Víkurfréttir


Víkurfréttir - 04.05.2016, Blaðsíða 28

Víkurfréttir - 04.05.2016, Blaðsíða 28
4 ÁSBRÚ Hjálmar segir að Keilir sé hugsaður upphaflega sem fagháskóli. „Ef hann er að fara að vera til í lögum þá mun það auka sóknartækifæri Keilis og efla sjálfstæði hans. Á sama tíma teljum við mjög mikilvægt að vinna með öðr- um skólum eins og við höfum verið að gera, m.a. með því að sækja það besta til þeirra sem eru bestir á sínu sviði. Með því að horfa stöðugt í kringum sig eftir tækifærum, þá sé ég ekki ann- að en að Keilir eigi eftir að vaxa og dafna áfram,“ segir Hjálmar 1400 með skírteini frá Háskólabrú Keilis Þegar menn stóðu uppi með heilan mannlausan draugabæ á Miðnesheiði sem áður hýsti um 6000 manns, þá var spurningin hvað á að gera. Markmiðið varð að byggja hér upp þekkingar- þorp. Fyrir þekkingu þarf menntun og fyrir menntun þarf skóla. Það varð fyrsta ákvörðunin fyrir svæðið, sem síðar fékk nafnið Ásbrú, að stofna þar skóla og þá kom spurningin - hvernig skóla? Markmiðið varð annars vegar að efla menntastig á svæðinu og hins vegar að fylla upp í göt í atvinnulífinu og nóg er af þeim þegar tengsl skóla og atvinnulífs eru til umræðu. Eins og kemur fram hér að framan þá fagnar Keilir í dag 9 ára afmæli og Háskólabrú Keilis var það fyrsta sem skólinn tók sér fyrir hendur. Það var með það að markmiði að efla mennta- stig. „Núna níu árum síðar getum við sagt að 1400 manns hafi farið frá Keili með skírteini frá Háskólabrú. Lang- flestir þeirra hafa haldið áfram í há- skólanámi,“ segir Hjálmar Árnason, framkvæmdastjóri Keilis. Þeir fyrstu eru komnir út á vinnumarkað, ýmist með BS-, BA- eða meistarapróf. Sumir eldri nemendur Keilis eru þegar farnir að vinna sem sérfræðingar á ýmsum sviðum. Að gefa fólki annað tækifæri „Við fylgjumst vel með þessum hópi og sjáum ekki annað en að hann hafi plummað sig mjög vel,“ segir Hjálmar. Hann bætir því við að það markmið að efla menntastig og að gefa fólki aukin tækifæri hafi tekist vel. „Okkur starfsfólki Keilis finnst þetta sá þáttur sem við erum hvað ánægðust með þegar horft er yfir sviðið, að gefa fólki annað tækifæri og aðstoða við það og taka þátt í gleði þess,“ segir Hjálmar og bætir við að útskriftarathafnir á Há- skólabrúnni oft mjög tilfinningaríkar. Hjálmar segir að Keilir hafi breytt miklu fyrir fólk þegar Hrunið varð og atvinnuleysi varð mikið. „Þá varð þetta spurning hjá mörgum að afla sér menntunar frekar en að sitja heima í iðjuleysi og leiðindum. Keilir varð einn þeirra skóla sem gerði samning við Vinnumálastofnun sem greiddi fólki fyrir að fara í nám í stað þess að sitja heima og brotna niður. „Við vorum afskaplega stolt af því að brottfall í því átaki var langminnst allra skóla hjá okkur í Keili af öllum þeim skólum sem tóku þátt í þessu. Við viljum þakka það, og vísum þar í umsagnir nemenda okkar, að það eru þessir nýju kennsluhættir sem við tók- um upp og erum leiðandi í. Við teljum að við höfum haft mikil áhrif í að inn- leiða vendinámið. Hér hafa verið tvær alþjóðlegar ráðstefnur um vendinám- ið, hingað hafa komið 1000 kennarar til að kynna sér þessa kennsluhætti. Þá hafa okkar kennarar farið í skóla út um allt land til að kynna vendinám- ið. Þá höfum við verið að leiða stórt verkefni með sjö evrópskum skólum sem er að ljúka um þessar mundir. Við vonumst til að verkefnið haldi áfram og verði enn stærra. Við teljum að þessir kennsluhættir hafi orðið til þess að fólk hafi fundið sig sæmilega vel í námi við Keili“. Nám í nánum tengsl- um við atvinnulífið Hjá Keili hefur verið lögð áhersla á nám í nánum tengslum við atvinnu- lífið. Þar hefur Flugakademía Keilis komið sterkt inn. Þar var byrjað smátt með tvær litlar vélar en nýtískulegar. Í Hruninu var lítið að gera fyrir flug- menn en Hjálmar segir að við þær aðstæður eigi fólk að nota tímann til að mennta sig. „Í kreppu er það flugið sem fyrst finnur fyrir niðursveiflunni en er einnig fyrst til að rétta úr kútn- um og nákvæmlega það hefur gerst. [ K E I L I R - M I Ð S T Ö Ð V Í S I N D A , F R Æ Ð A O G A T V I N N U L Í F S ] Tækifærin - Keilir er góður efniviður í fagháskóla sem auka sóknartækifæri hans og efla sjálfstæði skólans eru endalaus „Tækifærin fyrir Keili til framtíðar eru endalaus,“ segir Hjálm- ar Árnason, framkvæmdastjóri Keilis, miðstöðvar vísinda, fræða og atvinnulífs. Keilir er 9 ára í dag. Nú er verið að vinna að því að hálfu menntamálaráðuneytis og atvinnulífsins að koma á koppinn því sem heitir fagháskóli, sem er millistig milli framhaldsskóla og rannsóknarháskóla, eins og Háskóla Íslands. Núna níu árum síðar getum við sagt að 1400 manns hafi farið frá Keili með skírteini frá Háskólabrú. Langflestir þeirra hafa haldið áfram í háskólanámi.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.