Víkurfréttir - 24.09.2015, Blaðsíða 18
18 fimmtudagur 24. september 2015 • VÍKURFRÉTTIR
-íþróttir
Það er brosmildur og saklaus ungur maður sem tekur í
höndina á mér í húsnæði taek-
wondo deildar Keflavíkur þegar
ég geng þar inn úr rigningunni.
Orðspor hans barst mér til eyrna
fyrr á árinu þar sem hann var að
gera góða hluti hér innanlands
og er þar kannski ekki nógu djúpt
tekið í árinni. Strákurinn hefur
verið nær ósigrandi hér heima
og síðan þá hefur hann klifrað
metorðastigann á erlendum vett-
vangi líka. Toppnum var náð í
Frakklandi þar sem hann náði
3. sæti á Evrópumótinu í flokki
12-14 ára en betri árangri hefur
enginn Íslendingur náð á stór-
móti og þykir mér nokkuð ljóst
að gluggar framtíðarinnar séu
honum galopnir. Keflvíkingurinn
Ágúst Kristinn Eðvarsson er við-
mælandi íþróttadeildar Víkurf-
rétta í þessari viku.
Nær ósigrandi hér heima fyrir
Hinn 14 ára Ágúst byrjaði að æfa
taekwondo aðeins 6 ára gamall
eftir að hafa æft fótbolta og prófað
sund sem að hann fann sig ekki í.
Hann segir áhrif að heiman hafa
átt stóran þátt í því að hann mætti
á sína fyrstu æfingu. „Pabbi lét mig
horfa með sér á Bruce Lee karate-
myndir þegar ég var lítill. Hann
fór með mér á mína fyrstu æfingu
árið 2008. Hann langaði alltaf að
æfa sjálfur en það var víst ekki
neitt svona í boði þegar hann var
lítill. Hann æfði að vísu júdó í ein-
hvern tíma en það er ekki byggt á
höggum og spörkum eins og þessar
greinar sem hann hreifst mest af.
Ég var búinn að æfa í um eitt ár
þegar ég vissi að þetta væri eitthvað
sem ég vildi elta og reyna að ná
langt í,“ segir Ágúst með ákveðinni
rödd og ég er strax sannfærður um
að þessi ungi maður sé með hugar-
far þess sem ætlar sér í fremstu röð.
Árangurinn talar fyrir sig sjálfur. Á
keppnistímabilinu sem leið vann
hann allt sem hægt var að vinna
hér heima í sínum flokki; Íslands-
og bikarmeistaratitill, Reykjavíkur-
leikameistari, auk þess að vera val-
inn keppandi mótsins á því móti
en bæði íslenskir og erlendir kepp-
endur mæta á það mót í hvert sinn.
Það er kannski við hæfi að taka það
fram að Ágúst keppir upp fyrir sig
í þyngdarflokki en -33 kg. flokkur-
inn sem hann tilheyrir er það fá-
mennur að keppendur þar þurfa að
eiga við sér þyngri mótherja. Hann
keppir því iðulega í -37kg flokki.
Þegar á erlenda grundu er komið
keppir hann í sínum flokki þar sem
fjöldi keppenda er eðlilegur.
Ólýsanleg tilfinnning
Ofan á þann frábæra árangur sem
Ágúst hefur náð hér heima hefur
hann vakið verðskuldaða athygli
úti í heimi en sigur á opnu skosku
móti og firnasterku opnu þýsku
móti ættu að gefa ágæta mynd af
möguleikum hans erlendis. Hann
segir þó að sætasti sigurinn hafi
komið á Evrópumótinu í Frakk-
landi þar sem hann náði í þriðja
sætið á mótinu sem er besti árangur
sem nokkur Íslendingur hefur náð
i greininni. Hann segist hafa átt
erfitt með að trúa því í fyrstu hvað
hann hafði afrekað. „Það tók mig
nokkra daga að taka það inn. Mér
leið eins og ég hefði ekkert verið að
keppa á neinu móti en þegar þetta
síaðist inn hægt og rólega fylltist ég
miklu stolti enda er þetta besti ár-
angur sem Íslendingur hefur náð.
Þetta var alveg ólýsanlegt.“
Ágúst fékk boð um að keppa á
heimsmeistaramótinu í taekwondo
sem fór fram í Suður-Kóreu, sem
er fæðingarstaður íþróttarinnar.
Þar náði hann í 9. sætið sem er
frábær árangur. Aðspurður um þá
lífsreynslu segir hann að allir sem
beri svarta beltið verði að heim-
sækja landið a.m.k. einu sinni á
lífsleiðinni. „Þetta er staður sem
ekki margir fá að heimsækja.
Ferðalagið var um 40 klukku-
stundir með biðinni á flugvöllum
og tók það alveg smá á mann.
Mótið var haldið í ótrúlega flottum
taekwondo garði sem er eins konar
„mekka“ íþróttarinnar. Upplifunin
er ótrúleg að koma þangað. Næsta
heimsmeistarmót er eftir tvö ár og
ég stefni að því keppa þar aftur.
Annars fer ég út til þess að horfa á.
Það er klárt mál.“
Þekkir alla andstæðinga sína
innanlands mjög vel
Þegar ég spyr hann útí muninn
á því að keppa hér heima og er-
lendis segir Ágúst það vera eins
og svart og hvítt þar sem að á Ís-
landi sé taekwondo heimurinn
lítill. „Á Íslandi veit maður meira
og minna allt um þá sem maður
er að keppa við, veikleika og styrk-
leika, því maður hefur keppt svo oft
við alla. Þegar við keppum erlendis
eru næstum allir andstæðingar nýir
fyrir manni og við höfum verið
að taka andstæðinga mína upp
á myndband til að kortleggja þá.
