verður gatan þrengd til
þess að auka öryggi viðskiptavina,“
segir Kristján.
Talsvert er um að viðskipta-
vinir mæti einir á bíl í rækt-
ina og hefur Sporthúsið reynt að
hvetja fólk til þess að taka strætó.
„Þó við séum að fara í þessar
endurbætur, viljum við endilega
halda áfram að hvetja fólk til þess
að nýta sér strætisvagnana en það
er um að gera að nýta sér almenn-
ingssamgöngur sem eru í boði hér
í bæ endurgjaldslaust. Ekki er svo
verra að hlaupa eða hjóla enda stutt
að fara upp á Ásbrú,“ segir Kristján
hress að lokum.
Töluverðar framkvæmdir við Sport-
húsið á Ásbrú - Fjölga bílastæðum úr 64 í 105
-verslunarmannahelgin
Hvað á að gera um versl-
unarmannahelgina og
hvert á að fara?
Ég er að vinna í háloft-
unum um vers lunar-
mannahelgina og mun
því eyða helginni í Bo-
ston. Ætli ég fái mér ekki
eitthvað gott að borða á
Cheesecake Factory, taki
smá búðarrölt og skelli
mér í sólbað ef veður
verður gott.
Hvað finnst þér einkenna góða
verslunarmannahelgi og finnst þér
eitthvað vera ómissandi um þessa
helgi?
Lykillinn að góðri versl-
unarmannahelgi er auð-
vitað góða skapið. Ef við
tökum það með okkur
í ferðalagið þá verður
gaman hvernig sem
viðrar eða hvar sem við
erum.
Er einhver verslunar-
mannahelgi sem er
eftirminnilegri en aðrar
hjá þér?
Ég hef tvisvar komið til Vestmanna-
eyja um verslunarmannahelgi og þær
helgar standa svo sannarlega upp úr.
Það er ákveðinn sjarmi yfir þessari
hátíð og ég stefni að því að fara ein-
hvern tíma aftur.
Sólbað og
búðarrölt
í Boston
Elín Rós Bjarnadóttir er
kennari, jógakennari og
bæjarfulltrúi í Reykjanesbæ
en starfar sem flugfreyja
hjá Icelandair á sumrin.
Hún verður á vakt um helg-
ina og flýgur til Boston.