Víkurfréttir - 03.12.2015, Síða 18
18 fimmtudagur 3. desember 2015 • VÍKURFRÉTTIR
Húsfyllir á kórkvöldi í Kirkjulundi
-mannlíf pósturu vf@vf.is
Húsfyllir var á kvöldstund með Kór Keflavíkurkirkju í
síðustu viku og fengu kórfélagar
til sín góða gesti frá Sönghóp
Suðurnesja.
Kvöldstundirnar þóttust takast vel
síðasta vetur og hafa kórfélagar því
ákveðið að halda þeim áfram en þar
stíga á stokk ýmsir tónlistarmenn
úr kórnum í notalegri kaffihúsa-
stemmningu í Kirkjulundi. Allur
ágóði rennur í ferðasjóð kórsins
sem hyggur utan í sumar.
Kórarnir sungu bæði í sitt hvoru
lagi og saman og þá var á sínum
stað samsöngur í sal þar sem allir
tóku undir.
Fjöldi barna og foreldra mætti á Tjarnargötutorgið í Reykjanesbæ þegar kveikt var á stærsta jólatré bæjarins sl. laugardag en það er gjöf frá Kristiansand, vinabæ Reykjanesbæjar.
Sendiherra Noregs á Íslandi, Cecilie Landsverk, afhenti tréð og forseti bæjarstjórnar Reykjanesbæjar, Guðbrandur
Einarsson, veitti því viðtöku. Fannar Snævar Hauksson úr 6. bekk í Njarðvíkurskóla tendraði ljósin á trénu.
Jólasveinar mættu á svæðið og sungu og dönsuðu í kringum stóra jólatréð með krökkunum og foreldrum þeirra
í vetrarstillunni.
Fannar
tendraði ljósin
á vinabæjarjólatrénu
Ytri-Njarðvíkurkirkju 9. desember kl. 20:30
Gestakórar: Söngsveitin Víkingar og Barnakór Sandgerðis
Miðasala hjá kórfélögum og við innganginn
Kertatónleikar
Karlakórs Keflavíkur
Hafnargötu 54, Keflavík, sími 421 4646
Snyrtivör
SÉ
R-
HA
NN
AÐ
IR
Fut af oum
vöm í jólapaan
Flo tilbo
ð aa dag
a
fram að jó
lum