Víkurfréttir - 22.10.2015, Page 10
10 fimmtudagur 22. október 2015 • VÍKURFRÉTTIR
„Þetta hefur gengið ágætlega, nokkurn veginn sam-
kvæmt áætlun. Við erum kannski örlítið á eftir en
ætlum að vinna það upp. Við stefnum að því að hefja
hér framleiðslu í maí næsta vor eins og upphafleg
plön gerðu ráð fyrir,“ sagði Magnús Garðarsson,
framkvæmdastjóri og aðaleigandi United Silicon
fyrirtækisins en það reisir nú kísilver í Helguvík. Á
annað hundrað manns starfa nú við framkvæmdir
hjá United í Helguvík. Því var fagnað í vinnubúðum
fyrirtækisins í Helguvík sl. föstudag með grillveislu.
Tólf manns starfa hjá móðurfélaginu en starfsmenn hjá
undirverktökum töldu rúmlega hundrað í fyrsta skipti
í síðustu viku. Vinna við fyrsta áfanga af fjórum hjá
United Silicon er í fullum gangi en verksmiðjan verður
byggð í fjórum áföngum. Hægt er að framleiða tæp 22
þúsund tonn af kísli á ári með einum ofni. Verið að
að reisa miklar byggingar verksmiðjunnar sem munu
ná fjörutíu metra upp í loft þær hæstu. Í janúar hefst
þjálfun starfsmanna svo að þeir geti tekið til starfa
þegar starfræksla kísilversins hefst í maí á næsta ári.
Starfsmenn verða 65 þegar byggingu fyrsta áfanga
lýkur en síðan þarf um 50 manns við hvern viðbótar
ofn eða áfanga. Kostnaður við byggingaframkvæmd-
irnar við fyrsta áfanga er áætlaður um 13 milljarðar
króna. Magnús segir næsta áfanga fara eftir því hvenær
hægt verði að fá raforku fyrir annan ofninn. Það eykur
hlut hágæðakísils í framleiðslunni. Hann segir að til
þess að geta framleitt sem mest af hágæðakísli fyrir
verðmæta markaði þurfi að lágmarki tveggja ofna
verksmiðju. Mikill gæðamunur sé á hráefninu og þegar
einn ofn sé í rekstri þurfi allt að fara í hann. Hægt sé að
flokka hráefni mun betur þegar tveir ofnar séu í verk-
smiðju og láta besta hráefnið í annan ofninn.
Forsvarsmenn ÍAV sem er aðalverktaki United í
þessum framkvæmdum, sögðu við fréttamann að vel
hefði gengið að manna verkið hingað til. Mikil vinna
væri í boði og það hefði greinilega haft eitthvað að
segja.
Magnús sagði aðspurður að kísill kæmi víða við í dag-
legu lífi fólks. „Þegar við burstum í okkur tennurnar,
þvoum okkur um hárið og þegar við keyrum í vinnuna
en það er m.a. kísill í öllum hjólbörðum“.
Mest vaxandi markaður fyrir kísil um þessar mundir
væri þó sólarrafhlöður en hann fer einnig mikið í
álframleiðslu og í efnaiðnað. Megnið af framleiðslu
United hefur verið seld nú þegar til Evrópu, aðallega
til Þýskalands og Hollands. Um 85% afurða verksmiðj-
unnar hafa verið seld til tveggja erlendra viðskiptavina
með samningum til langs tíma.
Tilkoma annars kísilvers mun hafa áhrif á höfnina
en United mun fá eitt skip á
viku í Helguvíkurhöfn en um
tvo sólarhringa tekur að lesta og
aflesta hvert skip. Það gæti því
orðið þröngt á þingi því fyrir
eru í Helguvík fiskimjölsverk-
smiðja Síldavinnslunnar og þá
er einnig skipakomur vegna
Aal Portland. Það gæti orði ös í
höfninni að sögn Magnúsar sem
vildi að öðru leyti ekki tjá sig
um kísilver Thorsils en sagði þó
að bæjarstjórn Reykjanesbæjar
ætti ekki að hundsa íbúakosn-
ingu um málið.
Traffík í Helguvíkurhöfn
-fréttir pósturu vf@vf.is
Á annað hundrað starfsmenn við byggingu kísilvers United
- framleiðsla mun hefjast í Helguvík í maí 2016. Kostnaður við fyrsta áfanga 13 milljarðar.
VIKULEGUR MAGASÍNÞÁTTUR SJÓNVARPS VÍKURFRÉTTA
ALLA FIMMTUDAGA KL. 21:30 Á ÍNN OG VF.IS
- alltaf eitthvað nýtt í hverri viku!
SJÓNVARP VÍKURFRÉTTA
KÍSILVER UNITED
SILICON Í HELGUVÍK
Sjónvarp Víkurfrétta tók
stöðuna á framkvæmdum
Áfanganum hjá United var fagnað með grillveislu.
Hluti starfsmanna United og verktaka í Helguvík.
Eins og sjá má er svæðið að taka á sig mynd.