Víkurfréttir


Víkurfréttir - 22.10.2015, Qupperneq 23

Víkurfréttir - 22.10.2015, Qupperneq 23
23VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagur 22. október 2015 pósturu pket@vf.is Laus störf hjá IGS ehf. í Farþegaafgreiðslu og við ræstingu í flugvélum IGS leitar að öflugum einstaklingum í fjölbreytileg og skemmtileg störf hjá fyrirtækinu. Um er að ræða störf í Farþegaafgreiðslu, flugvélaræstingu, Mikil áhersla er lögð á þjónustulund, hæfni í mannlegum samskiptum, reglusemi, stundvísi, sveiganleika og árvekni. Unnið er á vöktum. Farþegaafgreiðsla Starfið felst m.a. í innritun farþega og annarri tengdri þjónustu við þá. Lágmarksaldur 20 ár, stúdentspróf æskilegt en ekki skilyrði, góð tungumála -og tölvukunnátta. Umsækjendur þurfa að vera tilbúnir til þess að sækja undirbúningsnámskeið Ræsting í flugvélum Lágmarksaldur 18 ár, almenn ökuréttindi, íslenska og/eða enskukunnátta. STÖRF HJÁ IGS 2015 Umsóknum er skilað inn rafrænt á heimasíðu IGS sjá www.igs.is fyrir 28. október 2015 Dekk Dekk Stærð Negld Ve trar Heils árs pr.stk 175/70 13“ 11.900,- 9,9 90,- 9000,- — 185/65 14“ 12,990,- 10,9 90,- 10,990, - — 185/60 15“ 14,990,- 12,9 90,- 12,990, - — 185/65 15“ 14,990,- 12,9 90,- 11,990, - — 205/55 16“ 16,990,- 14,9 90,- 13,990, - — 215/55 16“ 18,990,- 16,9 90,- 16,990, - — 225/45 17“ 19,990,- 19,9 90,- — 195/70 C 15“ 18,900,- — 205/65 C 16“ 19,900,- — Níðsterk dekk sem hentar vel í öllum aðstæðum Dekkin eru öll míkróskorin Burðardekk á góðu verði Símar: Bjarni 771 4221 | Lilja 771 4222 | Diddi 861 2319 Njarðarbraut 11 Reykjanesbæ sími 421 1251 8-17 mán-föst. 10-14 laugardag. Opið Sendum hvert á land sem er. Raðgreiðslur í allt að 12 mánuðum Suðurnesjaliðin í Domino’s deildinni í körfubolta hafa öll byrjað mjög vel, þvert á spár spekinganna fyrir tímabilið. Grindavík, Njarðvík og Kefla- vík hafa sigrað í fyrstu tveimur leikjum sínum og eru á toppnum með Tindastóli. Keflvíkingar lögðu Hauka sl. mánu- dagskvöld í tvíframlengdum leik þar sem heimamenn þóttu sýna flottan leik. Njarðvík vann Snæfell á útivelli og Grindavík hafði betur gegn sprækum nýliðum Hattar. Það er svaka nágrannaslagur í Ljónagryfjunni annað kvöld en þá mæta Keflvíkingar sínum gömlu grönnum úr Njarðvík. Grind- víkingar heimsækja ÍR í kvöld. Þá er spurning hvort Jón Axel Guð- mundsson haldi uppteknum hætti en hann hefur borið uppi lið Grind- víkinga og verið í báðum leikj- unum með þrefaldri tvennu en það er þegar leikmaður skorar meira en 10 stig, tekur fleiri en tíu fráköst og tíu stoðsendingar. Jón Axel er með flestar stoðsendinar allra eftir fyrstu tvær umferðirnar, alls 21. Earl Brown, leikmaður Keflvíkur hefur tekið flest fráköst eða 35 og skorað næst flest stig eða 58 Góð byrjun hjá Suðurnesjaliðunum í Domino’s deildinni í körfubolta: Stórleikur í Ljónagryfjunni Haukar-Keflavík á laugardag XuÞað var hart barist í leik Keflavíkur og Hattar í Domino’s deild kvenna í TM-höllinni í vikunni. Keflavík vann öruggan sigur en liðið tapaði fyrir Val í fyrstu umferð. Keflavíkurstúlkur fá firnasterkt lið Hauka í heimsókn á laugardag. Grindavíkurstúlkur ætla sér stóra hluti í vetur en þær hafa unnið eina leik sinn sem komið er en það var gegn Val. Þær leika gegn Stjörnunni á sunnudag. Grindavíkurstúlkur fengu mikinn liðsstyrk í vikunni þegar landsliðskonan Sigrún Sjöfn Ámundadóttir gekk til liðs við þær gulu. Keflavíkurmærin Þóranna Kika Hodge-Carr fór mikinn með liði sínu gegn Hetti í vikunni. Hér geysist hún framhjá leikmönnum Hattar og skorar. Þóranna er aðeins 16 ára gömul og ein af mörgum ungum og stórefnilegum stúlkum í Keflavík. Birna heiðruð XuKeflvíkingar heiðruðu Birnu Valgarðsdóttur, fyrrverandi leikmann liðsins, fyrir leik Keflavíkur og Hauka í vikunni. Birna afrekaði að leika 314 leiki og í þeim setti 453 þriggja stiga körfur og skoraði 4534 stig í heildina eða nærri 15 stig að meðaltali í leik. Hreint magnað hjá Birnu sem var frá- bær leikmaður. Birna varð sjö sinnum Íslandsmeistari og fimm sinnum var hún bikar- meistari. Hún lék 76 landsleiki og Birna er þannig næst leikjahæsta körfu- boltakona landsins. Þróttarar með alvöru handboltalið XuÞróttur Vogum verður með hörkulið í Coca-Cola bikar karla í handknattleik og hefur þegar safnað í lið sem er vægast sagt at- hyglisvert. Það verður seint hægt að kenna reynsluleysi um ef liðið dettur úr keppni í fyrstu umferð en leikmenn liðsins eiga samanlagt heilan hell- ing af landsleikjum, sjálfsagt á fjórða hundraðið. Meðal leikmanna sem spila munu í bikarkeppninni undir merkjum Þróttar Vogum má nefna, Patrek Jóhannesson, markverðina Birki Ívar og Roland Eradze ot úti- leikmennina Einar Örn Jónsson, Bjarka Sigurðsson, Sigfús Sigurðsson og Loga Geirsson. Flott hjá Fjölbraut XuFjölbrautarskóli Suðurnesja vann um síðustu helgi keppni um hraust- asta framhaldsskólann á Íslandi árið 2015. „Þetta var mjög jöfn keppni, haldin í fyrsta sinn og margir sterkir einstaklingar sem maður var nú ekkert viss um að maður myndi taka,“ segir Jóhanna Júlía Júlíusdóttir. Auk hennar skipuðu þau Guðmundur Ólafsson, Helena Ósk Árnadóttir og Andri Orri Hreiðarsson lið FS. Þau æfa öll hjá Crossfit Suðurnes og hafa að sögn Jóhönnu góðan bakgrunn úr íþróttum. Jóhann á enn Ís- landsmetið í armbeygjum úr Skólahreysti en hún tók 177 slíkar. Jóhanna og Guðmundur höfðu reynslu af keppni í Skólahreysti, sem er þrek- keppni grunnskóla. Hún hefur keppt fyrir Myllubakkaskóla og hann fyrir Holtaskóla og tvisvar sinnum staðið uppi sem sigurvegari. Logi Gunnarsson á fleygiferð með Njarðvík. VF-myndir/pket og pállorri. Ljósmynd/Davíð/karfan.is

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.