Víkurfréttir - 16.10.2014, Síða 16
16 fimmtudagurinn 16. október 2014 • VÍKURFRÉTTIR
Erna Geirmundsdóttir,
Geirmundur Sigvaldason, Ásdís Gunnarsdóttir,
Þorsteinn Ingi Sigvaldason, Auður Gunnarsdóttir,
Sigrún Sigvaldadóttir, Kristinn Bjarnason,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi,
Sigvaldi Guðni Jónsson,
Sóltúni 15, Keflavík,
lést föstudaginn 10. október á Hrafnistu í Reykjanesbæ.
Jarðsungið verður í Keflavíkurkirkju
þriðjudaginn 21 október kl. 13:00.
Blóm og kransar afþakkaðir.
-aðsent pósturX vf@vf.is
Ak u r s k ó l i í Innri-Njarð-
vík er á sínu tíunda
starfsári. Þegar
skólastarf hófst
haustið 2005 voru
um 80 nemendur
í skólanum en í
dag eru þeir um
460. Innri-Njarðvík er hverfi í
uppbyggingu og þjónar skólinn
tveimur hverfum, Tjarnarhverfi
og Dalshverfi. Á meðan Dals-
hverfi byggist upp og ekki hefur
verið ráðist í byggingu nýs skóla
í því hverfi er eðlilegt að nokkur
fjölgun nemenda verði í Akur-
skóla. Við í Akurskóla fundum
fyrir þessu í haust þegar fjölgun
nemenda í skólanum á milli skóla-
ára var um sextíu.
Bæjaryfirvöld hafa brugðist mjög
hratt og vel við þessari öru fjölgun
nemenda. Tveimur lausum kennslu-
stofum hefur verið komið fyrir á
skólalóðinni ásamt því að smíða-
stofu hefur verið skipt upp í smíða-
stofu og almenna kennslustofu.
Báðar þessar aðgerðir heppnuðust
mjög vel og nú fer vel um alla 460
nemendur og 70 starfsmenn Akur-
skóla.
Akurskóli byggir á hugmynda-
fræði opinna skóla og rúmar hvert
kennslurými skólans 65-75 nem-
endur. Auk þess eru í skólanum
fjórar „hefðbundnar“ kennslustofur
ásamt vel búnum list- og verk-
greinastofum.
En skóli er ekki einungis bygging
og fín húsgögn. Líðan nemenda,
ánægja þeirra með skólann, viðhorf
foreldra og ánægja starfsmanna
segir mikið um starfsemina sem
fram fer í byggingunni.
Á hverju ári fara fram víðtækar
kannanir í skólanum. Nemendur,
foreldrar og starfsmenn skólans
eru spurðir út í vellíðan, árangur
og ánægju.
Undanfarin tvö ár hefur Akur-
skóli komið afar vel út úr þessum
könnunum. Nemendur skólans eru
rétt yfir meðaltali í vellíðan í skóla
og tíðni eineltis er nokkuð undir
meðaltali landsins. Þá telja nem-
endur Akurskóla sig eiga í betra
sambandi við kennarann sinn en
almennt gerist, samsama sig betur
nemendahópnum og taka virkari
þátt í tímum en meðalnemandi á
landinu.
Þegar foreldrar eru spurðir um
skólann kemur í ljós að þeir eru
mjög ánægðir með stjórnun skólans
og ánægja þeirra marktækt hærri
(7,2%) en meðaltal á landsvísu.
Þeim finnst hæfilegur agi í skól-
anum, eru sértaklega ánægðir með
eineltisáætlun skólans, úrvinnslu
eineltismála og hraða í vinnslu mála
sem upp koma.
Þegar starfsmenn skólans eru
spurðir þá er viðhorf þeirra til
skólans almennt mjög gott. Þeir eru
mjög ánægðir með starfsaðstöðu
sína og stjórnun skólans og eru þar
marktækt (1,1%) yfir landsmeðal-
tali.
Allar þessar niðurstöður má sjá í
sjálfsmatsskýrslu skólans sem finna
má á heimasíðunni hans.
