Víkurfréttir - 04.05.2016, Blaðsíða 10
10 miðvikudagur 4. apríl 2016VÍKURFRÉTTIR
Batteríið arkitektar hlaut á dögunum
alþjóðleg verðlaun fyrir verkefni sem
Keflvíkingurinn Jón Stefán Einarsson
arkitekt og einn eigandi stofunnar
stýrði fyrir hennar hönd í Kanada.
Verkefnið The Active Living
Center var unnið fyrir há-
skólann í Manitoba í samstarfi
við kandadísku arkitekta-
stofuna Cibinel Architects og
er fjölnota íþróttahús og lýð-
heilsumiðstöð. Verðlaunin
eru veitt af NIRSA - Natio-
nal Intramural-Recreational
Sports Association og er þetta í
fyrsta sinn í 30 ár sem kanadísk
bygging hlýtur verðlaunin Out-
standing Sports Facility Awards en
þau eru veitt framúrskarandi íþrótta-
mannvirkjum í Norður Ameríku.
Að sögn Jóns Stefáns eru verðlaunin
mikill heiður og viðurkenning á því
að íslenskur arkitektur er vel sam-
keppnishæfur.
„Upphaf verkefnisins má rekja til
þess að Batteríið hóf að leita að verk-
efnum erlendis og komst í samband
við kanadísku stofuna Cibinel Arc-
hitects sem leitaði að samstarfsaðila
vegna íþróttaverkefnis í Winnipeg í
Kanada. Stofurnar tvær ákváðu að
leggja saman krafta sína en áður hafði
Batteríið unnið að stórum verkefnum
í tengslum við íþróttamannvirki og
má þar nefna Ásvallarlaug og stúku
fyrir FH.“
Hof íþrótta við
Manitoba háskóla
Eftir hæfnismat og viðtöl féll verk-
efnið í þeirra skaut og Jóni Stefáni
var falin hönnunarstjórn verkefnisins
ásamt samstarfsaðila.
„Hönnunarstjóri ber ábyrgð á verk-
efninu, tekur virkan þátt í hönnun
þess og stýrir verkefninu til starfs-
manna en í heildina komu um átta
starfsmenn að verkefninu á Íslandi,
auk starfsmenn úti á meðan á því
stóð en verkefnið stóð frá árinu 2008
til ársins 2015.“ Segir Jón Stefán en
hugmyndin gekk að hans sögn fyrst
og fremst út á að gera byggingu sem
setti heilsu og heilbrigt líferni á hærri
stall. „Byggingin er stolt Manitoba há-
skólans og staðsett þannig að þú tekur
eftir henni, nokkurs konar hof íþrótta
við innganginn að háskólasvæðinu.
Við lögðum áherslu á opin rými og
að draga dagsbirtinguna inn í bygg-
inguna sem ég held að hafi tekist vel.“
Byggingin er samofinn íþróttakjarni
og er opið á milli rýma sem helguð
eru fjölbreyttum íþróttagreinum. Þar
má finna 12m háan klifurvegg við
inngang, kraftlyftingarsal, þrjá fjöl-
notasali, 1500m2 tækjarými og 200m
hlaupabraut svo eitthvað sé nefnt auk
rannsóknarstöðvar fyrir íþróttamenn
í sérþjálfun svo sem Olympíuleika.
Byggingin tengist svo eldri byggingu
sem er með hefðbundnari íþróttasali.
En hvað þýða svona verðlaun?
„Það er erfitt að segja en þetta er
viðurkenning á því að við stöndum
okkur vel og að íslenskir arkitektar eru
vel samkeppnishæfir“, segir Jón Stefán
og tekur fram að þetta sé í fyrsta sinn
í 30 ár sem bygging í Kandada hlýtur
slík verðlaun.“
Var þetta erfitt verkefni?
„Þetta var erfitt verkefni í því til-
liti að það var krefjandi að starfa í
tveimur heimsálfum og eiga sam-
skipti á ólíkum tímum. Þá þurfti
að byggja traust og ferðast á
milli sem þýddi auðvitað fjar-
vistir frá fjölskyldu“, segir Jón
Stefán en hann og kona hans
Finna Kristinnsdóttir eiga
tvö börn, Kormák Ragnar 12
ára og Melkorku Sól 10 ára.
„En þetta var mjög gefandi og
maður kynntist mikið af fólki
og öðrum menningarheimi
auk þess sem þetta var gríðar-
lega lærdómsríkt. Það var gaman
að sjá hvernig svona flókið verk-
efni varð að veruleika frá hugmynd að
byggingu.“
Jón Stefán lærði arkitektúr í Vín í
Austurríki og hefur eftir það starfað
hjá Batteríinu frá útskrift árið 2005.
Hann er borinn og barnfæddur kefl-
víkingur, sonur hjónanna Einars Stef-
ánssonar og Guðlaugar Jónsdóttur og
vill hvergi annars staðar búa. „Kefla-
vík er góður staður og hér er gott að
ala upp börn, það er svo rólegt hérna
og stutt í allt.“
En hvað er það sem heillar
við arkitektur?
„Í grunninn þau forréttindi að vinna
með fólki og skapa eitthvað nýtt, leysa
flókin úrlausnarefni. Það er gaman að
sjá hvernig hugmynd verður að veru-
leika og vinna að því með viðskipta-
vininum. Arkitektúr hefur breyst
mikið á skömmum tíma, áhrifin
eru meiri eftir netvæðinguna og að-
gengi almennings að góðum arki-
tektúr hefur aldrei verið eins mikill
sem opnar okkur stórkostlega mögu-
leika. Þar á sér stað stöðugt samtal og
þetta er ekki lengur lokaður heimur
arkitekta heldur er arkitektúr fyrir al-
menning og gefur honum tækifæri
á að skapa sér betra umhverfi, þetta
eigum við eftir að sjá meira í fram-
tíðinni.“
Að sögn Jóns Stefáns er íslenskur arki-
tektúr vel samkeppnishæfur og hefur
Batteríinu gengið vel í erlendum verk-
efnum s.s. í Noregi, Austurríki, Kali-
forníu og víðar. „Við vorum tilneydd
til þess að leita að verkefnum erlendis
eftir hrun enda verkefnastaða ekki
góð á Íslandi. En það má segja að það
hafi verið okkar gæfa. Við horfum þó
áfram á íslenskan markað og vonandi
skapast möguleikar á því að gera eitt-
hvað spennandi þar.“
●● Keflvískur●arkitekt●hlýtur●alþjóðleg●verðlaun●fyrir●verkefni●í●Kanada
KREFJANDI AÐ
STARFA Í TVEIMUR
HEIMSÁLFUM
Jón Stefán Einarsson arkitekt
Við vorum tilneydd til þess að leita að
verkefnum erlendis eftir hrun enda
verkefnastaða ekki góð á Íslandi