Víkurfréttir - 30.04.2015, Blaðsíða 2
2 fimmtudagur 30. apríl 2015 • VÍKURFRÉTTIR
Bláa Lónið og Grindavíkur-bær munu leggja til 50 millj-
ónir króna til áframhaldandi
uppbyggingar Húsatóftavallar hjá
Golfklúbbi Grindavíkur á næstu
þremur árum. Markmið upp-
byggingarinnar og breytinga er til
að styrkja stöðu Grindavíkur sem
áfangastaðar fyrir innlenda og er-
lenda ferðamenn. Með breyting-
unum mun Húsatóftavöllur verða
í fremstu röð golfvalla á Íslandi.
Grindavíkurbær hefur tekið þátt í
uppbyggingu vallar og aðstöðu á
undanförnum árum fyrir á sjötta
tug millj. kr. Bláa lónið mun leggja
að hámarki 40 millj. kr. á næstu
þremur árum. Þá mun fyrirtækið
kynna golfvöllinn í Grindavík sér-
staklega í markaðs- og kynningar-
efni Bláa Lónsins. Golfvöllurinn
verður liður í að hvetja gesti til að
njóta upplifunar á svæðinu og auka
fjölda gesta Bláa lónsins sem heim-
sækir Grindavík.
Fjármagn Bláa lónsins til golf-
val larins verður eyrnamerkt
framkvæmdum við breytingar á
brautum 1,2,3 og 17 og gerð nýrra
brauta á 13. og 14. holu. Þá verður
það einnig notað til umhverfis-
verkefna sem felast í gerð teiga,
flata, stíga og tjarna við 17. braut.
Grindavíkurbær mun ganga frá og
leggja bundið slitlag að golfskála
og á bílastæði við hann. Einnig við
gerð undirganga undir Nesveg sem
tengir saman brautir á neðra og
efra svæði Húsatóftavallar.
Bæjarstjórn Reykjanesbæjar samþykkti á fundi sínum
þann 20. janúar 2015 umsókn Landsnets um fram-
kvæmdaleyfi fyrir Fitjalínu 2 eins og framkvæmdum
vegna hennar er lýst í framkvæmdaleyfisumsókn,
greinagerð og matsskýrslu.
Bæjarstjórn hefur tekið rökstudda afstöðu til veitingu
leyfisins. Framkvæmdin er í samræmi við aðalskipulag
Reykjanesbæjar 2008 - 2024. Framkvæmdaleyfið
er bundið ákveðnum skilmálum, sem byggja á mati á
umhverfisáhrifum framkvæmdarinnar og áliti Skipu-
lagsstofnunar.
Framkvæmdaleyfið, sem útgefið var 21. janúar 2015,
ásamt fylgigögnum er aðgengilegt á heimasíðu
Reykjanesbæjar.
Framkvæmdaleyfi bæjarstjórnar Reykjanesbæjar er
kæranlegt til úrskurðanefndar umhverfis og auðlinda-
mála, Skúlagötu 21, 101 Reykjavík, sbr. 52. gr. skipulags-
laga, nr. 123/2010. Kærufrestur er einn mánuður frá því
að auglýsing um leyfið er birt, sbr. 2. mgr. 4. gr. laga um
úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála,
nr. 130/2011.
Skipulagsfulltrúi
TÓNLISTARSKÓLI REYKJANESBÆJAR
OPIÐ FYRIR
UMSÓKNIR
AUGLÝSING UM
VEITINGU FRAM-
KVÆMDALEYFIS
Höfum opnað fyrir nýjar umsóknir fyrir næsta skólaár.
Tökum á móti umsóknum á hljóðfæri í öllum deildum.
Píanó, orgel, harmonika, hljómborð (Hljómborðsdeild).
Fiðla, lágfiðla, selló, kontrabassi, klassískur gítar
(Strengjadeild). Blokkflauta, þverflauta, klarinett,
saxófónn, trompet, horn, bariton, básúna, túba,
trommur/slagverk (Blásaradeild). Klassískur söngur
(Söngdeild). Rafgítar, rafbassi, píanó, söngur (Rytmísk
deild). Tónver (vinnsla tónlistar á tölvur, upptökutækni).
Umsóknir liggja frammi í skólanum, Hjallavegi 2,
en einnig eru umsóknir á vefnum mittreykjanes.is.
Umsóknarfrestur er til 15. maí nk.
Upplýsingar fást á skrifstofu skólans í síma 420-1400
milli kl.13:00 og 17:00 mánudaga, þriðjudaga,
fimmtudaga og föstudaga, en miðvikudaga
milli kl.9:00 og 13:00.
Sigrún Lína Ingólfsdóttir, mezzosópran, heldur
framhaldsprófs- og burtfarartónleika sína í Bergi,
Hljómahöll, fimmtudaginn 30. apríl kl. 20.00.
Meðleikari er Helga Bryndís Magnúsdóttir, píanóleikari.
Aðgangur er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir.
