Víkurfréttir - 16.10.2014, Qupperneq 1
Víkurfréttir
Krossmóa 4a, 4. hæð,
260 Reykjanesbær
Sími: 421 0000
Póstur: vf@vf.is
Afgreiðslan er opin
virka daga kl. 09-17
Auglýsingasíminn
er 421 0001
vf.is
Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is
auðveldar smásendingar
eBOX flytur minni sendingar frá
Evrópu til Íslands. Sendingin þín
kemur heim með fyrstu ferð.
Auðvelt og fljótlegt.
Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA
SMÆRRI SENDINGAR
einföld reiknivél
á ebox.is
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
Hringbraut 99 - 577 1150
ILMANDI
OKTÓBER
15% afsláttur af völdum
dömu og herra ilmum.
Gildir frá 4. - 19. október.
FIMMTUDAGURINN 16. OKTÓBER 2014 • 40. TÖLUBLAÐ • 35. ÁRGANGUR
Fjórir nemendur á lokaári í FS kynntu nýverið metnaðarfullt verkefni um
Gaza svæðið í landafræðiáfanga. Þær
nýttu sér mátt samfélagsmiðlanna Fa-
cebook og Vine til þess að ná sambandi
við viðmælendur sem búa á staðnum og
upplifðu ýmislegt sláandi í gegnum þá.
„Okkur langaði að tala við manneskju sem
býr á Gaza svæðinu, sjá hvernig hlutirnir
hafa breyst þar og fá beina tengingu við
staðinn. Við vildum ekki notast við frétta-
síður því þar eru oft hagsmunaöfl sem hafa
áhrif,“ segja Valgerður Kjartansdóttir, Rakel
Ólöf Andrésdóttir, Bryndís Sunna Guð-
mundsdóttir og Kristín Rán Júlíusdóttir
en að eigin sögn eiga þær allar til að ganga
skrefinu lengra í því sem þær taka sér fyrir
hendur. Kennarinn þeirra, Ester Þórhalls-
dóttir, sagði nemendum sínum að vinna
verkefni sem tengist Ísrael og Palestínu.
Þær komust í samband við 22 ára gamla
palenstínska stúlku, Löru og hún sagði þeim
m.a. að þau fái skammtað rafmagn í sex
tíma á dag þar og það sé þó mjög stopult.
Hún sendi þeim m.a. hljóðskrár í gegnum
póstkerfið á Facebook þar sem hún lýsir
dögunum sínum. „Við sjáum sprengingar,
reyk og rústir hjá henni. Það er erfitt fyrir
íbúana að komast út af svæðinu og þau
fá enga aðstoð af hálfu ísraelskum heil-
brigðisyfirvöldum vegna þjóðernis síns.
Þegar við vorum að skoða myndir frá fyrsta
skóladeginum hjá börnum í Palestínu voru
þau hágrátandi að syrgja bekkjarfélaga sem
höfðu látist í átökunum í sumar. Stórt gat
var þar sem taflan var áður í skólastofunni.
Það var mjög tilfinningaþrungið,“ segja þær
og finnst ótrúlegt hversu margar stórþjóðir
styðja Ísrael.
Ítarlegra viðtal við FS stúlkurnar er á bls. 10
og í Sjónvarpi Víkurfrétta í kvöld.
Tveir Joe & the Juice veitingastaðir opna í
Flugstöð Leifs Eiríkssonar um áramótin:
Vilja ráða 20-30
Suðurnesjamenn og
munu bjóða góð laun
XX„Við stefnum að því að ráða á bilinu 20-30
manns og munum bjóða góð laun. Breyting-
arnar sem verða á veitingasölunni á næstunni
fela það óhjákvæmilega í sér að sumt starfs-
fólk missir störf sín hjá þeim rekstraraðilum
sem hverfa úr flugstöðinni. Við viljum hvetja
þetta fólk til að sækja um starf á nýjum veit-
ingastöðum Joe & the Juice . Við leggjum
áherslu á að fá til liðs við okkur starfsfólk
af svæðinu og viljum endilega nýta okkur
reynslu þess úr vinnunni í flugstöðinni,“ segir
Daníel K. Stefánsson, rekstrarstjóri Joe & the
Juice sem mun opna tvo veitingastaði í Flug-
stöð Leifs Eiríkssonar um áramótin.
„Við erum mjög þakklát fyrir þær góðu undir-
tektir sem hugmyndir fyrirtækisins fengu hjá
forvalsnefnd flugstöðvarinnar og það er okkur
heiður að vera treyst til þess að taka þátt í að
efla flugstöðina enn frekar og gera okkar stað
að framúrskarandi valkosti fyrir farþega. Fyrir-
hugað er að opna Joe & the Juice á tveimur
stöðum í flugstöðinni, í brottfararsal og í inn-
ritunarsal áður en farið er í gegnum vopnaeftir-
lit. Framkvæmdir munu hefjast fljótlega og von-
andi náum við að opna snemma á næsta ári.“
Joe & the Juice hefur að sögn Daníels talsverða
reynslu af rekstri á flugvöllum en veitinga-
keðjan er með tvo staði á Kastrup-flugvelli í
Kaupmannahöfn og einn á Arlanda-flugvelli í
Stokkhólmi. Var Joe & the Juice á Kastrup m.a.
valinn besta flugvallarkaffihús heims á alþjóð-
legu verðlaunahátíðinni FAB (Airport Food and
Beverage Awards) tvö ár í röð.
„Joe Ísland ehf. er í meirihluta eigu Pizza Pizza
ehf. sem rekur Domino’s Pizza á Íslandi. Fyrir-
tækið borgar því að sjálfsögðu alla sína skatta og
gjöld á Íslandi,“ sagði Daníel.
Varð þátttakandi
í stað áhorfanda
-Jóhanna Helgadóttir var valin lesandi ársins á bókasafnsdeginum.
bls 12
„Sverrir
hefur trú á
mér“
-segir miðherjinn María Ben sem
stefnir á alla titla sem eru í boði
með Grindvíkingum
bls 12
Nemendur FS upplifa blá-
kaldan raunveruleika á Gaza
- nýttu sér mátt samfélagsmiðla í metnaðarfullu verkefni.
Keflavíkurdagurinn var haldinn í fyrsta sinn um sl. helgi, en þá var starfsemi íþróttadeilda Keflavíkur kynnt fyrir íbúum Reykjanesbæjar.
Á milli 300 og 400 manns litu við á Sunnubrautinni og léku listir sínar í hinum ýmsu íþróttagreinum.
Þessar stelpur skutu í mark með loftriffli undir leiðsögn Theodórs Kjartanssonar. VF-mynd/Eyþór.
Beint í mark á
Keflavíkurdeginum