Víkurfréttir


Víkurfréttir - 16.06.2016, Page 10

Víkurfréttir - 16.06.2016, Page 10
10 fimmtudagur 16. júní 2016VÍKURFRÉTTIR Einnig er laust starf bókara Helstu verkefni: Móttaka og skráning innkaupareikninga. Færsla bókhalds og afstemmingar lánardrottna. Birgðabókhald, s.s. skráning birgða og birgða- breytinga. Kostnaðarútreikningar á birgðum Önnur almenn skrifstofustörf. Lagardere Travel Retail ehf. Sér um rekstur veitingastaða og sælkeraverslunar á Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Markmið fyrirtækisins er að bjóða framúrskarandi þjónustu í lifandi og alþjóðlegu starfsumhverfi. Starfsmenn óskast í fjölbreytt störf. Í boði eru störf í eldhúsi, afgreiðslu og þjónustu. Kokkar, aðstoðarkokkar, kaffibarþjónar og allir þeir sem hafa áhuga á því að vinna í skemmti- legu og fjölbreyttu umhverfi. Við leitum eftir fólki í fullt starf og hlutastarf. Þeir sem hafa áhuga senda inn umsókn á www.ltr.is eða senda á hjordisr@ltr.is Hæfniskröfur: Haldbær reynsla af bókhaldsstörfum skilyrði. Góð almenn tölvukunnátta. Skipulögð, talnaglögg/ur, vönduð og nákvæm vinnubrögð. Frumkvæði, skipulagshæfni og lipurð í mannlegum samskiptum. Reynsla af Navision Ferilsskrá sendist á umsokn@ltr.is P R E N TU N .IS Keflvíkingurinn Inga Ósk Ólafsdóttir hefur gengt sannkölluðu draumastarfi síðustu mánuði, þar sem hún ferðast vítt og breitt um Ísland með ferðamönnum og sýnir þeim hvað land og þjóð hafa upp á að bjóða. Inga er starfsmaður hjá söludeild Icelandair en hún hefur unnið meira og minna í Flugstöðinni frá árinu 1988. Síðan í febrúar hefur ferðamönnum staðið til boða að ferðast með starfsfólki Icelandair um landið. Ferðafélaginn (stopover buddy) kynnir þannig land og þjóð fyrir ferðafólkinu og heim- sækir áhugaverða staði. Upphaflega voru 12 starfsmenn Icelandair sem tóku þátt en vin- sældirnar urðu það miklar að fljótlega voru um 30 starfsmenn sem sinntu verkefninu. Inga hefur verið á ferðinni með túristum allt frá byrjun febrúar og farið í fjölda ferða víða um landið. Hún leggur talsvert upp úr því að sýna fólkinu Reykjanesið en flestir þekkja lítið sem ekkert til svæðisins að hennar sögn. „Megnið af þessu fólki sem ég hef ferðast með vissi ekk- ert um Reykjanesið. Það veit enginn hvað má sjá þar,“ segir Inga. Yfirleitt sækir Inga fólkið á Keflavíkurflugvöll og þaðan fer hún yfirleitt rakleiðis rúnt um Reykjanesið. „Þeim finnst Reykjanesið vera náttúruperla sem ekki margir vita af. Flestum finnst miklu meira til Gunnu- hvers koma en Geysis. Ég hef farið margar ferðir þangað og þar er upplifunin allt öðruvísi. Ein mynd og málið er búið. Við Gunnuhver er meiri tími til þess að njóta og skoða sig um,“ segir ferðafélaginn Inga. „Ég fer gjarnan til Grindavíkur og þaðan fer ég alltaf Suðurstrandarveginn. Þar er svo ofboðs- lega fallegt landslag og lítið af bílum. Margir þessir túristar segja við mig að þeir vilji sjá eitt- hvað öðruvísi og heimsækja jafnvel staði þar sem ekki eru margir ferðamenn og allt krökkt af rútum.“ Aðallega er Inga að ferðast með fólki sem hefur einn dag til umráða á Íslandi og vill sjá sem mest. Þá fer hún á áhugaverða staði sem heimafólk heimsækir jafnan. Stundum fer hún með blaða- menn í ferðir og þá er jafnan farið í tveggja til þriggja daga ferðir á áhugaverða staði. Hún hefur meðal annars farið í hellaskoðun, að Jökulsárlóni og upp á Langjökul í snjósleðaferð með fjöl- miðlafólki. Vilja upplifa hluti sem heimamenn kjósa Inga segir að ferðamennirnir hafi ákaflega gaman af því að vera með heimafólki. Heyra þeirra sögur og upplifun á landinu og gera þá hluti sem heimamenn gera. Inga reynir að komast yfir sem mest á einum degi og jafnan finnst ferðamönn- unum að það hafi verið hér í nokkra daga eftir annasaman dag með Ingu. Inga tekur líka upp á því að bjóða fólki heim til sín í mat og hefur það mælst mjög vel fyrir hjá gestunum. Hún hefur eignast vini um allan heim. „Þeim finnst æðislegt að koma heim til mín og fá að borða ekta íslenskan mat,“ segir Inga sem hefur gaman af því að sýna fólki smæð landsins líka. „Þegar ég er að keyra með þau í Reykjavík þá sýni ég þeim meðal annars hvar Björk á heima eða Vigdís Finnboga. Þeim finnst það svaðalegt og merkilegt, en fyrir okkur er það lítið mál.“ Hvað hefur þú persónulega fengið út úr þessu? „Mig langar bara að fara í leiðsögumanninn,“ segir Inga og hlær. „Ég bara vissi ekki að Ísland væri svona fallegt. Ég er að upplifa þetta með augum útlendingana og sú upplifun er allt öðru- vísi. Við erum orðin svo vön þessu öllu að við sjáum þetta ekki orðið. Mér finnst frábært að geta kynnt landið og ég er rosalega stolt af Ís- landi.“ Inga segir að þeir sem upplifa svona ferðir með heimafólki sjái mun meira en hinn almenni ferðamaður gerir í stuttu stoppi. Ferðamennirnir eru svo gjarnan æstir í að segja frá upplifun sinni og þannig breiðist hróður Íslands út skemmti- legan hátt. Vissi ekki að Ísland væri svona fallegt ●● Ferðafélaginn●Inga●Ósk●er●í●draumadjobbinu.●● ●● Ferðafólk●frá●öllum●heimshornum●fær●„lókal“●upplifun●á●Reykjanesi.

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.