Það er meiri vinna sem fer í það að
keppa úti. Það er samt dýrmætt að
geta skoðað hverju maður þarf að
verjast og hvar möguleikar manns
liggja í því að sækja stig gegn þeim.“
Fór með þjálfaranum í sumar-
frí til að æfa fyrir HM
Það er ekki sjálfgefið að 14 ára
unglingar geti látið drauma sína
rætast og býr mikil vinna að baki
þessum árangri. Ágúst segist fyrst
og fremst vera þakklátur þeim góða
stuðningi sem hann hefur á bakvið
sig og segir hann ómetanlegan.
„Ég er með mikinn sjálfsaga, reyni
að borða hollt og fara snemma að
sofa. Ég fæ mikinn stuðning frá
foreldrum mínum og vinir mínir
eru mjög duglegir að hjálpa til við
undirbúning fyrir mót. Ég verð líka
að koma inná hvað ég er heppinn
með þjálfara en Helgi hefur reynst
mér mjög dýrmætur.“ Þar á Ágúst
við Helga Rafn Guðmundsson sem
hefur unnið frábært starf í þágu
taekwondo á Suðurnesjum og
víðar. „Þegar við fengum að vita
að ég fengi að keppa á HM í Kóreu
var hann á leiðinni í sumarfrí á
Akureyri með konunni sinni og
við ekki að fara að æfa neitt saman
í góðan tíma. Þau ákvaðu í hvelli
að bjóða mér og Ástrósu (Brynj-
arsdóttur, tvöföldum íþróttamanni
Reykjanesbæjar) með sér norður
svo við gætum undirbúið okkur
fyrir mótið og æft eins og best væri
á kosið. Það er bara ómetanlegt að
hafa svona teymi á bakvið sig og er
ég þeim mjög þakklátur.“
Raula alltaf sama lagið til að peppa
mig upp
Ágúst æfði tvisvar sinnum á dag
í sumar sem tók um 17 klukku-
stundir á viku. Þegar æfingabúðir
voru haldnar gat sá tími farið uppí
allt að 24 klukkustundir á viku.
Hann segist samt eiga sér líf fyrir
utan taekwondo. „Ég nota frítíma
minn í að hreyfa mig öðruvísi, eins
og að ganga fjöll, spila fótbolta og
vera með vinum mínum. Ég meira
að segja spila Fifa öðru hverju,“
segir hann og tekur eftir því að ég
verð svolítið hissa að svona metn-
aðarfullur strákur spili tölvuleiki
yfir höfuð og hann hlær að mér
fyrir einfaldleikann á bakvið þá
hugsun. „Ég nýt þess líka að ferðast
og upplifa nýja huti,“ bæti hann
svo við. Ágúst segir andlegu hliðina
vera stóran part af því að ná því
besta útúr sjálfum sér. „Andlega
hliðin skiptir rosalega miklu máli.
Ég undirbý mig ekkert öðruvísi
fyrir mót heldur en venjulegar æf-
ingar, reyni bara að hafa þetta sem
líkast. Íþróttasálfræðilega nota ég
svokallað sjálfstal til að koma mér
í gang. Ég segi ákveðna hluti við
sjálfan mig sem peppa mig upp og
svo raula ég alltaf sama lagið áður
en ég fer á gólfið fyrir mót. Ég veit
ekki einu sinni hvað þetta lag heitir,
ég bara heyrði það í sjónvarpinu í
tengslum við síðustu Ólympíuleika
og það hefur virkað fyrir mig.“
Áður en ég kveð þennan glæsilega
íþróttamann leikur mér hugur á
að vita hvernig hann sjái fyrir sér
framtíð sína í taekwondo og það
stendur ekki á svarinu. „Ég er með
lista sem ég bjó mér til með því
sem mig langar til að afreka. Ég vil
ná í verðlaun á Íslandsmóti, vil ná
í verðlaun á Evrópumóti og svo vil
ég ná í verðlaun á heimsmeistara-
móti. Ég geri ráð fyrir því að vera
í taekwondo þangað til líkaminn
segir að nú sé nóg komið.“
Þorði ekki að keppa
Ég næ í skottið á þjálfaranum Helga
Rafni áður en ég yfirgef húsið og
spyr hann út í framtíðarhorfur
Ágústs. Helgi segir að Ágúst hafi
margt til brunns að bera til að fara
alla leið í íþróttinni. „Hann er ein-
beittur, ákveðinn, hlustar vel, sýnir
góða íþróttamennsku, er hæfileika-
ríkur, snöggur, fyndinn og klár
strákur. Það er auðvitað alltaf hægt
að bæta einhver smáatriði ein heilt
yfir þá býr hann yfir flestum þeim
kostum sem þarf til að vera afreks-
íþróttamaður. Ef honum er alvara
með að fara á Ólympíuleika eða á
pall á heimsmeistaramóti þá getur
hann það,“ segir Helgi og hefur
greinilega tröllatrú á sínum manni
sem þó var ekki undrabarn í íþrótt-
inni frá fyrsta degi og skýtur Helgi
að skemmtilegum punkti áður en
hann þarf að drífa sig aftur inn
í sal að þjálfa næsta hóp: „Þegar
Ágúst byrjaði í taekwondo þorði
hann ekki að keppa. Í dag er hann
reyndasti keppandi landsins í sín-
um aldursflokki.“
Pabbi lét mig horfa á Bruce
Lee myndir þegar ég var lítill
Keflvíkingurinn Ágúst Kristinn Eðvarðsson hefur átt frábært ár í taekwondo
Íþróttasálfræðilega nota ég svokallað sjálfstal
til að koma mér í gang