Víkurfréttir - 03.12.2015, Page 20
20 fimmtudagur 3. desember 2015 • VÍKURFRÉTTIR
Mynd frá dansleik Júdasar í Festi 1975 þegar tekin var upp sjónvarpsmynd
um hljómsveitina. Á henni eru Magnús Kjartansson, hljómborðsleikari
Júdasar, og Þorkell Jensson, rótari hljómsveitarinnar.
-mannlíf pósturu vf@vf.is
Dansleikir og skemmtanir í Festi í Grindavík, lands
kunnar hljómsveitir og fegurðar
drottning af Suðurnesjum eru
meðal efnis í máli og myndum í
nýrri bók, Öll mín bestu ár, eftir
Kristin Benediktsson og Stefán
Halldórsson.
Bókin fjallar um skemmtanalífið á
árunum 1966-1979. Viðfangsefnin
eru dansleikir, útihátíðir, skóla-
skemmtanir, tískusýningar, uppá-
komur, barnaskemmtanir, hljóm-
leikar, fegurðar- og hæfileikasam-
keppnir og aðrir viðburðir víða um
land. Yfir 1.000 ljósmyndir Kristins
eru í bókinni og ítarleg umfjöllun
Stefáns um flytjendur, gesti, staðina
og stemminguna.
Kristinn Benediktsson var fyrr á
árum ljósmyndari á Morgunblað-
inu og Stefán skrifaði um popptón-
list í blaðið í 10 ár frá 1967 til 1977.
Þeir hófu samstarf um gerð bókar-
innar árið 2011, en eftir að Kristinn
lést árið 2012 eftir langa baráttu
við krabbamein hélt Stefán verkinu
áfram í samvinnu við dóttur Krist-
ins og vin hans.
Hljómar, Júdas, Óðmenn, Trú-
brot og Ábót eru meðal yfir 100
hljómsveita, þjóðlagaflytjenda og
s k e m mt i -
krafta á síðum bókarinnar. Hjónin
Rúnar Júlíusson og María Bald-
ursdóttir prýða forsíðuna og þrír
bræður Maríu, Þórir, Júlíus og
Baldur, koma einnig við sögu.
S t e f á n
Halldórsson er útgefandi bókar-
innar, en bókaforlagið Salka annast
dreifingu í verslanir.
SKEMMTANALÍFIÐ
1966–1979
Í MÁLI OG ÞÚS-
UND MYNDUM
Eftir að nokkrir liðsmenn Hljóma og Flowers ákváðu að
stofna nýja hljómsveit (sem varð Trúbrot) efndu hljóm-
sveitirnar til eftirminnilegra lokadansleikja. Kristinn
fór í Glaumbæ og þar var lokapunktur við hæfi í sögu
Hljóma. Rúnar Júlíusson sveik ekki aðdáendur sína
um að „taka æði“, þegar hann snaraðist upp á sillur og
handrið og söng sig í (flug)ham áður en hann sveif niður
á sviðið.
Vafalaust hefur verið fámennt annars staðar í Glaumbæ
á þessari stundu. Salurinn er þéttstappaður, hvert sem
litið er, og hljómsveitin kemst vart fyrir á sviðinu.
Rúnar Júlíusson var löngu orðinn landsfrægur fyrir æsi-
lega sviðsframkomu þar sem saman fór:
— kröftugur söngur (gjarnan lengdir kaflar í rokk- eða
„soul“-lögum),
— klifur og stökk að hætti öflugra íþróttamanna (enda
var Rúnar áður afreksmaður í knattspyrnu),
— beraður efri hluti kroppsins (og Rúnar hafði bæði
vaxtarlag og bringuhár sem prýði var að).
Í viðtali við tímaritið Samúel árið 1984 kallaði Rúnar
sviðshegðunina „eðlishvatasystem“ og sagði:
„Þegar maður fer að spila í tvo þrjá tíma, og alltaf
hitnaði meira og meira í kolunum, þá varð endirinn
alltaf þessi sami í Glaumbæ. Þessi magngeggjun út um
allt; fækka fötum, klifra út um allt og syngja samt allan
tímann. Þetta var meira eins og trans. Þetta var ekkert
skipulagt mál.“
Ólafur Laufdal veitingamaður á Broadway rifjaði þetta
upp í viðtali í Morgunblaðinu:
„Ég man eftir síðasta ballinu sem Hljómar léku undir
dansi. Það var á sunnudagskvöldi, og ég var þjónn í
Glaumbæ. Troðið var í húsinu og í portinu voru tvö þús-
und manns sem ekki komust inn“, sagði Ólafur Laufdal.
HÁPUNKTI NÁÐ OG HÆTT
Lokaball Hljóma í Glaumbæ í júní 1969
(Kafli úr bókinni Öll mín bestu ár, eftir Kristin Benediktsson og Stefán Halldórsson)
Mynd af forsíðu bókarinnar (hjónin Rúnar Júlíusson og María Baldursdóttir,
þegar María var krýnd fegurðardrottning Íslands í maí 1969)
Frá lokadansleik
Hljóma í Glaumbæ
í júní 1969. Rúnar
Júlíusson í ham.
Lokadansleik Hljóma eru gerð góð skil í bókinni.