Víkurfréttir


Víkurfréttir - 22.12.2015, Qupperneq 19

Víkurfréttir - 22.12.2015, Qupperneq 19
19VÍKURFRÉTTIR • þriðjudagur 22. desember 2015 Sendum félagsmönnum og Suðurnesjamönnum öllum bestu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár. Þökkum samstarf á árinu sem er að líða. „Jólahald í Washington er fallegt og skemmtilegt. Hér er fólk frá mörgum mismunandi þjóðernum og halda ekkert endilega jól, en samt er eins og allir fari í „jólaskap“. Fólk sem heldur jólahátíðina há- tíðlega fer í kirkju og mikið er af fallegum uppákomum, eins og til dæmis söfnun á hlutum og dóti fyrir fólk sem minna á,“ segir Kefl- víkingurinn Guðbjörg. Guðbjörg eða Gulla eins og hún er kölluð segir mikinn jólaanda í borginni allt frá því nóvember. „Það er mikið skreytt hér í Washington, falleg ljós, og jólatónlist um allt sem byrjar oftast strax í lok nóvember. Veðrið er misjafnt, t.d. var 22 stiga hiti hér um miðjan desember og nokkuð víst að það snjóar ekki hér um jólin, þó það hafi nú stundum verið þannig.“ Hún fór ung kona til Bandaríkj- anna en ætlaði sér nú ekki að dvelja lengi. „Upphaflega ætlaði ég bara að staldra við hér í eitt ár, og svo eins og oft gerist þá greip ástin unglinginn og hef ég verið hér nú í rúm 35 ár. Ég fór þó heim eftir árið og fór í nám í tvö ár, kom síðan aftur hingað og giftist drengnum sem ég hafði kynnst. Við hjónin fluttum til Íslands 1987-88, eftir að við eignuðumst fyrstu dóttur okkar, það var frábær ákvörðun þar sem Ali eiginmaður minn gat unnið og kynnst fjölskyldu minni og vinum. Við komum aftur heim 1988 og eignuðumst aðra dóttur árið 1990. Við fjölskyldan erum dugleg að koma heim og er ég mjög hamingjusöm að hafa getað það í gegnum árin.“ Hjónin hafa lengi verið í eigin rekstri í byggingageiranum en hafa undanfarin ár rekið verslun með ágætum árangri. „Við erum búin að vera í okkar eigin rekstri sem verk- takar, og síðar opnuðum við búð og flytjum inn evrópskar innréttingar. Árið 2009 fór ég í afleysingar hjá íslenska sendiráðinu í Washingotn DC til eins árs, síðan losnaði staða þar aftur haustið 2011 og er ég búin að vinna þar síðan. Það er alltaf nóg að gera í sendiráðinu og mér þykir þetta skemmtileg vinna. Ég er helst að aðstoða Íslendinga hér ,við vegabréf og allskonar mál sem koma upp.“ Guðbjörg segir að þó hún kunni vel við sig í Bandaríkj- unum sé alltaf söknuður til Íslands. „Ég sakna alltaf Íslands og þá sér- staklega fjölskyldu minnar og vina. Við erum heppin að eiga tvær yndislegar dætur og núna tengda- son og tvo ömmu- og afastráka sem gera lífið skemmtilegra. Við höldum jól með íslenskum venjum, borðum hangikjöt, uppstúf, rauð- kál og rófur, malt og appelsín og meira að segja laufabrauð sem mín yndislega fjölskylda sendir okkur frá Íslandi. Það er alveg ómissandi að fá íslensk jól,“ segir Guðbjörg og sendir góðar kveðjur til Íslands. Mikill jólaandi í Washington -segir Keflavíkurmærin Guðbjörg Ozgun Bjarna- dóttir sem hefur búið í Washington í 35 ár Guðbjörg Ozgun Bjarnadóttir er ein af all nokkrum Suðurnesja- mönnum sem hafa ílengst í útlöndum en hún fór snemma til Banda- ríkjanna og hefur verið þar í þrjátíu og fimm ár. Hún starfar núna í íslenska sendiráðinu en fjölskylda hennar hefur einnig verið með verslunarrekstur í borginni. Við slógum á þráðinn til Washington og spurðum Guðbjörgu út í jólahaldið þar í borg. Blái herinn sendir öllum einlægar hátíðarkveðjur og þakkar fyrir frábært samstarf og stuðning í 20 ár AUGLÝSING UM SKIPULAG Í SVEITARFÉLAGINU VOGUM Tillaga að breytingu á deiliskipulagi fyrir iðnaðarsvæði við Vogabraut Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga samþykkti þann 16. desember 2015 að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi, skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, fyrir iðnaðarsvæði við Vogabraut vegna áforma um byggingu súrefnis- og köfnunarefnisverksmiðju. Tillagan er sett fram á uppdrætti ásamt greinargerð og vísast til hennar um nánari upplýsingar. Tillagan verður til sýnis á skrifstofu Sveitarfélagsins Voga, Iðndal 2, 190 Vogar frá og með mánudeginum 21. desember 2015 til og með mánudagsins 1. febrúar 2016. Tillagan er einnig aðgengileg á vef Sveitarfélagsins Voga, www.vogar.is. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er genn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna. Skila skal skriegum athugasemdum til skrifstofu Sveitarfélagsins Voga, Iðndal 2, 190 Vogar eða á netfangið skrifstofa@vogar.is eigi síðar en mánudaginn 1. febrúar 2016. Vogum, 21. desember 2015 f.h. bæjarstjórnar, Ásgeir Eiríksson, bæjarstjóri

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.