Skólastjóri
FRAMHALDSPRÓFS- OG
BURTFARARTÓNLEIKAR
Umhverfis- og skipulagssvið Reykjanesbæjar hélt opinn
íbúafund í Hljómahöll síðdegis
í gær til að kynna skipulags-
breytingar í Helguvík. Þá voru
rædd mál sem tengjast mengun
frá stóriðju þar. Tæplega 100
manns mættu á fundinn sem stóð
ennþá þegar Víkurfréttir fóru til
prentunar síðdegis í gær. Á með-
fylgjandi mynd sjáum við Ellert
Grétarsson, varaformann Nátt-
úruverndarsamtaka Suðvestur-
lands, sem var einn þeirra sem
stóð upp á fundinum og ræddu
mengunarmál tengd Helguvík.
VF-mynd: Hilmar Bragi
Bláa Lónið og Grindavíkurbær sameinast
í stórframkvæmdum til að klára golfvöllinn í Grindavík:
Framkvæmdir fyrir 50 milljónir
-fréttir pósturu vf@vf.is
Ístak leggur jarð-
streng út í Helgu-
vík fyrir Landsnet
Landsnet hefur undirritað sam-
komulag við ÍSTAK um lagningu
jarðstrengs milli Fitja og Helguvíkur
og er miðað við að framkvæmdum
verði að fullu lokið í haust.
Samningurinn er upp á tæplega 228
milljónir króna. Ístak hefur mikla
reynslu af lagningu jarðstrengja
fyrir Landsnet og lagði meðal ann-
ars Nesjavallastreng 2, 25 km langan
streng milli Nesjavalla og Geitháls,
árið 2010. Strax verður hafist handa
við undirbúning og slóðagerð í
Helguvík og standa vonir til að hægt
verði að byrja að grafa fyrir jarð-
strengnum í næstu viku.
Undirbúningur jarðstrengsverk-
efnisins hófst hjá Landsneti haustið
2014, í framhaldi af samningi um
flutning raforku til kísilvers United
Silicon sem kveður á um að teng-
ingin verði tilbúin 1. febrúar 2016.
Strengurinn mun tengja saman
Stakk, nýtt tengivirki Landsnets í
Helguvík sem nú er í byggingu, og
tengivirki félagsins á Fitjum.
Halldór E. Smárason formaður GG, Grímur Sæmundsen forstjóri Bláa Lóns-
ins og Róbert Ragnarsson bæjarstjóri Grindavíkur undirrituðu samninga um
framkvæmdir við Húsatóftavöll. VF-myndir/pket.
Ræddu skipulagsbreyt-
ingar og mengun í Helguvík
„Aðalfundur DS hvetur sveitar-
félögin á Suðurnesjum til að
bregðast við bráðavanda í mál-
efnum sjúkra aldraðra á Suður-
nesjum og sameinast um sam-
þykkta tillögu síðasta aðalfundar
og einhenda sér í framhaldinu í
að ná samningum við heilbrigðis-
ráðherra fyrir hönd ríkisvaldsins
um endurbyggingu og frekari
uppbyggingu hjúkrunarheimilis-
ins Garðvangs þannig að þar
verði hægt að reka allt að 30 rýma
hjúkrunarheimili“. Þetta kemur
fram í ályktun með greinargerð
sem lögð var fram af stjórn DS á
aðalfundi D.S. sem haldinn var í
Miðhúsum í Sandgerði 22. apríl.
Ályktunin var samþykkt með
öllum greiddum atkvæðum eftir
töluverðar umræður.
Í greinargerð
með ályktuninni segir:
Þörfin fyrir uppbyggingu á þjón-
ustu fyrir eldri borgara á Suður-
nesjum er brýn. Nú eru 57 á biðlista
eftir vist á hjúkrunarheimili og allt
bendir til að staðan á Suðurnesjum
versni enn frekar á næstu árum.
Til að hægt sé að svara þeirri miklu
þörf sem er fyrir uppbyggingu
hjúkrunarrýma á Suðurnesjum
telur stjórn D.S. lykilatriði að sam-
staða náist milli sveitarfélaganna á
svæðinu. Þótt uppbygging hjúkr-
unarrýma sé alfarið verkefni ríkis-
valdsins og á ábyrgð þess þá þurfa
Suðurnesjamenn að sameina krafta
sína, marka sér sameiginlega stefnu
í málefnum eldri borgara á Suður-
nesjum og tryggja fjölgun hjúkr-
unarrýma á Suðurnesjum.
Stjórn D.S. telur rökréttasta fyrsta
skrefið vera að endurbyggja og
stækka Garðvang og leita samstarfs
við Heilbrigðisstofnun Suður-
nesja um reksturinn. Stjórnin telur
að rekstur 30 hjúkrunarrýma á
Garðvangi undir stjórn HSS verði
til þess að hægt verði að leysa þann
bráðavanda sem upp er kominn í
þjónustu við aldrað fólk á svæðinu.
Þá þarf að efla og samþætta betur
samstarf félagsþjónustu sveitar-
félaganna og HSS. Hugsa þarf
einnig til framtíðar og byrja undir-
búning nýrrar 60 rýma álmu við
Nesvelli.
Vilja 30 rýma hjúkrunarheimili á Garðvangi