Á næsta skólaári stefnir í að aftur
verði fjölgun í Akurskóla. Við erum
að útskrifa 32 nemendur úr 10. bekk
og búumst við um 55 nemendum
í 1. bekk. Þetta kallar á aðgerðir
og eru þær nú í undirbúningi hjá
bæjarfélaginu eftir tillögur frá öllu
skólasamfélaginu, starfsmönnum
Akurskóla, stjórnendum og for-
eldrum. Rétt viðbrögð eru að gera
áætlanir um umbætur en ekki að
tala skólastarf niður með röngum
upplýsingum.
Ég vil þakka foreldrafélagi Akur-
skóla fyrir málefnalegan kaffihús-
fund um stöðu skólans miðviku-
daginn 8. október. Ég fékk þar gott
tækifæri til að hitta foreldra og
spjalla við þá um það sem brann á
þeim og snertir skólastarfið.
Sigurbjörg Róbertsdóttir
Skólastjóri Akurskóla
X■ Sigurbjörg Róbertsdóttir Skólastjóri Akurskóla skrifar:
Akurskóli - skóli í uppbyggingu
Góð heilsa er forsenda vel-
líðunar og lang-
lífis. Gildir þetta
jafnt um menn og
dýr. Þar sem ævi
hunda og katta
er mun styttri en
manna eru árlegar
heilsufarsskoðanir sérstaklega
þýðingarmiklar fyrir þá fyrr-
nefndu.
Heilsufarsskoðun felur í sér klín-
íska skoðun þar sem dýralæknirinn
athugar almennt líkamlegt ástand
dýrsins. Vægar eyrnabólgur, augn-
þurrkur, tannvandamál og húð-
sýkingar eru dæmi um sjúkdóma
sem uppgötvast reglulega við slík
tilefni og í sumum tilvikum er
um að ræða langvarandi ástand
sem eigandinn hafði ekki gert sér
grein fyrir. Mjög mismunandi er
hvernig og að hve miklu leyti dýrin
sýna merki um sjúkdóma og geta
þau farið mjög leynt. En því fyrr
sem hægt er að hefja meðferð við
slíkum einkennum því betra.
Auk þess að skoða dýrið með tilliti
til heilsufars getur dýralæknirinn
ráðlagt um fóðrun, hreyfingu og
margt fleira sem snýr að dýrinu.
Þónokkuð er um arfgenga sjúk-
dóma í hundum sem eru bundnir
við ákveðnar hundategundir og
mikilvægt er fyrir eigendur að gera
sér grein fyrir þeim, ekki síst ef þeir
hafa hugsað sér að para þá. Sem
dæmi er cavalier hundum hætt
við hjartalokusjúkdómum og hné-
skeljalos er fremur algengt hjá pa-
pillion og chihuahua.
Að lokum eru dýrin bólusett eftir
þörfum og ormahreinsuð en ár-
leg meðhöndlun hunda og katta
gegn spóluormum er lögbundin
á Íslandi. Smit getur borist í dýr
á mismunandi hátt og komi upp
sýking er fyrir öllu að lyf séu notuð
á réttan hátt. Sem dæmi má nefna
að tíkur og læður geta smitað af-
kvæmi sín á meðgöngu með lirfum
sem hafa legið í dvala. Ormalyf ná
ekki til slíkra lirfa og því eru mörg
dæmi um að hvolpar og kettlingar
fæðist með spóluorma í meltingar-
veginum. Sem betur fer eru orm-
asýkingar ekki eins algengar hér á
landi og víða erlendis. En hætt er
við að sú staða breytist ef eigendur
vanrækja skyldur sínar.
Öll gerum við okkur grein fyrir
mikilvægi góðrar heilsu. Margir
leggja mikla rækt við líkama og
sál með hreyfingu og góðu mat-
aræði og hafa ýmsar leiðir til að
bæta líðan ef veikindi sækja að. En
gleymum ekki að við berum einnig
fulla ábyrgð á gæludýrunum okkar
og velferð þeirra.
Hrund Hólm dýralæknir út-
skrifaðist frá Dýralækna-
háskólanum í Noregi árið 2001
og hefur rekið Dýralæknastofu
Suðurnesja frá árinu 2004.
