Víkurfréttir - 22.12.2015, Page 19
19VÍKURFRÉTTIR • þriðjudagur 22. desember 2015
Sendum félagsmönnum og
Suðurnesjamönnum öllum bestu óskir
um gleðileg jól og farsælt komandi ár.
Þökkum samstarf á árinu sem er að líða.
„Jólahald í Washington er fallegt
og skemmtilegt. Hér er fólk frá
mörgum mismunandi þjóðernum
og halda ekkert endilega jól, en
samt er eins og allir fari í „jólaskap“.
Fólk sem heldur jólahátíðina há-
tíðlega fer í kirkju og mikið er af
fallegum uppákomum, eins og til
dæmis söfnun á hlutum og dóti
fyrir fólk sem minna á,“ segir Kefl-
víkingurinn Guðbjörg.
Guðbjörg eða Gulla eins og hún
er kölluð segir mikinn jólaanda í
borginni allt frá því nóvember. „Það
er mikið skreytt hér í Washington,
falleg ljós, og jólatónlist um allt sem
byrjar oftast strax í lok nóvember.
Veðrið er misjafnt, t.d. var 22 stiga
hiti hér um miðjan desember og
nokkuð víst að það snjóar ekki hér
um jólin, þó það hafi nú stundum
verið þannig.“
Hún fór ung kona til Bandaríkj-
anna en ætlaði sér nú ekki að dvelja
lengi. „Upphaflega ætlaði ég bara
að staldra við hér í eitt ár, og svo
eins og oft gerist þá greip ástin
unglinginn og hef ég verið hér nú
í rúm 35 ár. Ég fór þó heim eftir
árið og fór í nám í tvö ár, kom síðan
aftur hingað og giftist drengnum
sem ég hafði kynnst. Við hjónin
fluttum til Íslands 1987-88, eftir
að við eignuðumst fyrstu dóttur
okkar, það var frábær ákvörðun
þar sem Ali eiginmaður minn gat
unnið og kynnst fjölskyldu minni
og vinum. Við komum aftur heim
1988 og eignuðumst aðra dóttur
árið 1990. Við fjölskyldan erum
dugleg að koma heim og er ég mjög
hamingjusöm að hafa getað það í
gegnum árin.“
Hjónin hafa lengi verið í eigin
rekstri í byggingageiranum en hafa
undanfarin ár rekið verslun með
ágætum árangri. „Við erum búin að
vera í okkar eigin rekstri sem verk-
takar, og síðar opnuðum við búð og
flytjum inn evrópskar innréttingar.
Árið 2009 fór ég í afleysingar hjá
íslenska sendiráðinu í Washingotn
DC til eins árs, síðan losnaði staða
þar aftur haustið 2011 og er ég búin
að vinna þar síðan. Það er alltaf
nóg að gera í sendiráðinu og mér
þykir þetta skemmtileg vinna. Ég
er helst að aðstoða Íslendinga hér
,við vegabréf og allskonar mál sem
koma upp.“
Guðbjörg segir að þó hún
kunni vel við sig í Bandaríkj-
unum sé alltaf söknuður
til Íslands.
„Ég sakna alltaf Íslands og þá sér-
staklega fjölskyldu minnar og vina.
Við erum heppin að eiga tvær
yndislegar dætur og núna tengda-
son og tvo ömmu- og afastráka
sem gera lífið skemmtilegra. Við
höldum jól með íslenskum venjum,
borðum hangikjöt, uppstúf, rauð-
kál og rófur, malt og appelsín og
meira að segja laufabrauð sem mín
yndislega fjölskylda sendir okkur
frá Íslandi. Það er alveg ómissandi
að fá íslensk jól,“ segir Guðbjörg
og sendir góðar kveðjur til Íslands.
Mikill jólaandi
í Washington
-segir Keflavíkurmærin Guðbjörg Ozgun Bjarna-
dóttir sem hefur búið í Washington í 35 ár
Guðbjörg Ozgun Bjarnadóttir er ein af all nokkrum Suðurnesja-
mönnum sem hafa ílengst í útlöndum en hún fór snemma til Banda-
ríkjanna og hefur verið þar í þrjátíu og fimm ár. Hún starfar núna í
íslenska sendiráðinu en fjölskylda hennar hefur einnig verið með
verslunarrekstur í borginni. Við slógum á þráðinn til Washington og
spurðum Guðbjörgu út í jólahaldið þar í borg.
Blái herinn sendir öllum
einlægar hátíðarkveðjur og
þakkar fyrir frábært
samstarf og stuðning í 20 ár
AUGLÝSING
UM SKIPULAG Í
SVEITARFÉLAGINU VOGUM
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi fyrir iðnaðarsvæði við Vogabraut
Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga samþykkti þann 16. desember 2015 að auglýsa tillögu að
breytingu á deiliskipulagi, skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, fyrir iðnaðarsvæði við
Vogabraut vegna áforma um byggingu súrefnis- og köfnunarefnisverksmiðju.
Tillagan er sett fram á uppdrætti ásamt greinargerð og vísast til hennar um nánari upplýsingar.
Tillagan verður til sýnis á skrifstofu Sveitarfélagsins Voga, Iðndal 2, 190 Vogar frá og með
mánudeginum 21. desember 2015 til og með mánudagsins 1. febrúar 2016.
Tillagan er einnig aðgengileg á vef Sveitarfélagsins Voga, www.vogar.is.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er genn kostur á að gera athugasemdir við
tillöguna. Skila skal skriegum athugasemdum til skrifstofu Sveitarfélagsins Voga, Iðndal 2,
190 Vogar eða á netfangið skrifstofa@vogar.is eigi síðar en mánudaginn 1. febrúar 2016.
Vogum, 21. desember 2015
f.h. bæjarstjórnar,
Ásgeir Eiríksson, bæjarstjóri