Víkurfréttir


Víkurfréttir - 22.10.2015, Page 1

Víkurfréttir - 22.10.2015, Page 1
Víkurfréttir Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09-17 Auglýsingasíminn er 421 0001 vf.is Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is auðveldar smásendingar eBOX flytur minni sendingar frá Evrópu til Íslands. Sendingin þín kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt. Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA SMÆRRI SENDINGAR einföld reiknivél á ebox.is F ÍT O N / S ÍA FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 2015 • 41 . TÖLUBLAÐ • 36. ÁRGANGUR Nýr& betri opnunartími Virka daga 9-20 Helgar 10-20 Nettó reykjaNesbæ ATH! NÝR OG BETRI OPNUNARTÍMI KASKO • IÐAVÖLLUM 14 • REYKJANESBÆ Virka daga Helgar 10:00 – 19:00 10:00 – 18:00 Allt á fullu hjá kísilveri United XX„Þetta hefur gengið ágætlega, nokkurn veginn samkvæmt áætlun. Við erum kannski örlítið á eftir en ætlum að vinna það upp. Við stefnum að því að hefja hér framleiðslu í maí næsta vor eins og upphafleg plön gerðu ráð fyrir,“ sagði Magnús Garðarsson, fram- kvæmdastjóri og aðaleigandi United Silicon fyrirtækisins en það reisir nú kísilver í Helgu- vík. Á annað hundrað manns starfa nú við framkvæmdir hjá United í Helguvík. Því var fagnað í vinnubúðum fyrirtækisins í Helgu- vík sl. föstudag með grillveislu. Sjá nánar á bls. bls. 10 og einnig umfjöllun í vikulegum sjónvarpsþætti Víkurfrétta á vef VF og á ÍNN frá kl. 21.30 í kvöld. Íbú a k o s n i ng vegna fyrir- h u g a ð s k í s i l - vers Thorsils í Helguvík verður dagana 24. nóv- e m b e r t i l 4 . desember. Kosn- ingin verður ein- göngu á netinu, þ.e. rafræn. Á bæjarráðsfundi í Reykjanesbæ sl. fimmtudag var samþykkt hvernig spurningin yrði lögð fram en svo var samþykkt breyting á henni á fundi bæjarstjórnar í fyrra- dag. Þetta mun vera í fyrsta sinn sem svona íbúakosning fer fram hér á landi. Mótmælendur sem söfnuðu 2500 undirskriftum og tryggðu íbúakosningu eru afar ósáttir við það að bæjarstjórn ætli ekki að taka mark á niðurstöðum úr kosningunni. Nokkur umræða var um málið á bæjarstjórnarfundi en að lokum eftir að hafa fengið ráðleggingar frá fagaðilum sem hringt var í á fund- inum, samþykktu allir bæjarfull- trúar breytingu á svarmöguleika sem átti að vera „Hvorki hlynnt(ur) né andvíg(ur)“ í „Skila auðu“. Hópur fólks safnaði um 2500 undirskriftum sem var nóg til að fara fram á íbúakosningu. Sam- þykkt var í bæjarstjórn 2. júní sl. að breyta deiliskipulagi vegna kísil- vers Thorsils. Íbúar verða spurðir í kosningunni um það hvort þeir séu sammála þeirri ákvörðun. Bæjar- stjórn Reykjanesbæjar hefur hins vegar gefið það út að niðurstaðan muni ekki hafa áhrif á ákvörðun hennar. Dagný Alda Steinsdóttir, einn af þeim íbúm sem hefur haft sig mikið frammi gegn kísilveri Thor- sil segir að meirihlutinn hafi gefið bæjarbúum langt nef og sagt; „þið megið alveg kjósa en það verður ekkert mark tekið á niður- stöðunni“. Rökin og mótbárurnar eru eins og fyrr fjárhagslegs eðlis. Margir taka yfirlýsingum bæjar- stjórnar, um að hunsa útkomu kosninganna á þann veg að það borgi sig ekki að kjósa. Því er ein- mitt öfugt farið. Núna verða íbúar að krefjast áheyrnar og kjósa um framtíðarsýn bæjarfélagsins, segir hún í grein í blaðinu. Einnig skrifar Benóný Harðarson grein þar sem hann segir Reykjanesbæ á villi- götum í málinu og hafi gengið í þágu hagsmuna Thorsil. Tímamóta íbúakosning vegna kísilvers Thorsils í Helguvík verður í nóvember: Verið að gefa bæjarbúum langt nef -segir Dagný Alda Steinsdóttir, einn mótmælenda, um þá ákvörðun bæjarstjórnar að hundsa niðurstöðu úr íbúakosningu Svona verður svarseðillinn Eftirfarandi spurning verði lögð fyrir íbúa í íbúakosningunni: Ert þú hlynnt(ur) eða andvíg(ur) þeirri breytingu sem bæjarstjórn Reykjanesbæjar samþykkti 2. júní 2015, á deiliskipu- lagi í Helguvík vegna fyrirhugaðs kísilvers? Hlynnt(ur) Skila auðu Andvíg(ur) Dagný Alda Steinsdóttir Bensíngaurinn er kvenkyns Sigturbjörg Ólafsdóttir starfar sem „bensín- gaur“ hjá Eldsneytisafgreiðslunni á Kefla- víkurflugvelli. Hún fer yfir málin í skemmtilegu viðtali sem er á bls. 14.

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.