X■ Hrund Hólm dýralæknir skrifar:
Árleg heilsufarsskoðun gæludýra
- hvers vegna?
Hefur þú alltaf stefnt á há-skólanám en hefur ekki
lokið framhaldsskóla? Keilir
býður nú upp á aðfararnám að
háskólanámi í fjarnámi til tveggja
ára. Um er að ræða frábæran
möguleika fyrir þá sem að vilja
taka Háskólabrú með vinnu eða
taka aðfararnám á lengri tíma.
Námið er tekið á tveimur árum og
er skipulagt eins og fjarnám Há-
skólabrúar. Námið fer fram í formi
fyrirlestra og verkefna en auk þess
eru taðlotur þrisvar á önn. Nánari
upplýsingar um námið má nálgast
á slóðinni www.haskolabru.is
Nýtt tækifæri til náms
Hátt í 1.200 einstaklingar hafa lokið
námi í Háskólabrú Keilis og hefur
námið undanfarin ár markað sér
sérstöðu í að veita einstaklingsmið-
aða þjónustu og stuðning við nem-
endur, ásamt því að miða kennslu-
hætti við þarfir fullorðinna nem-
enda. Miklar kröfur eru gerðar um
sjálfstæði í vinnubrögðum og eru
raunhæf verkefni lögð fyrir. Skipu-
lag námsins hentar fullorðnum
námsmönnum einstaklega vel þar
sem kennt er í lotum, nemendur
einbeita sér að einum áfanga í einu
sem tekur um fimm vikur.
Nýstárlegir kennsluhættir í
framsæknu skólaumhverfi
Keilir er leiðandi aðili í vendinámi
eða speglaðri kennslu. Með því er
átt við að hefðbundinni kennslu
er snúið við. Fyrirlestrar og kynn-
ingar kennara eru vistuð á netinu
og geta nemendur horft á þau eins
oft og þeim sýnist og hvar sem
þeim sýnist. Nemendur vinna aftur
á móti heimavinnuna í skólanum,
oft í verkefnum, undir leiðsögn
kennara. Kennslustundir í skól-
anum verða fyrir vikið frábrugðnar
hefðbundinni kennslu.
Þar sem þetta form hefur verið
reynt virðist lærdómurinn verða
lifandi ferli sem virkjar nemendur á
skemmtilegan hátt. Nám er alltaf á
ábyrgð nemenda og undirbúningur
fyrir verkefnatímana í skólanum er
nauðsynlegur til þess að vinnan í
skólanum nýtist á virkan hátt.
Nýtt nám hjá Keili
- Háskólabrú með vinnu
Matsþættir Niðurstaða N Viðmið N Mismunur
2.1 Starfsánægja 5,2 59 4,9 2.807 0,3
2.2 Starfsandi innan skólans 4,9 60 4,7 2.679 0,2
2.3 Stjórnun skólans 6,0 58 4.8 2656 1,1*
2.4 Upplýsingastreymi innan skólans 5,2 60 4,9 2.797 0,3
2.5 Starfsaðstaða í skólanum 5,8 60 4,8 2797 1,0*
Ástkær dóttir, tengdadóttir, móðir okkar,
tengdamóðir, amma, systir og mágkona,
Guðbjörg Elsie Einarsdóttir,
Brekkustíg 35c, Reykjanesbæ,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja,
laugardaginn 11. október 2014.
Útförin fer fram frá Ytri-Njarðvíkurkirkju
þriðjudaginn 21. október kl. 12:00.
Aðstandendur vilja koma á framfæri sérstöku þakklæti til
starfsfólks legudeildar Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja D-álmu.
Guðbjörg Jóhanna Vagnsdóttir, Dagga Lis Kjærnested,
Vilhjálmur Vagn Steinarsson, María I. Vilborgardóttir,
Sæmundur Örn Kjærnested, Bylgja Pálsdóttir,
Jón Oddur Sigurðsson,
Gunnar Örn Arnarson, Soffía Rún Skúladóttir,
og barnabörn.