Víkurfréttir - 16.06.2016, Qupperneq 1
Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is
auðveldar smásendingar
eBOX flytur minni sendingar frá
Evrópu til Íslands. Sendingin þín
kemur heim með fyrstu ferð.
Auðvelt og fljótlegt.
Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA
SMÆRRI SENDINGAR
einföld reiknivél
á ebox.is
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
S T Æ R S T A F R É T T A - O G A U G L Ý S I N G A B L A Ð I Ð Á S U Ð U R N E S J U M
• fimmtudagurinn 16. júní 2016 • 24. tölublað • 37. árgangur
Íbúum á Suðurnesjum hefur fjölgað
töluvert það sem af er ári. Hlutfallslega
hefur íbúum fjölgað mest í Vogum eða
um 3,6 prósent. Flestir nýir Suður-
nesjamenn hafa sest að í Reykjanesbæ,
eða 486. Í þeim fjölda er aðeins hluti
þess fólks sem nýlega settist að á Ásbrú
vegna starfa við Keflavíkurflugvöll.
Töluverð fjölgun hefur einnig orðið
í öðrum bæjarfélögum á svæðinu.
Fulltrúar bæjaryfirvalda í sveitar-
félögunum á Suðurnesjum eru sam-
mála um að helstu ástæður fólks-
fjölgunarinnar séu góðar horfur
í atvinnumálum og hagstætt verð á
húsnæði, miðað við á höfuðborgar-
svæðinu. Reykjanesbær og Grindavík
hafa fundið fyrir vaxtarverkjum vegna
íbúafjölgunarinnar þar sem þörf hefur
verið á fleiri leikskólaplássum. Þá er á
stefnuskránni að byggja nýjan grunn-
skóla í Innri Njarðvík.
Allir fagna fjölguninni enda aukast
útsvarstekjurnar og meira líf færist í
bæjarfélögin með fleira fólki. Nánar er
fjallað um málið á bls. 10.
n Við úttekt á gervigrasinu í Reykja-
neshöll kom í ljós að það vantaði um
það bil 10 tonn af gúmmíkurli í grasið.
Bæjarráð Reykjanesbæjar hefur sam-
þykkt fjárveitingu upp á rúmar 2,3
milljónir króna sem verður nýtt til
viðhalds á gervigrasinu.
„Það er mikilvægt upp á viðhald
gervigrassins að bæta í það gúmmíi
reglulega en því hefur ekki verið sinnt
sem skyldi frá því það var lagt,“ segir
Helgi Arnarson sviðsstjóri hjá Reykja-
nesbæ.
Helgi segir að gera þurfi ráð fyrir því
í rekstri Reykjaneshallar að reglulega
þurfi að bæta gúmmíkurli í gervi-
grasið. „Því hefur stundum verið
haldið fram að það þurfi ekkert við-
hald á gervigras, en það er mikill mis-
skilningur,“ segir Helgi.
n Brýnt er að forgangsraða verk-
efnum þannig að umferðaröryggi sé
í forgrunni og horfa til þeirra vega
þar sem bæta þarf umferðaröryggi. Á
umferðarmestu vegunum er ástandið
orðið slæmt og hættulegir vegakaflar,
meðal annars á Grindavíkurvegi, að
því er kemur fram í nefndaráliti frá
Umhverfis- og samgöngunefnd al-
þingis um tillögu til þingsályktunar
um samgönguáætlun næstu fjögurra
ára. Í nefndarálitinu kemur fram að
Grindavíkurvegur sé afar fjölfarinn
vegna Bláa lónsins og aukinna um-
svifa í sjávarútvegi í Grindavík.
Í nefndarálitinu kemur jafnframt fram
að með mikilli fyrirhugaðri uppbygg-
ingu á Miðnesheiði og í tengslum við
Keflavíkurflugvöll þurfi að huga að
uppbyggingu nauðsynlegra innviða
í nágrenni vallarins, klára tvöföldun
Reykjanesbrautar alla leið að flug-
stöðinni auk annarra vega í kringum
svæðið svo umferðarflæði verði greitt
og jafnframt gætt að öryggismálum.
Í nokkrum höfnum eru uppi áætlanir
um framkvæmdir sem ríkið á að taka
þátt í kostnaði við á grundvelli hafna-
laga. Í nefndarálitinu kemur fram að í
nokkru samræmi við þær breytingar
sem meirihluti nefndarinnar lagði til
á síðasta þingi hafi framkvæmdum í
Grindavíkurhöfn verið flýtt en fjár-
veitingar nægja þó ekki til að klára
framkvæmdir í höfninni á tímabilinu.
Nefndin leggur til nokkra aukningu
til endurnýjunar stálþils en umsvif í
höfninni hafa aukist nokkuð síðustu
missiri. Lagt er til að til hafnarinnar
í Grindavík verði veitt 136 milljónum
króna árið 2017 og 30 milljónum
króna árið 2018.
Vilja ljúka við
tvöföldun á
Reykjanesbraut
SEXHUNDRUÐ NÝIR
SUÐURNESJAMENN
●● Íbúum●fjölgar●ört●með●batnandi●hag●í●öllum●sveitarfélögunum●á●Suðurnesjum
Vantar um 10 tonn
af gúmmíkurli í
Reykjaneshöllina
Keflvíkingurinn Inga Ósk Ólafsdóttir hefur gengt sannkölluðu draumastarfi
síðustu mánuði, þar sem hún ferðast vítt og breitt um Ísland með ferða-
mönnum og sýnir þeim hvað land og þjóð hafa upp á að bjóða. Inga segir að
þeir sem upplifa svona ferðir með heimafólki sjái mun meira en hinn almenni
ferðamaður gerir í stuttu stoppi. Ferðamennirnir eru svo gjarnan æstir í að
segja frá upplifun sinni og þannig breiðist hróður Íslands út skemmtilegan
hátt. Sjá viðtal við Ingu á bls. 12.
Frábæri ferðafélaginn
Stefnt er að því að klára tvöföldun Reykja-
nesbrautar alla leið að flugstöðinni.